Innlent

Sjálf­stæðis­maður vill ekki að sitt fólk striki Dag út

Jakob Bjarnar skrifar
Andri Steinn telur vert að taka skýrt fram að með því að strika Dag út en kjósa annan flokk sé sá hinn sami að gera kjörseðil sinn ógildan.
Andri Steinn telur vert að taka skýrt fram að með því að strika Dag út en kjósa annan flokk sé sá hinn sami að gera kjörseðil sinn ógildan. vísir/vilhelm/facebook

Andri Steinn Hilmarsson, starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, gerir athugasemd við frétt Vísis sem hann telur geta alið á misskilningi. Hann segir vert að taka vel utan um hvað má og hvað ekki má í kjörklefanum.

„Það verður að koma þarna fram að það ógildi atkvæðið að fara eftir þessum fyrirmælum,“ segir Andri Steinn.

Andri er að tala um grínaktuga frétt af orðahnippingum Dags B. Eggertssonar frambjóðanda Samfylkingarinnar og manns á Facebook sem spyr hvort hann kunni ekki að skammast sín? Dagur svarar snarlega og hvetur alla kjósendur Sjálfstæðisflokksins til að strika sig út.

Brandarar eru eins og að kryfja frosk, þú þarft að drepa hann til þess. En Dagur er þarna að hafa í flimtingum að ef einhver kýs tiltekinn flokk en strikar út frambjóðanda annars lista, þá er sá hinn sami að gera sitt atkvæði ógilt.

„Það er fullt af fólki þarna úti sem veit ekkert hvernig þetta gengur fyrir sig,“ segir Andri Steinn. Hann telur ekki úr vegi að útskýra fyrir fólki hvað má og hvað ekki í þessu. Hann er þó ekki á því að það kveði rammt að þessu en hann hafi vissulega heyrt af slíkum tilvikum frá fólki úr talningunni.

Og það hefur fréttastofan einnig gert. Til að mynda af manni sem fyrir löngu kaus í Kópavogi Samfylkinguna en lýsti því jafnframt hróðugur yfir að hann hefði strikað yfir Gunnar I. Birgisson oddvita Sjálfstæðisflokksins þar í bæ. Allur er varinn góður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×