Innlent
183 184 185 186 187 188 189 190 191 … 334 ›
Telja að Quang gæti spillt rannsókninni gangi hann laus Quang Lé og tveir sem grunaðir eru um mansal munu þurfa að sæta gæsluvarðhaldi lengur en lög kveða almennt á um. Lögreglufulltrúi segir að umfang málsins kalli á lengra varðhald svo rannsóknarhagsmunum verði ekki spillt áður en ákæra er gefin út. Innlent 22.5.2024 12:03
Hendrik Hermannsson bráðkvaddur Hendrik Björn Hermannsson veitingamaður er látinn en hann var aðeins 49 ára gamall. Hendrik varð bráðkvaddur, hann hneig niður um hádegi á mánudag og tókst ekki að hnoða í hann lífi en sjúkrabíll fór með hann til móts við sjúkraþyrlu. Innlent 22.5.2024 11:50
Fangi segir fangelsin „mislélegar kjötgeymslur“ Ólafur Ágúst Hraundal fangi segir of lítið gert fyrir fanga og úrræðaleysið mikið. Hann segir metnaðarleysi núverandi forstöðumanns fangelsanna að Litla-Hrauni, Hólmsheiði og Sogni nær algert. Hann gagnrýnir sinnuleysi starfsmanna og spyr hvernig samfélagið vilji fá fanga aftur út eftir afplánun. Innlent 22.5.2024 11:45
AGS vill skattahækkanir og Norðmenn viðurkenna Palestínu Í hádegisfréttum verður rætt við formann sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem verið hefur hér á landi síðustu daga. Innlent 22.5.2024 11:39
Æsandi bíltúr norður í land Ásdís Rán Gunnarsdóttir, Ástþór Magnússon og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir ætla að bruna sem leið liggur norður til Akureyrar í dag þar sem forsetakvöldvaka fer fram á Græna hattinum. Von er á æsandi bíltúr að sögn Steinunnar. Auk þeirra þriggja mæta Helga Þórisdóttir og Viktor Traustason á samkomustað þeirra Akureyringa í göngugötunni. Auglýst er eftir gítarleikara. Innlent 22.5.2024 11:17
Enn frestast utankjörfundaratkvæðagreiðslan Utanríkisráðuneytið neyðist til að fresta til föstudags boðaðri utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi forsetakosninga sem átti að fara fram á Gran Canaria á Spáni í dag. Það stafar af því að hluti kjörgagna sem send voru með forgangi á staðinn skiluðu sér ekki á áfangastað. Innlent 22.5.2024 10:48
Þjóðin klofin hvað varðar hvalveiðar Samkvæmt nýrri könnun Maskínu eru 49 prósent þjóðarinnar andvíg því að leyfi Hvals hf. til veiða á langreyði verði endurnýjað. 35 prósent eru því hlynnt og 16,5 prósent eru hvorki hlynnt né andvíg. Innlent 22.5.2024 10:09
Aþena Sif dæmd fyrir stórfellda líkamsárás með Butterfly-hnífi Aþena Sif Eiðsdóttir, 23 ára kona, hefur verið dæmd í fjögurra ára óskilorðsbundið fangelsi. Hún var sakfelld fyrir stórfellda líkamsárás, með því að stinga aðra konu með svokölluðum butterfly-hnífi fimm sinnum í september árið 2022. Ekki var fallist á að um hafi verið að ræða tilraun til manndráps. Innlent 22.5.2024 09:25
Yngstu börnin um 14 til 15 mánaða við innritun í haust Innritun leikskólabarna er vel á veg komin í flestum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Í Reykjavík er búið að bjóða 1.715 börnum leikskólapláss. Meðalaldur við innritun er í kringum 22 mánuðir. Innlent 22.5.2024 08:00
Veittist að fólki með hníf í miðborginni Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í gærkvöldi eftir að tilkynnt var um mann sem var að veitast að fólki með hníf í miðborg Reykjarvíkur. Við rannsókn á málinu reyndist enginn alvarlega slasaður. Innlent 22.5.2024 06:25
