Innlent

Á­rekstur jepplings og fólksbíls á Vestur­lands­vegi

Kolbeinn Tumi Daðason og Kjartan Kjartansson skrifa
Hringvegurinn var lokaður norðan við afleggjarann inn í Hvalfjörð. Það hefur verið opnað fyrir umferð á nýjan leik.
Hringvegurinn var lokaður norðan við afleggjarann inn í Hvalfjörð. Það hefur verið opnað fyrir umferð á nýjan leik. vísir/grafík

Einn var fluttur til skoðunar á sjúkrahúsinu á Akranesi eftir árekstur fólksbíls og jepplings á þjóðvegi 1 við Melasveit fyrir hádegi. Þjóðvegurinn var lokaður um tíma en unnið er að því að opna hann að fullu aftur.

Tilkynning um slysið barst um klukkan 11:15. Bílarnir tveir sem komu úr gagnstæðri átt rákust saman við afleggjara að Melasveit, að sögn Jens Heiðars Ragnarssonar, slökkviliðsstjóra Akraness og Hvalfjarðarsveitar.

Ökumaður jepplingsins var fluttur til skoðunar á sjúkrahúsi en hann var einn í bíl sínum. Tveir voru í fólksbílnum. Allt fólkið komst sjálft út úr bílum sínum eftir áreksturinn. 

Byrjað var að hleypa umferð aftur um þjóðveginn í aðra áttina nú um hádegið. Jens Heiðar segir að umferð hafi verið hleypt inn á Melasveitarveg fram hjá slysstaðnum.

Fréttin hefur verið uppfærð.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×