Lífið
330 331 332 333 334 ›
Taktu þátt í að búa til „helvítis djöfulsins hávaða“ Á morgun, laugardaginn 9. júlí, opnar Curver Thoroddsen hljóðinnsetninguna Helvítis djöfulsins hávaða (riffasúpu dauðans) í Gömlu netagerðinni á Neskaupstað. Innsetningin er hluti af listahátíðinni Innsævi í Fjarðabyggð og er verkið gert í samvinnu með Eistnaflugi og gestum þess. Tónlist 8.7.2022 13:08
Tarantino segir Gurru grís vera bestu útflutningsvöru Breta Quentin Tarantino, kvikmyndaleikstjóri, hefur horft mikið á teiknimyndaþættina Gurru grís með tveggja ára syni sínum, Leo. Tarantino nýtur þáttanna ekki síður en sonurinn og sagði nýlega að Gurra grís væri „besta útflutningsvara Breta á þessum áratugi.“ Bíó og sjónvarp 8.7.2022 12:56
Kara hvetur fólk til að gera betur Kara Kristel Signýjardóttir er förðunarfræðingur, móðir og áhrifavaldur með meiru. Hún er með stóran fylgjendahóp og hefur nú nýverið fjallað um skaðsemi tískuiðnaðarins á Instagram og gert tilraun til þess að ýta undir umhverfisvænni neyslumynstur hjá fylgjendum sínum. Lífið 8.7.2022 12:31
Nýtt lag frá Emmsjé Gauta Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti var að gefa út lagið HVAÐ ER AÐ FRÉTTA í dag. Það er mikið um að vera hjá Gauta í sumar en blaðamaður tók púlsinn á honum og fékk að heyra nánar frá því. Tónlist 8.7.2022 11:31
Frumsýning á Vísi: Sigga Beinteins rifjar upp rokktakta frá níunda áratugnum í Reykjavík brennur Sigga Beinteins og Karl Orgeltríó gáfu saman út lagið Reykjavík brennur í gær og nú frumsýnir Vísir tónlistarmyndbandið við lagið. Að sögn Karls Olgeirssonar er lagið afturhvarf til uppruna Siggu Beinteins þegar hún var í rokkhljómsveitinni Kikk á níunda áratugnum. Tónlist 8.7.2022 11:02
Eina eintak endurupptöku á smáskífu Bob Dylan seldist á 200 milljónir Endurupptaka Bob Dylan á lagi sínu „Blowin‘ in the Wind“ seldist á uppboði í gær á eina og hálfa milljón dollara, rúmlega tvö hundruð milljónir króna. Endurupptakan er sú eina sem til er í heiminum. Lífið 8.7.2022 10:33
„Stimplaðar sem einungis kyntákn“ Söngkonan Helga Soffía, einnig kölluð Heía var að gefa út sitt fyrsta lag eftir að hafa verið uppgötvuð í skólasöngleiknum Clueless. Ásamt því að syngja er hún einnig lagahöfundur og leikkona sem er að vinna að sinni fyrstu EP plötu. Lífið 8.7.2022 10:31
„Það er yfirþyrmandi að fá þessar upplýsingar“ Anna María Milosz kom upphaflega til Íslands frá Póllandi sem Au pair, sneri svo aftur til Póllands en ástin kallaði á hana til baka. Anna upplifði það nokkrum árum síðar að greinast með krabbamein í nýju landi. Lífið 8.7.2022 09:00
„Sorg er ekki eitthvað sem maður jafnar sig á“ Kvíðakastið fór í loftið í lok síðasta árs og er með það markmið að fræða hlustendur um geðheilsu og geðheilbrigði. Það eru þau Sturla Brynjólfsson, Katrín Mjöll Halldórsdóttir og Nína Björg Arnarsdóttir sem eru teymið á bak við hlaðvarpið en öll eru þau barnasálfræðingar á Litlu Kvíðameðferðarstöðinni. Lífið 7.7.2022 22:00
Stórleikarinn James Caan er látinn Stórleikarinn James Caan er látinn. Fjölskylda hans tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum um klukkan fimm í dag, að íslenskum tíma, en hann var 82 ára gamall og átti fimm börn, þar á meðal leikarann Scott Caan. Lífið 7.7.2022 17:26