Ekur 44 kílómetra með ruslið og er ósáttur við sorphirðugjald Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu íbúa í Borgarbyggð um að felld verði úr gildi ákvörðun sveitarfélagsins Borgarbyggðar um álagningu gjalds vegna reksturs grenndar- og móttökustöðvar sorps í sveitarfélaginu. Gjaldið er um 32 þúsund krónur. Innlent 22.5.2024 06:16
Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Flugáhugamönnum bauðst í kvöld að skoða eldgamlar herflugvélar úr seinni heimsstyrjöld á Reykjavíkurflugvelli. Þrjár flugvélanna fljúga áleiðis til Bretlands í fyrramálið. Innlent 21.5.2024 23:30
Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Magnús Davíð Norðdahl, borgarfulltrúi Pírata, segir þá fimm frambjóðendur sem búa yfir mestu fylgi í komandi forsetakosningum hafa tromp á hendi séu þeir ekki sigurvissir er nær dregur kjördegi. Ekki geti þeir allir orðið forseti en dragi eitt þeirra framboð sitt til baka og lýsi yfir stuðningi við meðframbjóðenda gæti sá hinn sami ráðið úrslitum að miklu leyti. Innlent 21.5.2024 21:41
Pétur Jökull ákærður í stóra kókaínmálinu Héraðssaksóknari gaf í dag út ákæru á hendur Pétri Jökli Jónassyni fyrir aðild að innflutningi á nærri hundrað kílóum af kókaíni til landsins fyrir tveimur árum síðan. Fjórir hafa þegar verið dæmdir í þessu svokallaða stóra kókaínmáli sem er stærsta kókaínmál Íslandssögunnar. Innlent 21.5.2024 20:26
Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Tveir nýir prestar og tveir nýir djáknar hafa verið vígðir til embættis í fjórum mismunandi kirkjum. Athöfnin fór fram í Skálholtsdómkirkju þar sem vígslubiskupinn á staðnum brá sér í hlutverk biskups Íslands til að sjá um vígsluna að viðstöddum tíu prestum, sem voru vígsluvottar, auk þriggja djákna. Innlent 21.5.2024 20:15
Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Vanir flugfarþegar þekkja það að upplifa mikla ókyrrð um borð. Það getur valdið örum hæðabreytingum í flugi og veldur mörgum einnig miklum óþægindum. Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir ástæðu fyrir því að mælst sé til þess að farþegar sitji með sætisólar spenntar á meðan flugi stendur. Innlent 21.5.2024 19:54
Kjósendur eiga miserfitt með að ákveða sig Kjósendur sem kusu utan kjörfundar í Reykjavík í dag áttu miserfitt með að ákveða sig. Kjörsókn utan kjörfundar er töluvert dræmari nú en í síðustu forsetakosningum enda mun fleiri frambjóðendur í boði. Innlent 21.5.2024 19:31
Deginum ljósara að það verði ekki veitt í sumar Matvælaráðuneytið hefur enn ekki svarað umsókn Hvals hf. um veiðileyfi í sumar. Um hálfur mánuður er þar til veiðitímabilið hefst. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segist viss um að með þessu baki ráðuneytið íslenska ríkinu skaðabótaskyldu og telur ómögulegt að úr sumarvertíðinni rætist. Innlent 21.5.2024 18:45
Spenna við Svartsengi, hvalveiðar í uppnámi og flugvélar í beinni Matvælaráðuneytið hefur enn ekki svarað umsókn Hvals hf. um veiðileyfi í sumar þrátt fyrir að veiðitímabilið ætti að hefjast eftir einungis um hálfan mánuð. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segist viss um að með þessu baki ráðuneytið íslenska ríkinu skaðabótaskyldu og telur ómögulegt að úr sumarvertíðinni rætist. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 21.5.2024 18:00
