Innlent
328 329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Svakalegur tími í að snúa ferðamönnum við Björgunarsveitarkona sem sinnti gosgæslu í kvöld segir svakalegan tíma hafa farið í að spjalla við ferðamenn og snúa þeim við sem hyggjast ætla að gosi. Þá sé töluverður fjöldi sem stöðvi bíl sinn á Reykjanesbrautinni. Innlent 19.12.2023 22:31
Fannst kaldur og hrakinn á gossvæðinu Þyrla Landhelgisgæslunnar auk björgunarsveita var kölluð út fyrr í kvöld til leitar að manni á gossvæðinu sem gaf flugvél sem þar átti leið hjá neyðarmerki. Maðurinn fannst fyrir stundu, kaldur og hrakinn. Innlent 19.12.2023 21:08
Sinna vaktinni allan sólarhringinn Vettvangsstjórn á hættusvæðinu sinnir eftirliti með gossvæðinu allan sólarhringinn auk aðgerðarstjórnar. Varðstjóri segir stöðuna sífellt endurmetna. Innlent 19.12.2023 20:59
Fólk geti verið sátt að hraun renni ekki í átt til Grindavíkur Kristín Jónsdóttir eldfjalla- og jarðskjálftasérfræðingur, segir helst hættu á að hraun flæði yfir Grindavíkurveg nái það til mannvirkja. Fólk megi vera sátt við það hvar gosupptök voru fyrst úr varð. Innlent 19.12.2023 18:49
Fyrirvari á nýjum sprungum geti verið mjög stuttur Veðurstofan hefur gefið út nýtt hættumatskort byggt á túlkun nýjustu gagna og út frá stöðu virkninnar í eldgosinu við Sundhnúksgíga. Hætta hefur aukist umtalsvert á öllum svæðum sem skilgreind voru á eldra hættumatskorti. Áfram eru taldar líkur á frekari gosopnunum. Innlent 19.12.2023 18:37
Lögreglan á Akureyri leitar manns með heilabilun Lögreglan á Akureyri hefur lýst eftir manni um sjötugt, sem þjáist af heilabilun. Maðurinn er talinn hafa farið fótgangandi úr húsi á Suðurbrekkunni á Akureyri síðdegis en hann á heima í Giljahverfi. Innlent 19.12.2023 18:13
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Dregið hefur úr krafti eldgossins norðan við Grindavík sem þó er mun stærra en síðustu gos á Reykjanesi. Sprungan sem var um fjögurra kílómetra löng er orðin að nokkrum gosopum. Innlent 19.12.2023 18:02
Markús í leyfi vegna meints eineltis Markús Ingólfur Eiríksson, fráfarandi forstjóri HSS hefur verið sendur í leyfi vegna ætlaðs eineltis. Til stóð að hann myndi starfa út skipunartíma sinn sem rennur út í febrúar. Innlent 19.12.2023 17:50
Tilboð upp á 1,2 milljarð í 17,5 hektara land á Selfossi Sveitarfélagið Árborg auglýsti nýlega 17,5 hektara land til sölu í svokölluðu Björkurstykki á Selfossi en tilboðin voru opnuð nú síðdegis. Um er að ræða vel staðsett land, sem er ætlað undir íbúðabyggð. Landið er ekki deiliskipulagt en fyrirliggjandi eru deiliskipulagstillögur frá nóvember 2021. Þær tillögur gera ráð fyrir allt að 296 íbúða byggð en hugmyndir eru uppi um að fjöldi íbúða á landinu geti orðið allt að 360. Innlent 19.12.2023 17:31
Kröfur Sýnar gegn Jóni Einari ekki nægilega skýrar Stefnu Sýnar á hendur Jóni Einari Eysteinssyni hefur verið vísað frá héraðsdómi. Sýn höfðaði mál á hendur honum fyrir að hafa gegn betri vitund selt ótilgreindum fjölda fólks aðgang að læstri dagskrá sjónvarpsstöðva og streymisveitu félagsins. Innlent 19.12.2023 17:13
Lónstaða Þórisvatns með versta móti Landsvirkjun hefur skert raforku til stórnotenda á suðvesturhluta landsins. Ert það gert vegna lélegs vatnsbúskaps en lónstaða Þórisvatns er með versta móti. Innlent 19.12.2023 16:59
Svipuð kvika en mögulega þróaðri Helga Kristín Torfadóttir eldfjallafræðingur, er komin með sýni úr glænýju hrauninu á Reykjanesi. Hún er ein fræðinga frá Háskóla Íslands sem freistuðu þess að finna sýni úr kvikunni í dag, hvort sem það var fljótandi eða ekki. Innlent 19.12.2023 16:52
Guðlaug Rakel nýr forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir hefur verið skipuð forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) til næstu fimm ára af Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra. Fráfarandi forstjóri stendur nú í málarekstri gegn ráðherra. Innlent 19.12.2023 16:42
MAST mátti ekki slátra skepnum Guðmundu Ákvörðun Matvælastofnunar um að vörslusvipta Guðmundu Tyrfingsdóttur bónda búfénaði sínum og slátra honum hefur verið úrskurðuð ólögmæt af matvælaráðuneytinu. Lögmaður Guðmundu segir Guðmundu sátta með úrskurðinn þó dýrin snúi aldrei heim. Innlent 19.12.2023 16:36
Segir mikilvægt að Grindvíkingar fái andrými Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Grindvíkingur segir mikilvægt að stuðningur stjórnvalda við Grindvíkinga haldi áfram þrátt fyrir að styttist vonandi í að þeir geti farið að fara heim. Innlent 19.12.2023 16:11
