Fréttir
68 69 70 71 72 73 74 75 76 … 334 ›
Hér sést risaþotan taka á loft frá Keflavíkurflugvelli Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni var í dag og flaug vélin sérstakan kveðjuhring yfir Reykjavíkursvæðinu. Forstjóri Atlanta segir þessa flugvélartegund hafa byggt upp félagið. Innlent 3.10.2024 21:31
Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Utanríkisráðuneytinu er kunnugt um tvo íslenska ríkisborgara í Líbanon. Annar þeirra hefur óskað eftir aðstoð Borgaraþjónustu ráðuneytisins. Erlent 3.10.2024 21:09
Keyrt á tvo unga drengi Keyrt var á tvo unga drengi í dag, í tveimur mismunandi tilfellum, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglunnar. Innlent 3.10.2024 20:52
Minnast Bryndísar Klöru með tónleikum: „Fallegt hvað allir stóðu saman“ Minningartónleikar til heiðurs Bryndísar Klöru Birgisdóttur eru haldnir í kvöld, þar sem margir fremstu tónlistarmenn landsins koma fram. Skipuleggjandi segist hafa fundið mikinn samtakmátt meðal samnemenda Bryndísar Klöru. Innlent 3.10.2024 19:56
Kynferðisleg svefnröskun hélt ekki vatni Landsréttur staðfesti í dag tveggja og hálfs árs fangelsisdóm á hendur manni í nauðgunarmáli. Honum var gefið að sök að nauðga konu sem var sofandi, en maðurinn bar fyrir sig að hann sé haldinn af kynferðislegri svefnröskun. Innlent 3.10.2024 18:57
Féll af steini við Seljalandsfoss Lögreglan á Suðurlandi fékk tilkynningar um tvö slys með stuttu millibili seinni partinn í gær. Annars vegar féll ferðamaður af steini við Seljalandsfoss. Hins vegar féll einstaklingur af þaki húss í Rangárþingi. Innlent 3.10.2024 18:57
Heilsugæslan til rannsóknar og síðasta farþegaflug júmbóþotu Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins rifti samningi sínum við Samgöngustofu, Fluglæknasetur og KSÍ um aðgang að sjúkraskrám eftir nýlegan úrskurð Persónuverndar. Rætt verður við forstjóra Persónuverndar í beinni í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 3.10.2024 18:02
Kaldasti september frá árinu 2005 Septembermánuður var óvenjukaldur á landinu. Meðalhitastig hefur raunar ekki verið jafn lágt frá septembermánuði árið 2005. Innlent 3.10.2024 17:46
Hefja frumkvæðisathugun á Heilsugæslunni Persónuvernd hefur ákveðið að hefja frumkvæðisathugun á vinnslu persónuupplýsinga í sameiginlegum sjúkraskrárkerfum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Innlent 3.10.2024 17:08
Segir nákvæmlega ekkert að óttast við atkvæðagreiðsluna Formaður Viðreisnar segir þjóðina skulda unga fólkinu í landinu að fá tækifæri til að ákveða í þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði haldið áfram. Hún horfi til þess þegar Bretland yfirgaf Evrópusambandið í andstöðu við vilja ungs fólks í því samhengi. Innlent 3.10.2024 16:39
Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Ísraelski herinn sagði íbúum 25 bæja og þorpa í sunnanverðu Líbanon í dag að yfirgefa heimili sín. Byggðirnar eru norður af Litani-á en hún markar svæði sem átti að vera nokkurs konar hlífðarsvæði samkvæmt ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 2006 og þykir yfirlýsingin til marks um mögulega útvíkkun innrásar Ísraela í Líbanon. Erlent 3.10.2024 16:18
Ótrúverðugar skýringar í nauðgunarmáli Arnar Björn Gíslason, 26 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun. Arnar Björn var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember í fyrra og var refsingin staðfest í Landsrétti í dag. Innlent 3.10.2024 15:29
Alelda bíll á Reykjanesbraut Bíll stendur í ljósum logum á Reykjanesbrautinni en ekki hefur verið tilkynnt um nein slys á fólki. Innlent 3.10.2024 15:00
Leita tveggja vegna banaslyssins á Sæbraut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar tveggja ökumanna vegna banaslyssins á Sæbraut um síðustu helgi. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að nauðsynlega þurfi að ná tali af þeim vegna rannsóknarinnar á slysinu. Innlent 3.10.2024 14:34
Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Tilkomumikill hringmyrkvi var sýnilegur á sunnanverðri Suður-Ameríku í gær. Margir komu saman til að sjá sólmyrkvann. Erlent 3.10.2024 13:46
Risaþota flaug í lágflugi yfir Reykjavík Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747 verður um klukkan tvö í dag. Flogið verður í lágflugi yfir Reykjavík í tilefni dagsins og þaðan í sérstakt kveðjuflug með starfsmenn félagsins til Casablanca í Marokkó í Norður-Afríku. Innlent 3.10.2024 13:31
Áfram á bak við lás og slá vegna andláts hjónanna Fallist hefur verið á kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa orðið hjónum að bana í Neskaupstað í ágúst. Innlent 3.10.2024 13:25