Utanríkisráðuneytið harmar skort á kjörseðlum Utanríkisráðuneytið harmar það að borið hafi á skorti á kjörseðlum vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á Spáni fyrir komandi forsetakosningar á Íslandi. Uppnám varð á kjörfundi á eyjunum Tenerife og Gran Canaria í gær þegar ljóst varð að of fáir kjörseðlar hafi verið á kjörstað. Innlent 21.5.2024 17:50
Bjarni í heimsókn í Malaví Bjarni Benediktsson forsætisráðherra er í opinberri heimsókn í Malaví í tilefni af 35 ára afmæli þróunarsamvinnu ríkjanna. Hann lagði af stað fyrir helgi og stefnir á að dvelja í landinu fram á föstudag. Innlent 21.5.2024 17:19
Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Slökkviliðið í Vestmannaeyjum slökkti eld í fjórum fjórfjólum í brekkunni á leiðinni upp í Stórhöfða. Talið er að eldinn megi rekja til bilunar í einu hjólinu. Innlent 21.5.2024 16:17
„Ömurleg staða að vera settur í“ Degi áður en til stóð að halda íbúakosningu í Ölfusi heldur bæjarstjórnin neyðarfund og ákveður að fresta kosningunni. Hvað gerðist? Elliði Vignisson bæjarstjóri er ekki alveg viss. Innlent 21.5.2024 15:59
Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi Aðalstjórn Þróttar segir tillögu skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur um byggingu unglingaskóla í Laugardal hafa komið félaginu í opna skjöldu. Ein af þremur mögulegum staðsetningum slíks skóla er á íþróttasvæði Þróttar sem þeir rauðu og hvítu segja ekki koma til greina. Innlent 21.5.2024 15:32
„Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Prófessor í jarðeðlisfræði segir aukinn þrýsting í borholum HS veitna á Svartsengi í morgun bera þess merki um að jarðskorpan sé mjög nálægt því að bresta. Hann segir þá sem dvelja í Grindavík ættu að vera undir það búnir að yfirgefa bæinn á fimmtán mínútum. Grindavík sé ekki staður fyrir partýstand né börn. Innlent 21.5.2024 15:30
Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Gamlar herflugvélar úr síðari heimsstyrjöld af gerðinni DC-3, eða C-47 Douglas Dakota, verða til sýnis á Reykjavíkurflugvelli í kvöld. Þær standa á flughlaðinu norðan við gamla Loftleiðahótelið og verður svæðið opið almenningi milli klukkan 18 og 20. Innlent 21.5.2024 14:47
Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Kjartan Sigurðsson athafnamaður frá Grindavík skipuleggur nú, ásamt öðrum, hópmálsókn á hendur íslenska ríkinu vegna þeirra skilyrða sem sett hafa verið við uppkaup fasteigna í Grindavík. Samkvæmt skilmálum Þórkötlu fasteignafélags er einstaklingum sem eiga íbúðarhúsnæði gefinn kostur á að selja félaginu fasteign sína. Innlent 21.5.2024 14:40
Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Landsmönnum líst best á það að Baldur Þórhallsson eða Halla Tómasdóttir verði næsti forseti Íslands. Fjórum af hverjum fimm líst illa á að Ástþór Magnússon verði forseti. Innlent 21.5.2024 14:39
Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi Nýr samningur milli Sjúkratrygginga og Félags sjúkraþjálfara til fimm ára var undirritaður í dag og staðfestur af Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra Innlent 21.5.2024 14:17
„Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Mál Arnars Þórs Jónssonar forsetaframbjóðanda á hendur Halldóri Baldurssyni skopmyndateiknara og Vísis varðar tjáningarfrelsið og því ekki úr vegi að kalla til Róbert Spanó, lagaprófessor og fyrrum forseta Mannréttindadómsstóls Evrópu til að á lögfræðilegt álit á málinu. Innlent 21.5.2024 12:51