Fótbolti

„Hefurðu enga sóma­kennd?“

Siggeir Ævarsson skrifar
Valgeir Valgeirsson er uppalinn HK-ingur en verður í grænu í Kópavoginum í sumar
Valgeir Valgeirsson er uppalinn HK-ingur en verður í grænu í Kópavoginum í sumar VÍSIR/HAG

Félagaskipti Valgeirs Valgeirsson til Breiðabliks hafa vakið nokkra athygli þar sem Valgeir er HK-ingur að upplagi og fyrrum liðsfélagi hans úr yngri flokkum rifjaði upp fleyg orð Valgeirs um Breiðablik á Twitter.

Egill Sigurðsson, sem æfði með Valgeiri í yngri flokkum HK, spyr á Twitter hvort Valgeir hafi enga sómakennd og rifjar upp viðtal af Fótbolta.net frá 2020 þar sem Valgeir er spurður með hvaða liði hann myndi aldrei spila.

Valgeir, sem er fæddur 2002, lék upp alla yngri flokka með HK og með þeim í efstu deild 2018-22, alls 66 deildarleiki. Hann gekk til liðs við Örebro sumarið 2022 en snýr nú aftur heim í Kópavoginn, við misjafnar undirtektir greinilega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×