Erlent
220 221 222 223 224 225 226 227 228 … 334 ›
Konur og börn flest þeirra sem fórust í ferjuslysi í Nígeríu Að minnsta kosti 76 fórust þegar ferju hvolfdi í Anambra-ríki í suðausturhluta Nígeríu á föstudag. Flest þeirra látnu voru konur og börn sem voru að reyna að komast undan flóðum sem hafa gert á svæðinu. Erlent 10.10.2022 09:04
Ákærð fyrir að láta vin sinn myrða föður sinn Réttarhöld hófust á Spáni í vikunni yfir 19 ára stúlku sem er ákærð fyrir að hafa ginnt rúmlega tvítugan mann til þess að myrða föður sinn. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi í tvö ár, en er ekki ákærður þrátt fyrir að játa að hafa orðið föður sínum að bana. Erlent 10.10.2022 08:00
„Þeir reyna að tortíma okkur og þurrka út af yfirborði jarðar“ Sprengjuárásir rússneska hersins á Kænugarð og fleiri úkraínskar borgir í morgun sýna fram á að Rússar séu að reyna að tortíma Úkraínumönnum og þurrka þeim út af yfirborði jarðar. Erlent 10.10.2022 07:50
Van der Bellen endurkjörinn sem forseti Austurríkis Alexander Van der Bellen var endurkjörinn sem forseti Austurríkis í forsetakosningum sem fram fóru í gær. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum frá innanríkisráðuneyti landsins fékk van der Bellen hreinan meirihluta atkvæða, en sjö voru í framboði. Erlent 10.10.2022 07:16
Árásir á óbreytta borgara skelfilegar Vladímír Pútín, forseti Rússlands segir árásir morgunsins hafa verið svar Rússa við árásinni á Kertsj-brúna. Árásinni hafi verið beint að samskipta-, orku- og hernaðarinnviðum Úkraínumanna. Erlent 10.10.2022 06:35
Senda kafara til að kanna skemmdir á Kerch brúnni Rússar hyggjast senda kafara til að kanna skemmdir á Kerch brúnni í dag. Brúin varð fyrir kraftmikilli sprengingu í gærmorgun og hluti hennar féll í sundið. Brúin er sögð táknmynd hernáms Rússa á Krímskaga en hún tengir skagann viðmeginland Rússlands og er mikilvæg birgðaflutningaleið fyrir Rússa. Erlent 9.10.2022 07:54
Eldflaugaskot Norður-Kóreumanna óásættanleg Norður-Kóreumenn skutu tveimur skammdrægum eldflaugum á loft í dag. Eldflaugarnar höfnuðu úti í sjó milli Norður-Kóreu og Japan og drifu um 350 kílómetra langt. Japanir segja tilraunirnar óásættanlegar. Erlent 8.10.2022 23:54
Börn meðal tíu látinna eftir sprengingu á Írlandi Tíu létust í sprengingu sem varð á bensínstöð í Donegal á Írlandi í gær. Barn og ungmenni eru meðal látinna. Forsætisráðherra segir þjóðina í sárum. Erlent 8.10.2022 22:55
Óskaði Pútín til hamingju með afmælið eftir sprenginguna Háttsettur embættismaður í Úkraínu birti mynd af sprengingunni á Kerch brúnni sem varð fyrr í morgun og óskaði Rússlandsforseta til hamingju með afmælið. Úkraínumenn hafa ekki lýst formlega yfir ábyrgð en sprengingin er sögð mikið högg fyrir Rússa. Erlent 8.10.2022 21:22
Villtum dýrum í Evrópu fjölgar á ný Aðgerðir til að fyrirbyggja útrýmingu villtra dýra hafa gefist afar vel á síðustu áratugum og nú er svo komið að dýr sem fyrir fáum áratugum voru í útrýmingarhættu farnast vel í villtri náttúru Evrópu. Evrópusambandið hyggst setja aðildarríkjum sínum enn strangari kröfur til að styrkja tilvist villtra dýra. Erlent 8.10.2022 16:18
