Fréttir
1 2 3 4 5 6 7 8 … 334 ›
Rokk og ról í Rockville holunni frestast fram í janúar Undirbúningur gengur vel við Rockville borholuna á Reykjanesi og standa vonir til að hún verði tilbúin til notkunar í janúar á næsta ári. Þetta kom fram í minnisblaði sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra lagði fyrir ríkisstjórn í morgun. Innlent 22.11.2024 13:18
Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni Framsóknarflokkurinn mælist nú með þriggja prósenta fylgi í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu, Borgarvitanum. Yrði gengið til kosninga í sveitarstjórn í dag myndi flokkur borgarstjóra því ekki ná inn í borgarstjórn. Flokkurinn fékk 18,9 prósenta fylgi í kosningunum árið 2022. Innlent 22.11.2024 13:17
Gist í um tuttugu húsum í Grindavík Gist var í um tuttugu húsum í Grindavík í nótt og starfsemi er í einhverjum fyrirtækjum í bænum. Almannavarnir fylgjast vel með Njarvíkuæð sem er undir hrauni en segja ómögulegt að vita hversu mikinn þunga eða hita hún þolir. Innlent 22.11.2024 12:59
Njarðvíkuræðin heldur sem stendur og vaxtakjörin útskýrð á mannamáli Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um eldsumbrotin á Reykjanesi en nokkrir gistu í Grindavík í nótt og létu eldhræringarnar ekki hafa áhrif á sig. Innlent 22.11.2024 11:39
Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Brasilíska lögreglan hefur kært Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseta, og nokkra ráðherra í ríkisstjórn hans fyrir tilraun til þess að ræna völdum með því að snúa við úrslitum forsetakosninganna 2022. Bolsonaro stefnir á forsetaframboð eftir tvö ár. Erlent 22.11.2024 11:17
Útkall vegna reyks við Borgarholtsbraut Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út skömmu fyrir ellefu í dag vegna reyks við Borgarholtsbraut í Kópavogi. Innlent 22.11.2024 11:13
Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir allt kapp lagt á það að vernda innviði á Reykjanesi. Fyllt hafi verið í skarð í varnargarð við Bláa lónið í gær en enn sé ekki þörf á að stækka varnargarðinn, það verði metið síðar. Einnig er unnið að því að skoða hvort hægt sé að gera nýjar akstursleiðir að Bláa lóninu og Northern Light inn en vegirnir að því eru undir hrauni. Innlent 22.11.2024 11:09
Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Ráðamenn í Ísrael hafa brugðist reiðir við ákvörðun dómara Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) að gefa út handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og fyrrverandi varnarmálaráðherra Ísrael. Báðir eru sakaðir um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu á Gasa, þar sem Ísraelar hafa verið að gera mannskæðar árásir í rúmt ár. Erlent 22.11.2024 10:50
Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Breiðfylking heilbrigðisstarfsfólks á Íslandi stendur fyrir opnum fundi í hádeginu í dag um málefni heilbrigðisþjónustunnar. Öll framboð sem bjóða fram lista á landsvísu í komandi þingkosningum munu senda fulltrúa. Fundurinn hefst kl. 12:00 og verður haldinn í sal Sjúkraliðafélags Íslands á Grensásvegi 16. Fundinum er streymt hér að neðan. Fundarstjóri er Eyrún Magnúsdóttir. Innlent 22.11.2024 10:26
Meirihluti styður verkfallsaðgerðir kennara Tæplega 58 prósent svarenda í þjóðarpúlsi Gallup segjast styðja verkfallsaðgerðir Kennarasambands Íslands en tæpur þriðjungur styður þær ekki. Yngra fólk er líklegra til þess að styðja aðgerðirnar en eldra. Innlent 22.11.2024 09:45
Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Allt stefnir í að Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, verði áfram kanslaraefni Sósíademókrataflokksins eftir að líklegasti arftaki hans lýsti því yfir að hann sæktist ekki eftir sæti hans. Scholz er óvinsælasti kanslari síðari tíma og hafa margir leiðtoga flokksins hvatt hann til þess að stíga til hliðar. Erlent 22.11.2024 08:59
Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Lögregluyfirvöld í Laos hafa handtekið eiganda og framkvæmdastjóra gistiheimilis í Vang Vieng í tengslum við dauðsföll ferðamanna af völdum metanóleitrunar. Erlent 22.11.2024 08:44
Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Kostnaður breska ríkisins við krýningu Karls III Bretakonungs á síðasta ári var 72 milljónir punda hið minnsta, eða tæpir þrettán milljarðar íslenskra króna. Erlent 22.11.2024 07:58
Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís „Maður sem er með annan fótinn í glóandi hrauni og hinn í ísfötu, hann hefur það að jafnaði fínt,“ sagði Davíð Þór Jónsson, oddviti Sósíalistaflokksins í Suðvesturkjördæmi, í Pallborðinu á miðvikudaginn Innlent 22.11.2024 07:39
Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Donald Trump verðandi forseti Bandaríkjanna hefur nú tilnefnt Pam Bondi sem næsta dómsmálaráðherra Bandaríkjanna eftir að hinn umdeildi Matt Gaetz hrökk úr skaftinu í gær. Erlent 22.11.2024 07:16
Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar „Þetta er bara búið að vera mjög stöðugt í nótt,“ segir Böðvar Sveinsson, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands um þróun gossins á Reykjanesskaga. Innlent 22.11.2024 07:08
Áfram kalt og bætir í vind á morgun Hæð yfir Grænlandi og víðáttumikil lægð yfir Skandinavíu stýra veðrinu í dag þar sem búast má við norðaustlægri átt, víða stinningsgolu eða strekkingi og lítilsháttar éljum á Norður- og Austurlandi. Það mun svo bæta þar í ofankomu seint í dag. Veður 22.11.2024 07:04
Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir notkun Rússa á langdrægri eldflaug gegn Úkraínu fela í sér umtalsverða stigmögnun átaka. Hann kallar eftir fordæmingu og viðbrögðum alþjóðasamfélagsins. Erlent 22.11.2024 06:48
Hótaði heimilismönnum með skærum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór á vettvang í gærkvöldi eða nótt þegar tilkynnt var um einstakling sem var óvelkomin í íbúð í borginni. Sá hafði tekið upp skæri og hótað íbúum en endaði á því að láta sig hverfa. Innlent 22.11.2024 06:22
Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Tveir bandarískir listamann hafa framkvæmd gjörning við höggverk Nínu Sæmundsson í MacArthur almenningsgarðinum í Los Angeles. Listamennirnir hafa bætt við höggverkið, sem er af guðinum Prómeþeifi, pípu til að reykja vímuefni með. Erlent 21.11.2024 23:19
Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Sögur frá undarlegri heimsókn Miðflokksmanna í Verkmenntaskólann á Akureyri halda áfram að berast en skólameistari VMA segir formann flokksins hafa spurt nemendur hvort hann mætti koma með þeim inn í kennslustund. Þá hafi myndbirting hans í gærkvöldi komið flatt upp á pilta sem stilltu sér upp fyrir sjálfu með honum fyrr um daginn. Innlent 21.11.2024 21:36
Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Samfylkingin og Viðreisn gætu myndað ríkisstjórn með einum eða tveimur flokkum í viðbót miðað við nýjustu könnun Maskínu. Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknar gæti verið í hættu á að ná ekki inn og fjölgun flokka á mörkum þess að ná inn þingmanni gæti boðið upp á strategíska kosningu. Innlent 21.11.2024 21:32
Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun Félagsfólk Kennarasambands Íslands í Egilsstaðaskóla, Grundaskóla á Akranesi, Engjaskóla í Reykjavík og Lindaskóla í Kópavogi samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta boðun verkfalls í janúar. Samninganefnd Kennarasambandsins, ríkis og sveitarfélaga fundaði í dag hjá sáttasemjara þriðja daginn í röð. Innlent 21.11.2024 20:20
„Fólki er frekar misboðið“ Stjórnendur Verkmenntaskólans á Akureyri segjast hafa ákveðið að vísa frambjóðendum Miðflokksins út úr skólanum í gær vegna ósæmilegrar framgöngu. Þeir hafi gert lítið úr nemendum og frambjóðendum annarra flokka. Oddviti Framsóknarflokks í Norðausturkjördæmi er ósátt við myndskreytingu formannsins á framboðsgögnum flokksins. Innlent 21.11.2024 19:33
Gosið gætið varað í nokkrar vikur Deildarstjóri á Veðurstofu Íslands segir mögulegt að eldgosið vari í nokkrar vikur. Aldrei hafi hrauntunga flætt lengra til vesturs en sú sem hæfði bílastæði Bláa lónsins í dag. Innlent 21.11.2024 19:14
Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segist standa við þá fullyrðingu að eldgosatímabilinu muni ljúka fljótlega við Sundhnúksgígaröðina. Hann hefur áður fullyrt að því myndi ljúka í haust en það varð ekki raunin. Sjöunda gosið á einu ári hófst klukkan 23:14 í gær, en sjötta gos þessa árs. Innlent 21.11.2024 18:33
Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Matt Gaetz þingmaður Repúblikanaflokksins hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til embættis dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Donalds Trump. Erlent 21.11.2024 18:11
Bílaplan á bólakafi, könnun og frambjóðanda misboðið Hraun gleypti bílastæði Bláa lónsins í dag og rann yfir Njarðvíkuræð. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sjáum við magnaðar myndir af gosinu sem hófst skyndilega í gær og verðum í beinni frá gosstöðvum. Innlent 21.11.2024 18:02
Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Yfirvöld í Úkraínu segja Rússa hafa tekið að minnsta kosti tíu úkraínska stríðsfanga af lífi í Kúrsk-héraði á dögunum. Aftakan var fönguð á myndband með dróna en slíkum myndböndum af aftökum og myndböndum sem rússneskir hermenn hafa sjálfir tekið, hefur farið verulega fjölgandi á undanförnum vikum. Erlent 21.11.2024 16:51
Höfðu ekki áhyggjur af lóninu sjálfu Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri sölu, rekstrar og þjónustu hjá Bláa lóninu, segir að aldrei hafi verið uppi stórkostlegar áhyggjur um að lónið sjálft færi undir hraun. Áætlanir hafi verið til um hvernig skyldi fyllt upp í varnargarða ef til eldgoss kæmi. Innlent 21.11.2024 16:47