Fréttir
71 72 73 74 75 76 77 78 79 … 334 ›
Segir gagnrýnina ósvífna og ósanngjarna „Mér finnst þetta bara vera mjög ósvífin og ósanngjörn gagnrýni. Ég skil ekki hvernig það er hægt að saka einhvern um tvískinnung í svona máli sem hefur allan tímann óskað eftir meiri úrbótum fyrir óvarða vegfarendur og vildi ganga lengra en gengið var. Við höfum ekkert skipt um skoðun í þessu máli og gerðum það aldrei.“ Innlent 1.10.2024 20:12
Ólafur Ragnar breytti stöðu forsetaembættisins Prófessor í stjórnmálafræði segir mikinn feng af útgáfu dagbóka Ólafs Ragnars Grímssonar fyrrverandi forseta Íslands. Þær varpi ljósi á hatrammar deilur og veiti fágæta innsýn í atburðarás stjórnmálanna. Innlent 1.10.2024 19:31
„Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Bróðir manns sem lést eftir að hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík segir niðurstöður rannsóknar Vinnueftirlitsins á slysinu með því alvarlegra sem hann hafi litið augum. Nú þurfi dómsmálaráðherra að taka undir kröfur fjölskyldunnar um að setja á fót óháða rannsóknarnefnd. Vinnueftirlitið spyr hvort verkefnið hafi verið áhættunnar virði. Innlent 1.10.2024 19:22
Mælirinn fullur vegna vanvirðingar á slysstað Rannsókn lögreglu á banaslysi við Sæbraut á aðfaranótt sunnudags gengur vel. Varðstjóri hjá lögreglunni segir það vera síalgengara að almenningur reyni að komast inn fyrir lokanir á slysstöðum. Eftir helgina sé mælirinn fullur. Innlent 1.10.2024 19:18
Vita af tíu Íslendingum í Ísrael Borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins er kunnugt um allt að tíu íslendinga í Ísrael, og hefur ræðismaður Íslands þar í landi verið í sambandi við hópinn að undanförnu. Utanríkisráðuneytið vill koma þeim tilmælum til Íslendinga sem kunna að vera á svæðinu að hafa samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins ef aðstoðar er þörf. Innlent 1.10.2024 18:56
Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Að minnsta kosti sex eru látnir og níu særðir eftir skotárás í Jaffa-hverfinu í Tel Avív í Ísrael. Þó nokkrir þeirra særðu eru í bráðri lífshættu. Árásin hófst rétt áður en að umfangsmikil loftárás Írana hófst á fimmta tímanum í dag. Erlent 1.10.2024 18:52
Nýjustu vendingar í Ísrael og bróðir í sárum Íran skaut nú síðdegis eldflaugum að Ísrael. Neyðarástandi var lýst yfir í Ísrael og loftvarnarlúðrar ómuðu í helstu borgum. Svo virðist sem hættan sé liðin hjá í bili. Við förum yfir nýjustu vendingar fyrir botni Miðjarðarhafs í kvöldfréttum Stöðvar 2, sýnum myndir frá loftárás Írana og rýnum í stöðuna með Samúel Karli Ólasyni, fréttamanni. Innlent 1.10.2024 18:03
Harður árekstur við Ingólfsfjall Harður árekstur varð á Suðurlandsvegi við Hvammsveg þegar tveir bílar skullu þar saman. Fjórir eru slasaðir og verða fluttir á sjúkrahús til frekari skoðunar. Innlent 1.10.2024 17:52
Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Gestur Breiðfjörð Gestsson viðskiptamaður var sýknaður af öllum kröfum bílaumboðsins BL ehf. fyrir Héraðsdómi Reykjaness í gær. BL krafðist þess að Gestur yrði dæmdur til að greiða 2.633.469 króna skuld eftir að pallaolíudósir fóru á flug inn í bílaleigubíl BL, sem hann var með til afnota, en við það opnuðust dósirnar og helltist pallaolían niður sem olli umtalsverðu tjóni í bílnum. Innlent 1.10.2024 17:35
Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Að minnsta kosti tvö hundruð skotflaugum var skotið að Ísrael frá Íran í dag. Viðvörunarlúðrar ómuðu víðsvegar í Ísrael og er útlit fyrir að þó nokkrar þeirra hafi náð í gegnum loftvarnir Ísraela og brak úr mörgum féll til jarðar. Erlent 1.10.2024 16:43
Læknir ávísaði lyfjum í nafni konu sem lést níu árum áður Heilbrigðisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Landlæknis um að svipta lækni starfsleyfi. Læknirinn gaf út ávana- og fíknilyf í nafni látinnar konu í tæpan áratug. Innlent 1.10.2024 16:09
Fordæmalaus áform og enginn lagarammi til um eftirlit Hafrannsóknarstofnun leggst aftur gegn áformum þýska sementsfyrirtækisins Heidelberg um efnistöku af hafsbotni við Landeyjar. Öll framkvæmdin sé stórskala og án fordæma. Sviðsstjóri segir heildaráhrif framkvæmdarinnar neikvæð á hrygningu helstu fiskistofna, strandlengjuna og lífríkið á svæðinu. Talsmaður Heidelberg segir umsögnina ekki bæta miklu við fyrri umsögn stofnunarinnar sem fyrirtækið hafi komið á móts við. Nú sé verið að fara yfir síðara matið. Innlent 1.10.2024 15:03
Ungur ökumaður ekki grunaður um akstur undir áhrifum Rannsókn lögreglu á banaslysi sem varð á Sæbraut aðfaranótt sunnudags gengur vel. Ekki er grunur um að ökumaður sem ók fólksbíl á gangandi vegfaranda, sem lét lífið, hafi verið undir áhrifum áfengis. Þó hafa niðurstöður úr blóðefnarannsókn ekki borist. Innlent 1.10.2024 14:52
Ólafur Ragnar Grímsson: Kjörnir fulltrúar eiga ekki að vera í ævarandi leynibandalagi Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands telur sig ekki vera að brjóta trúnað við fólk með því að gefa út valdar dagbókarfærslur frá forsetatíð hans. Þar fjallar hann atburðarásina þegar hann fyrstur forseta synjaði lögum frá Alþingi staðfestingar. Innlent 1.10.2024 14:46
Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Forsvarsmenn ísraelska hersins hafa ákveðið að kalla út fjögur stórfylki af varaliði vegna átakanna við landamærin Ísrael og Líbanon. Hermennirnir eiga að verða sendir að landamærunum en Ísraelar hafa verið að gera loftárásir og áhlaup yfir landamærin þar sem sérsveitarmenn eru sagðir hafa farið inn í göng og hella sem eiga að hafa verið í notkun af vígamönnum Hezbollah. Erlent 1.10.2024 14:10
Blöskrar „tvískinnungur“ hjá borgarfulltrúa eftir banaslys Borgarfulltrúa Pírata blöskrar að borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins „slái sér á brjóst“ eftir að hafa beitt sér gegn úrbótum í þágu gangandi á gatnamótum Sæbrautar við Skeiðarvog og Kleppsmýrarveg. Kona á fertugsaldri lést á gatnamótunum seint á laugardagskvöld þegar hún varð fyrir bíl. Innlent 1.10.2024 14:00
Flestir hlynntir inngöngu í ESB og hafa aldrei verið fleiri Aldrei hafa fleiri verið hlynntir aðild Íslands að Evrópusambandinu en í nýrri skoðanakönnun sem áhugafólk um aðild lét gera. Umtalsvert fleiri sögðust hlynntir inngöngu en mótfallnir í könnuninni. Innlent 1.10.2024 13:55
Tilefnislaus líkamsárás við Traðarkotssund „fyrir Pútín“ Karlmaður hlaut í gær tveggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, fyrir líkamsárás við Traðarkotssund í miðbæ Reykjavíkur sem átti sér stað aðfaranótt laugardagsins 1. október árið 2022. Innlent 1.10.2024 13:45
Vatnstjón í Hlíðaskóla og krakkarnir sendir heim Vatnspípa fór í sundur í Hlíðaskóla rétt fyrir klukkan eitt í dag og hefur þurft að loka skólanum vegna þessa og senda nemendur heim. Innlent 1.10.2024 13:14