Til mikils að vinna slái maður ekki garðinn sinn Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur mætti í Bítið til að ræða um Villigarðahreyfinguna sem hefur talað fyrir því að fólk slái ekki garða sína og hvað maður gæti grætt á að leyfa garðinum að vaxa villtum. Hún segir að slái maður ekki garðinn sinn geti ýmsar skemmtilegar plöntur farið að vaxa auk þess sem það viðhaldi líffræðilegum fjölbreytileika. Lífið 7.7.2022 14:30
„Hann er svolítið að skíta upp á bak í lífinu“ Haraldur Ari Stefánsson fer með hlutverk Ása í nýju hljóðseríunni Skerið sem kom út í sex pörtum hjá Storytel. Sjálfur ólst hann upp við að hlusta á útvarpsleikrit á kasettu með bræðum sínum fyrir svefninn en pabbi hans, Stefán Jónsson, hefur einnig leikið í nokkrum slíkum. Menning 7.7.2022 13:30
Kótelettan:„Það var gríðarlega góð mæting hjá okkur í fyrra og frábær stemmning“ Fjölskylduhátíð Kótelettunar verður haldin í tólfta sinn á Selfossi um helgina. Meðal dagskrárliða eru Stóra Grillsýningin, Styrktarlettur SKB og Veltibillinn. Einnig er dagskrá á sviðinu fyrir alla fjölskylduna þar sem XXX Rottweilerhunda, Stuðmenn og Aldamótatónleikarnir stíga m.a. á stokk. Lífið 7.7.2022 12:31
Frumsýning á nýrri útgáfu af Lífið er yndislegt Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á glænýrri útgáfu af Lífið er yndislegt þar sem tónlistarfólkið Klara Elias og Hreimur syngja órafmagnaða útgáfu af þessu sögulega Þjóðhátíðarlagi. Tónlist 7.7.2022 11:31
Bubbi Morthens með nýtt lag Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens gaf út nýtt lag í dag sem heitir „Sunnudagur (með laugardagskvöld í fanginu). Hann segir lagið gefa til kynna það sem sé væntanlegt á næstu mánuðum. Lífið 7.7.2022 10:30
„Fullnægjandi að segja satt“ Rithöfundurinn og lífskúnstnerinn María Elísabet Bragadóttir er að senda frá sér nýja bók í dag. Bókin ber nafnið Sápufuglinn og verður útgáfunni fagnað í Mengi í dag klukkan 17:00 ásamt Brynju Hjálmsdóttur, sem er að gefa út leikverkið Ókyrrð. Blaðamaður tók púlsinn á Maríu Elísabetu og fékk nánari innsýn í hennar skapandi hugarheim. Menning 7.7.2022 10:01
Frumsýna nýja útgáfu á sögulegu Þjóðhátíðarlagi á Vísi á morgun Klara Elias og Hreimur frumsýna nýja og órafmagnaða útgáfu af Lífið er yndislegt hér á Lífinu á Vísi á morgun klukkan 11:30. Hreimur gerði lagið sögulegt á sínum tíma en Lífið er yndislegt er eitt þekktasta Þjóðhátíðarlag allra tíma. Tónlist 6.7.2022 20:00
Reynslumesta flugfreyja heims fagnar 65 ára starfsafmæli Bette Nash hefur unnið sem flugfreyja hjá American Airlines í 65 ár og var nýlega skráð af Heimsmetabók Guinness sem reynslumesta flugfreyja heims. Hún byrjaði ferilinn sem flugfreyja árið 1957 og er enn að, 65 árum síðar. Lífið 6.7.2022 17:12
Sjálfsrækt í sumarfríinu: „Fólk er mjög gjarnt á að forgangsraða ekki sjálfsumhyggju“ Jóga- og hugleiðslukennarinn Erla Súsanna Þórisdóttir nýtur þess að iðka sjálfsumhyggju á hverjum degi. Það gerir hún meðal annars með hugleiðslu, öndun, jóga, dagbókarskrifum, skógarböðum og dansi. Hún heldur úti miðlinum Töfrakistan þar sem hún gefur innsýn í lífið sitt og deilir góðum ráðum. Lífið 6.7.2022 15:31