Rússar segja þrjá hafa dáið í sprengingunni á Kerch brú Rússnesk yfirvöld halda því fram að þrír hafi dáið þegar sendiferðarbíll sprakk í loft upp á brúnni yfir Kerch sund í nótt, brúnni sem tengir Rússland við Krímskaga. Hluti brúarinnar féll í sprengingunni og hefur annar hluti staðið í ljósum logum síðan sprengingin varð. Erlent 8.10.2022 11:54
Sjö létust í sprengingu á Írlandi Minnst sjö eru látnir eftir að sprenging varð á bensínstöð í Donegal á Írlandi. Átta til viðbótar liggjá á sjúkrahúsi vegna sára sem þeir hlutu í sprengingunni. Erlent 8.10.2022 09:31
Brúin sem tengir Rússland við Krím stendur í ljósum logum Kerch brúin sem tengir Rússland við Krímskagann í Úkraínu stendur í ljósum logum eftir að gríðarstór sprenging varð fyrr í morgun. Brúin er sögð táknmynd hernáms Rússa á Krímskaga og hötuð af Úkraínumönnum. Erlent 8.10.2022 07:31
Einangraður einræðisherra sjötugur í dag Lík fimm hundruð þrjátíu og fjögurra, þar af nítján barna, hafa fundist í fjöldagröf á nýfrelsuðum svæðum í Kharkiv héraði í Úkraínu. Einnig hafa fundist rúmlega tuttugu staðir þar sem greinilegt er að rússneska hernámsliðið hafði stundað pyndingar á fólki. Leiðtogar Evrópusambandsins ræddu orkukreppu Evrópu vegna stríðsins í dag. Erlent 7.10.2022 19:33
Lausir úr skotgröfunum og vilja ekki leyfa Rússum að ná áttum Eftir að hafa að mestu setið fastir í skotgröfum um mánaða skeið meðan Rússar létu sprengjum rigna yfir þá, keppast úkraínskir hermenn nú við að gera gagnárásir á Rússa. Þeim hefur nokkrum sinnum tekist að stökkva Rússum á flótta sem á undanhaldinu hafa skilið eftir sig mikið magn þungavopna og annarra hergagna sem Úkraínumenn hafa notað í átökunum. Erlent 7.10.2022 16:50
Ættleiddir fá aðgang að öllum upplýsingum um sig Írsk stjórnvöld opnuðu vefsíðu í vikunni sem gerir fólki sem var ættleitt kleift að nálgast allar upplýsingar sem ríkið hefur um það, þar á meðal nafn lífmóður. Þúsundir írskra kvenna voru beittar þrýstingi til að gefa frá sér börn sín, sérstaklega á fæðingarheimilum sem kaþólska kirkjan rak. Erlent 7.10.2022 15:49
Samkynhneigður maður afhöfðaður á Vesturbakkanum Einn er í haldi palestínsku lögreglunnar vegna morðs á 25 ára gömlum samkynhneigðum karlmanni. Lík mannsins fannst afhöfðað í Hebron á Vesturbakkanum. Samtök hinsegin fólks í Ísrael segja að honum hafi borist hótanir vegna kynhneigðar sinnar. Erlent 7.10.2022 15:10
Ólýsanleg sorg þegar foreldrar sáu börnin sín eftir árásina Fjölskyldur barnanna sem létust í skotárás á leikskóla í Taílandi í gær voru óhuggandi þegar þeir sáu kistur barna sinna í dag. Stjórnmálamenn, þar á meðal forsætisráðherra Taílands, lögðu blóm að leikskólanum og konungshjónin munu heimsækja særða í dag. Af þeim 36 sem létust voru að minnsta kosti 24 börn. Erlent 7.10.2022 14:09
Aðgerðir lögreglu sagðar hafa valdið mannskæðum troðningnum Táragas sem lögreglumenn létu rigna yfir áhorfendur á knattspyrnuleik í Malang í Indónesíu um helgina er talið kveikjan að miklum troðningi sem varð að minnsta kosti 130 manns að bana. Aðgerðir lögreglu eru sagðar hafa stangast á við innlendar og alþjóðlegar reglur. Erlent 7.10.2022 14:04
Neita því að öryggissveitir hafi drepið sextán ára mótmælanda Írönsk yfirvöld hafna því að öryggissveitir hafi drepið sextán ára gamla stúlku á mótmælum sem brutust út í kjölfar dauða ungrar konu í haldi siðgæðislögreglu. Þau halda því fram að stúlkan hafi svipt sig lífi með því að kasta sér fram af húsþaki. Erlent 7.10.2022 12:09
