Formúla 1
148 149 150 151 ›
Raikkönen fer til Ferrari Flavio Briatore segist vera búinn að gefast upp á að reyna að fá finnska ökuþórinn Kimi Raikkönen til Renault-liðsins, því hann sé þegar búinn að gera munnlegt samkomulag um að ganga í raðir Ferrari og segir að þar verði hann eftirmaður Michael Schumacher á næsta tímabili því Þjóðverjinn muni tilkynna að hann sé hættur um helgina. Formúla 1 8.9.2006 18:40
Schumacher fljótastur á æfingum Michael Schumacher hafði í dag gríðarlega yfirburði aðalökuþóra á æfingum fyrir Ítalíukappaksturinn sem fram fer á Monza brautinni á sunnudag, en hann var með 1,7 sekúndum betri tíma en keppinautur sinn Fernando Alonso. Ferrari bílarnir komu mjög vel út úr æfingunum í dag og því er ljóst að þeir verða illsigraðir á heimavelli sínum um helgina ef að líkum lætur. Formúla 1 8.9.2006 14:30
Schumacher verður með fulla einbeitingu Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault segir að Michael Schumacher verði með 100% einbeitingu í Ítalíukappakstrinum á Monza á sunnudaginn, þó tilkynnt verði eftir keppnina hverjir ökumenn Ferrari verði á næsta keppnistímabili - en þá kemur formlega í ljós hvort hinn sigursæli Þjóðverji leggur stýrið á hilluna eða heldur áfram að keppa á næsta tímabili. Formúla 1 7.9.2006 21:30
Kovalainen leysir Alonso af hólmi Keppnislið Renault í Formúlu 1 tilkynnti í dag að finnski ökuþórinn Heikki Kovalainen muni leysa Spánverjann Fernando Alonso af hólmi sem aðalökumaður liðsins á næsta keppnistímabili þegar heimsmeistarinn gengur í raðir McLaren. Giancarlo Fisichella verður áfram ökumaður hjá liðinu, en hann framlengdi samning sinn um eitt ár á dögunum. Formúla 1 6.9.2006 12:50
Raikkönnen klár í slaginn Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen hjá McLaren hefur nú gefið það út að hann sé við hestaheilsu og búinn að jafna sig af bakmeiðslum sem höfðu verið að angra hann síðan hann lenti í óhappi í Tyrklandskappakstrinum á dögunum. Raikkönen segist í toppstandi og tilbúinn í Ítalíukappaksturinn á Monza um næstu helgi. Formúla 1 5.9.2006 22:00
Aðeins eitt takmark á Monza Heimsmeistarinn Fernando Alonso segir að Renault-liðið sé aðeins með eitt takmark fyrir Ítalíukappaksturinn um næstu helgi og það sé að koma í mark á undan heimamönnum í Ferrari. Formúla 1 4.9.2006 20:00
Keppnum fækkar 2007 Landslagið í Formúlu 1 verður nokkuð breytt á næsta keppnistímabili eftir að ljóst varð að ekki verður keppt í San Marino og þá hefur Evrópukappaksturinn verið strikaður út af sakramentinu. Á móti kemur að staðfest hefur verið að keppni á Spa brautinni í Belgíu verður endurvakin eftir eins árs hlé, þar sem endurbætur voru gerðar á gömlu brautinni. Formúla 1 29.8.2006 16:00
Orðrómur á kreiki um drykkjuskap Raikkönen Síðustu daga hefur þrálátur orðrómur verið á kreiki á vefsíðum sem tengjast Formúlu 1 að finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen hafi verið tekinn fyrir ölvunarakstur eftir kappaksturinn í Ungverjalandi á dögunum. Raikkönen var sagður hafa týnt peningaveski sínum með nokkrum fjármunum, ökuskírteini sínu og vegabréfi, en sumir vilja meina að lögreglan hafi tekið það af honum eftir að hann var handtekinn. Formúla 1 24.8.2006 13:54