Iceland Airwaves og SAHARA Festival í samstarf Iceland Airwaves tónlistarhátíð og SAHARA Festival markaðsráðstefnan hafa farið í samstarf og halda eina sameiginlega hátíð og mun hún fara fram í nóvember. Lífið 6.7.2022 14:30
Var látin vigta sig í beinni Victoria Beckham rifjar upp slæma lífsreynslu þegar hún var látin vigta sig í beinni útsendingu skömmu eftir að hafa eignast frumburðinn sinn Brooklyn í viðtali við Vogue Ástralíu. Lífið 6.7.2022 13:31
„Meira er meira“ Hljómsveitin Ultraflex var að senda frá sér glænýtt lag og tónlistarmyndband. Lagið ber nafnið Mi Vuoi og fá þær hér tónlistarkonuna Kuntessa til liðs við sig. Tónlist 6.7.2022 12:31
„Þá var ekkert annað í stöðunni en að finna sér einhvern tilgang í lífinu“ Rithöfundurinn Rebekka Sif Stefánsdóttir hefur starfað sem söngkona og söngkennari frá því að hún var tvítug. Í ár er hún að gefa út hvorki meira né minna en tvær skáldsögur með þriggja mánaða millibili. Hún fann sinn tilgang í skrifunum þegar Covid faraldurinn skall á. Lífið 6.7.2022 11:01
Pure: Á flótta undan klúrum hugsunum Ríkissjónvarpið lauk nýlega sýningum á gamanþáttaröðinni Pure frá Channel 4, sem hægt er að streyma til 28. júlí. Hún fjallar um unga skoska konu, Marnie, sem á yfirborðinu virðist með öllu eðlileg. Hins vegar krauma ýmsar óþægilegar hugsanir undir yfirborðinu; hún getur alls ekki hætt að sjá fyrir sér fólk að gera kynferðislega hluti. Gagnrýni 6.7.2022 09:20
Garden Party: Mezzoforte, búbblur og Bríet Þann 13. ágúst fer fjölskylduhátíðin Garden partý fram í Laugardalnum en hátíðin er hugsuð sem lítil bæjarhátíð fyrir Reykjavík. Tónlistarmennirnir Bríet, Frikki Dór, Birnir, Reykjavíkurdætur, Hipsumhaps og Mezzoforte munu koma fram og skemmta lýðnum. Lífið 6.7.2022 09:10
Carlos Santana hneig niður á tónleikum Gítargoðsögnin Carlos Santana hneig niður á tónleikum sínum í Detroit í gær. Að sögn umboðsmanns hans er líðan hans góð núna. Lífið 6.7.2022 08:37
Helvítis kokkurinn: Pulled pork samloka Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+ í sumar. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og munu þeir koma inn vikulega. Lífið 6.7.2022 07:01
„Mjög gaman og mikill heiður að hátíðin vilji nota lagið okkar“ Hljómsveitin Poppvélin gaf út lagið „Bærinn minn“ í dag og er það lag hátíðarinnar Hjarta Hafnarfjarðar í ár. Lagið spilar inn nostalgíuna og hjálpar hlustandanum að rifja upp góðar minningar frá æskuslóðunum. Lífið 5.7.2022 22:01
Eins og þruma úr heiðskíru lofti Óvænt árás mávs á rottu á Kársnesi náðist á myndband í dag. Mávurinn steypti sér úr loftinu á miklum hraða og greip rottuna í gogginum. Rottan féll skömmu síðar aftur til jarðar. Lífið 5.7.2022 20:44
Fimmtán ára vill bæjarstjórastólinn: „Ég hef allavega stuðning félaga minna“ Mosfellingur á sextánda aldursári hefur sótt um stöðu bæjarstjóra í sveitarfélaginu. Meðal stefnumála hans er að styðja betur við kennara og gera Mosó að grænna samfélagi. Lífið 5.7.2022 20:07