Refsiábyrgð heilbrigðisstofnana orðin að lögum Frumvarp Willums Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra um refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rannsóknir alvarlegra atvika hefur verið samþykkt á Alþingi. Markmið laganna er að auka öryggi sjúklinga og segir ráðherra þau marka tímamót. Innlent 19.12.2023 16:06
Gosið hafi lítil áhrif á björgunarsveitir í bili Eldgosið við Sundhnúksgíga hefur lítil áhrif á störf björgunarsveita á landinu enn sem komið er. Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir tímann þurfa að leiða í ljós hvort ræsa þurfi út sveitir alls staðar að til þess að gæta galvaskra göngumanna. Innlent 19.12.2023 15:42
Fylgjast með hraunlíkönum og hvort nýjar sprungur myndist Benedikt Gunnar Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir jarðvísindamenn nú fylgjast með hraunlíkönum og hvort það séu nýjar sprungur að myndast við kvikuganginn á Reykjanesskaga. Innlent 19.12.2023 15:39
Lagt til að Svanhildur verði sendiherra í Bandaríkjunum Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra hefur lagt til að Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, verði nýr sendiherra Íslands í Washington í Bandaríkjunum. Þetta staðfestir Svanhildur við fréttastofu. Innlent 19.12.2023 15:27
Ekki samstaða innan ASÍ um áherslur í komandi kjaraviðræðum Ekki tókst að ná samstöðu um að landsambönd og félög innan Alþýðusambandsins fari sameiginlega fram í viðræðum við Samtök atvinnulífsins í komandi kjaraviðræðum. Forseti ASÍ segir samningaviðræður geta orðið flóknari fyrir vikið en vonar engu að síður að nýir samningar náist áður en núgildandi samningar renna út í lok janúar. Innlent 19.12.2023 15:19
Dæmdir fyrir að aka um á vespu og fremja vopnuð rán Tveir karlmenn hafa hlotið fangelsisdóma fyrir fjölda brota, meðal annars vopnað rán sem framið var í Fossvogi og annað eins í Hamraborg skömmu síðar. Innlent 19.12.2023 15:10
Myndasyrpa: Rauðglóandi næturhiminn og myndun nýrra gíga Eldgosinu, sem hófst við Sundhnúksgíga seint í gærkvöldi, er ekki hægt að lýsa öðruvísi en stórfenglegu. Fjöldi fólks lagði leið sína í átt að eldgosinu til að berja það augum og næturhimininn var rauður vegna endurvarpsins frá eldinum. Innlent 19.12.2023 15:09
Eldfjallafræðingar freista þess að ná sýnum úr eldgosinu Eldfjallafræðingar frá Háskóla Íslands freista þess nú að taka stöðuna og ná sýnum af eldgosinu. Eldfjallafræðingur segir aðgerðina taka einhverjar klukkustundir og mikilvægt sé að nýta dagsbirtuna vel. Innlent 19.12.2023 14:23
Sjónarspil gærkvöldsins engu líkt „Sú sjón sem við sáum í gærkvöldi og náðum að fanga var eitthvað sem við höfum ekki séð síðan þessir eldar byrjuðu á Reykjanesi árið 2021,“ segir myndatökumaðurinn Björn Steinbekk. Hann flaug dróna sínum yfir eldgosinu í nótt. Innlent 19.12.2023 14:17
Skella í lás á Húsavík Tekin hefur verið ákvörðun um að loka starfsstöð Persónuverndar á Húsavík og hefur tveimur starfsmönnum verið sagt upp. Starfsstöðin mun loka dyrum sínum um áramót. Forstjóri segir fjárlaganefnd ekki hafa veitt styrk til verkefnisins og því hafi þurft að loka. Innlent 19.12.2023 14:06
Nokkrum göngumönnum snúið við í morgun Hlynur Stefánsson björgunarsveitarmaður, sem staðið hefur vaktina við eldgosið á Reykjanesskaga, segir vinnu björgunarsveitar hafa gengið vel. Fólk hafi farið að fyrirmælum um að vera ekki á svæðinu. Innlent 19.12.2023 13:30
Taldi niður sekúndurnar þar til konur myndu deyja Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás gegn tveimur konum og hótunarbrot, með því að hafa hótað þeim lífláti og talið niður sekúndur þar til að þær létust. Innlent 19.12.2023 13:18
Átta sækja um embætti forstjóra Veðurstofunnar Átta sóttu um embætti forstjóra Veðurstofu Íslands sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í síðasta mánuði. Innlent 19.12.2023 13:11
Gosmengun á höfuðborgarsvæðinu í nótt Einar Halldórsson teymisstjóri loftgæðateymis Umhverfissstofnunar segir að gosmengunar gæti orðið vart á höfuðborgarsvæðinu seint í nótt eða fyrramálið. Það kemur einnig fram í tilkynningu á síðu Veðurstofunnar. Innlent 19.12.2023 12:58
Fólk geti komið sér í þannig ógöngur að ekki sé hægt að bjarga því Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, biðlar til fólks að fylgja fyrirmælum stjórnvalda varðandi eldgosið. Fólk sem fari að gosinu í óleyfi geti komið sér í þá stöðu að ekki verði hægt að bjarga því. Innlent 19.12.2023 12:57