Umferðarljósin rafmagnslaus vegna rafmagnstruflana Umferðarljós við Bústaðaveg og við gatnamót Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar biluðu urðu rafmagnslaus í morgun klukkan 08:50 og í gær klukkan 12:25 vegna rafmagnstruflana í orkuveri í Svartsengi og í gær vegna kerfisbilunar í Landsneti. Innlent 3.10.2024 13:00
Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Mark Rutte, nýr framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins og fyrrverandi forsætisráðherra Hollands, er í heimsókn í Kænugarði í Úkraínu. Þetta er fyrsta opinbera ferð Rutte frá því hann tók við embættinu á þriðjudaginn en hún var ekki opinberuð fyrr en hann var kominn þangað í morgun. Erlent 3.10.2024 12:13
Þóra Jóhanna nýr yfirdýralæknir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur tekið ákvörðun um að skipa Þóru Jóhönnu Jónasdóttur í embætti yfirdýralæknis. Hún tekur við af Sigurborgu Daðadóttur, sem var skipuð yfirdýralæknir árið 2013, fyrst kvenna. Innlent 3.10.2024 12:04
Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að hann væri ekki hlynntur því að Ísraelar gerðu loftárásir á kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Ísraelar eru sagðir íhuga slíkar árásir eftir að íranski herinn skaut um tvö hundruð skotflaugum að Ísrael á þriðjudaginn. Erlent 3.10.2024 12:02
Stóra sánumálið: „Örugglega ýmislegt viðgengist sem myndi ekki viðgangast í öðrum klefum“ Gestum Vesturbæjarlaugar gremst mörgum að kynjaskiptir sánuklefar heyri nú sögunni til í lauginni. Forstöðumaður segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að loka karlasánunni, sem var orðin fúin og ógeðsleg. Þá stemmi kynjasameiningin vonandi stigu við óviðeigandi hegðun sem hafi verið erfitt að uppræta. Innlent 3.10.2024 12:02
Sögðu upp fleiri samningum í kjölfar úrskurðarins Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur sagt um samningum við Samgöngustofu, Fluglæknasetur og KSÍ, í kjölfar úrskurðar Persónuverndar um að ekki hafi verið heimilt að veita Samgöngustofu aðgang að sjúkraskrám. Forstjóri heilsugæslunnar segir boltann nú hjá yfirvöldum, sem þurfi að búa til lagaramma sem virkar. Innlent 3.10.2024 12:02
Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Finnskur nýnasisti sem stakk tvö börn í verslunarmiðstöð í Oulu í Finnlandi í sumar hafnaði því að hann hefði verið knúinn áfram af kynþáttahatri þegar réttarhöld hófust yfir honum í vikunni. Hann er ákærður fyrir tilraun til manndráps. Erlent 3.10.2024 11:50
Ánægð með að stjórnvöld viðurkenni mönnunarvandann Efling undirritaði í nótt kjarasamning við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu sem nær til félagsmanna á hjúkrunarheimilum og sambærilegum stofnunum. Formaður Eflingar fagnar því að stjórnvöld viðurkenni loks mönnunarvanda hjúkrunarheimilanna. Innlent 3.10.2024 11:50
Vaxtalækkun, nýr kjarasamningur og lokað á sjúkraskrár Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður fjallað um Arion banka sem hefur tilkynnt vaxtalækkun í kjölfar ákvörðunar Seðlabanka Íslands um að lækka stýrivexti. Rætt verður við formann Neytendasamtakanna, sem fagnar þessu, en segir ekki mega gleyma að íbúðalánavextir á Íslandi séu með þeim hæstu á Vesturlöndum og bankarnir séu nýbúnir að hækka þá. Innlent 3.10.2024 11:40
Rafmagnsleysi sums staðar fram á kvöld Sjötíu mínútur þurfti til að byggja upp flutningskerfi Landsnets eftir að sló út á stórum hluta landsins rétt fyrir klukkan eitt í gær. Fólk í Mývatnssveit var sumt hvert rafmagnslaust fram á kvöld. Innlent 3.10.2024 11:31
Herbergi fylltist af vatni upp að hurðarhúni Umfangsmikill leki varð í fjölbýlishúsi að Maríubakka í Breiðholti í morgun. Herbergi í kjallara hússins fylltist af vatni upp að hurðarhúni. Innlent 3.10.2024 11:18
Veikindi flugstjóra settu óvænt strik í flugáætlun Atlanta-þotu Áhöfn Boeing 747-þotu Air Atlanta, TF-AMI, flaug með hátt í eitthundrað tonn af lyfjum frá Evrópu til Suður-Afríku. Eftir lendingu í Jóhannesarborg þurfti starfsfólk félagsins í skyndi að bregðast við óvæntum veikindum flugstjóra. Innlent 3.10.2024 10:48
Kona tveggja flokka í Samtalinu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar mætir í Samtalið með Heimi Má í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14. Hún var vonarstjarna Sjálfstæðisflokksins og varaformaður flokksins um tíma en tók þátt í stofnun Viðreisnar sem hún hefur verið í forystu fyrir í sjö ár. Innlent 3.10.2024 10:42