Telur lykilspurningum um banaslysið enn ósvarað Bróðir Lúðvíks Péturssonar sem lést í vinnuslysi í Grindavík þann 10. janúar segir skýrslu Vinnueftirlitsins styðja eðlilega ósk fjölskyldunnar að heildstæð rannsókn verði gerð að aðdraganda slyssins og eftirleik þess. Innlent 1.10.2024 12:35
Hreinsaður af ásökunum eiginkonu sveitarstjórans Ekki er annað að sjá en greiðslur til Jóns Jónssonar, fyrirtækja og stofnana í hans eigu eða hann tengdist með stjórnarsetu á þeim tíma sem Jón sat í sveitarstjórn Strandabyggðar hafi verið í samræmi við samninga og samþykktir sveitarstjórnar. Innlent 1.10.2024 12:03
Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Reikistjarna er fundin við næstu stöku stjörnuna í nágrenni sólkerfisins okkar. Þótt hún sé ekk lífvænleg bætist reikistjarnan í hóp smærri fjarreikistjarna sem er að finna í bakgarði okkar í alheiminum. Erlent 1.10.2024 12:00
Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Ráðamenn í Rússlandi vilja hækka fjárútlát til varnarmála um tæpan þriðjung á næsta ári, samanborið við þetta ár. Þetta kemur fram í fjárlagadrögum sem birt voru í gær. Um metupphæð er að ræða en verðbólga hefur hækkað hratt í Rússlandi á undanförnum mánuðum. Erlent 1.10.2024 11:30
Flugvöllur í Hvassahrauni enn inni í myndinni Í hádegisfréttum fjöllum við um nýja skýrslu um möguleikann á flugvelli í Hvassahrauni. Innlent 1.10.2024 11:28
Á meðan bílinn er ódýrari verði hann fyrsta val Á meðan það er ódýrara að aka og leggja bíl í stæði við Keflavíkurflugvöll en að nota aðra ferðamáta verður einkabíllinn í flestum tilfellum fyrsta val fólks. Þetta segir í skýrslu starfshóps sem innviðaráðherrra skipaði með tillögum úrbótum um almenningssamgöngur milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar. Innlent 1.10.2024 11:16
Flugvöllur í Hvassahrauni alls ekki úr myndinni Niðurstöður starfshóps um byggingu flugvallar í Hvassahrauni eru þær helstar að ólíklegt sé að náttúruvá hafi áhrif á flugvöll á svæðinu, engin veðurskilyrði mæli gegn valinu og líklega verði ekki mikil langtímaáhrif á eftirspurn í innanlandsflugi ef af flutningi þess verður í Hvassahraun. Innlent 1.10.2024 11:15
Ekkert skriflegt áhættumat og spurt hvort vinnan hafi verið áhættunnar virði Vinnueftirlitið segir að slysið í Grindavík í janúar, þar sem maður féll ofan í sprungu, megi rekja til þess að ekki hafi verið til staðar fullnægjandi áhættumat og að ekki hafi farið fram nægilega góð kynning á helstu hættum sem gætu steðjað að þeim sem ynnu á vettvangi. Þá veltir Vinnueftirlitið því fram hvort verkið sem var unnið hafi verið áhættunnar virði. Innlent 1.10.2024 10:50
Kristjana frá Rúv til Ásmundar Einars Kristjana Arnarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra. Hún hefur undanfarin ár getið sér gott orð á íþróttafréttadeild Ríkisútvarpsins og sem stjórnandi Gettu betur. Innlent 1.10.2024 10:21
Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Dominique Pelioct, sem byrlaði eiginkonu sinni ólyfjan og fékk tugi manna til að nauðga henni um árabil, er til rannsóknar vegna fimm annarra mála og þar á meðal eins morðs. Málin þykja keimlík einni nauðgunartilraun sem Pelicot hefur játað og morði sem hann hefur verið ákærður fyrir. Erlent 1.10.2024 10:16
Bein útsending: Kynna niðurstöður um flugvöll og samgöngur Niðurstöður tveggja starfshópa um rannsóknir á byggingu flugvallar í Hvassahrauni og almenningssamgöngur milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar verða kynntar á blaðamannafundi klukkan 11 í Hafnarborg í Hafnarfirði. Innlent 1.10.2024 10:01