Alonso ætlar að auka forskot sitt Heimsmeistarinn Fernando Alonso segist bjartsýnn á að geta aukið forskot sitt í keppni ökuþóra til heimsmeistara um næstu helgi þegar Tyrklandskappaksturinn fer fram. Alonso er telur möguleika Renault góða þar í landi og segir liðið komið á beinu brautina á ný eftir lægð í keppninni í Þýskalandi um daginn. Formúla 1 21.8.2006 16:32
Villenueve ræðst hart að Schumacher Fyrrum heimsmeistarinn í Formúlu 1, Kanadamaðurinn Jacques Villenueve, er harðorður í garð Michael Schumacher hjá Ferrari og kallar hann lygara og bragðaref sem aldrei muni ná að festa sig í sessi sem goðsögn í íþróttinni vegna þessa. Formúla 1 18.8.2006 15:45
Samningar í höfn við Indanapolis Nú er ljóst að Formúla 1 verður áfram í boði í Bandaríkjunum, í það minnsta í eitt ár í viðbót, eftir að forráðamenn Indianapolis-kappakstursins náðu samkomulagi við Bernie Ecclestone um mótshald þar á næsta ári. Formúla 1 17.8.2006 20:18
Schumacher þénar sem aldrei fyrr Þó þýski ökuþórinn Michael Schumacher hafi oft verið í betri málum á kappakstursbrautinni virðist hann enn halda góðum dampi hvað varðar tekjur. Schumacher tekur gott stökk á lista tekjuhæsta fólks úr röðum skemmtikrafta og íþróttamanna á nýútkomnum lista Forbes. Formúla 1 16.8.2006 16:54
Montoya leiddist hjá McLaren Juan Pablo Montoya segir í viðtali við dagblað í heimalandi sínu Kolumbíu að ástæðan fyrir því að hann ákvað að hætta í Formúlu 1 og snúa sér að Nascar hafi verið sú að honum hafi verið farið að leiðast. Formúla 1 14.8.2006 20:45
Schumacher er seigur í boltanum Michael Schumacher sést hér í góðgerðarknattspyrnuleik sem fór fram á Ferenc Puskas vellinum í Budapest í Ungverjalandi. Þar áttust við ökuþórar úr Formúlu 1 og ungverska stjörnuliðið. Fjórir dagar eru nú þangað til ungverski kappaksturinn hefst. Formúla 1 2.8.2006 20:39
Schumacher sigrar þýska kappaksturinn Michael Schumacher hefur glætt vonir sínar á sigri í heildarkeppni ökuþóra, með því að vinna þýska kappaksturinn í dag á Ferrari bifreið sinni. Hann minkaði forskot Fernando Alonso niður í 11 stig. Alonso lennti í fimmta sæti á Renault. Formúla 1 30.7.2006 14:02
Räikkönen á ráspól Finnski ökuþórinn Kimi Räikkönen hjá McLaren vann í dag ráspól í tímatökum Formúlu 1 kappakstursins sem fram fer í Hockenheim í Þýskalandi. Formúla 1 29.7.2006 20:52
Schumacher í stuði á heimavelli Michael Schumacher sendi heimsmeistaranum Fernando Alonso skýr skilaboð á æfingu fyrir Þýskalandskappaksturinn í dag þegar hann náði bestum tíma allra aðalökumanna á Hockenheim brautinni á æfingum. Alonso náði fimmtánda besta tímanum. Formúla 1 28.7.2006 17:31
Hefur ekki áhyggjur af áhlaupi Ferrari Heimsmeistarinn Fernando Alonso í Formúlu 1 hefur ekki áhyggjur þó Michael Schumacher og Ferrari hafi unnið tvær síðustu keppnir og eigi þá næstu á heimavelli hans, Hockenheim-brautinni í Þýskalandi. Formúla 1 24.7.2006 16:06
Renault hefur áhuga á Raikkönen Forráðamenn Renault-liðsins í formúlu 1 segja það ekkert leyndarmál að þeir hafi mikinn áhuga á að fá finnska ökuþórinn Kimi Raikkönen til liðs við sig á næsta keppnistímabili þegar heimsmeistarinn Fernando Alonso gengur í raðir McLaren. Formúla 1 19.7.2006 18:03