Evrópuleiðtogar reyna að ná samkomulagi um hámarksverð á gasi Leiðtogar Evrópusambandsins reyna nú á 70 ára afmælisdegi Rússlandsforseta að ná samkomulagi um hámarksverð á gasi til heimila og fyrirtækja. Úkraínskar hersveitir halda áfram að endurheimta landsvæði í gagnsókn sinni gegn Rússum og Úkraínuforseti heitir því að endurheimta öll hertekin svæði, þeirra á meðal Krímskaga. Erlent 7.10.2022 11:49
Illdeilur í innsta hrings Pútíns sem tekur ákvarðanir í einrúmi Minnst einn maður úr innsta hring Vladimírs Pútins, hefur lýst yfir vanþóknun sinni á innrásinni í Úkraínu beint við rússneska forsetann. Vanþóknun þessi hefur aukist meðal hæstu stéttar Rússlands, samhliða slæmu gengi rússneska hersins í Úkraínu. Erlent 7.10.2022 11:44
Þúsundir hafi látist í hitabylgjunum í Bretlandi í sumar Á þriðja þúsund manns, 65 ára og eldri, létust á meðan hitabylgjum í Bretlandi stóð í sumar en alls voru umfram dauðsföll 2.803 talsins í sumar og hefur umfram dánartíðni hjá þessum aldurshóp ekki verið meiri frá árinu 2004. Hátt í fimmtán hundruð umfram dauðsföll voru skráð á einu tímabili í ágúst. Erlent 7.10.2022 10:32
Telja Trump enn vera með opinber gögn Starfsmenn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna telja Donald Trump, fyrrverandi forseta, enn hafa opinber gögn í vörslu sinni. Hann hafi ekki enn ekki skilað öllum þeim skjölum sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu á sínum tíma. Erlent 7.10.2022 10:10
Hljóta friðarverðlaunin fyrir mannréttindabaráttu í Rússlandi, Úkraínu og Hvíta-Rússlandi Hvítrússneski baráttumaðurinn Ales Bialiatski, rússnesku mannréttindasamtökin Memorial og úkraínsku mannréttindasamtökin Miðstöð um borgararéttindi hljóta í sameiningu friðarverðlaun Nóbels í ár. Erlent 7.10.2022 09:06
Árásarmaðurinn í Kanada einn að verki og myrti bróður sinn Kanadíska lögreglan segir nú að karlmaður sem stakk ellefu manns til bana í Saskatchewan í síðasta mánuði hafi verið einn að verki. Hann hafi einnig myrt bróður sinn sem var í fyrstu talinn hafa tekið þátt í morðæðinu. Erlent 7.10.2022 08:57
Segist ætla að efla rétt kvenna með því að leggja jafnréttisráðuneytið niður Yoon Suk-yeol, forseti Suður-Kóreu, hefur varið þá ákvörðun sína að leggja niður jafnréttismálaráðuneyti landsins. Heldur forsetinn því fram að ákvörðunin muni í raun verða til þess að efla réttindi kvenna. Erlent 7.10.2022 08:39
Sagt upp því áfanginn var of erfiður Kennara við Háskólann í New York var nýlega sagt upp eftir að nemendur hans kvörtuðu yfir því að áfangi hans væri of erfiður. Samstarfsmenn kennarans hafa kvartað yfir uppsögninni. Erlent 7.10.2022 08:33
Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Norska Nóbelsnefndin tilkynnir í dag hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels fyrir árið í ár. Erlent 7.10.2022 08:31
Stytturnar á Páskaeyju verulega skemmdar eftir bruna Nokkrar af heimsfrægu styttunum á Páskaeyju eru verulega skemmdar eftir sinubruna á svæðinu þar sem þær eru staðsettar. Talið er að eldurinn sé af mannavöldum. Erlent 7.10.2022 07:32