Tónlist
185 186 187 188 189 190 191 192 193 … 226 ›
Hádegistónleikar af stað að nýju Fyrstu tónleikar vetrarins í hádegistónleikaröð Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar, fara fram í hádeginu í dag. Þar stíga á stokk þau Antonía Hevesi píanóleikari og Gissur Páll Gissurarson tenór og flytja nokkur vel valin sönglög fyrir viðstadda. Tónlist 4.9.2008 06:00
Með fjórar tilnefningar Hljómsveitin Coldplay hefur fengið fjórar tilnefningar til bresku Q-tónlistarverðlaunanna. Meðal annars er hún tilnefnd fyrir bestu plötuna, Viva La Vida or Death and All His Friends. Tónlist 4.9.2008 03:45
Endaði í súrrealískri martröð Ultra mega technobandið Stefán ferðast með Sirkusi AgorA, en eins og frést hefur féll ein sýningarstúlkan þeirra á mánudaginn. „Við vorum baksviðs þegar þetta gerðist.“ segir Sigurður Ásgeir Árnason, söngvari UMTBS. Hann segir þá ekki hafa vitað hvað gerðist fyrr en sjúkrabílarnir komu. Tónlist 4.9.2008 03:45
Einhverjir virðast hafa saknað okkar Breska hljómsveitin Tindersticks heldur tónleika á Nasa 11. september næstkomandi Af því tilefni sló Trausti Júlíusson á þráðinn til söngvarans Stuart Staples sem var staddur á heimili sínu í Limousin í Frakklandi. Tónlist 4.9.2008 03:30
Djassinn dunar Jazzhátíð Reykjavíkur heldur áfram í kvöld með forvitnilegri dagskrá. Tónlist 29.8.2008 07:00
Frí smáskífa á netið Skakkamanage hefur ákveðið að breiða út boðskapinn og gefa smáskífu með tveimur lögum. Skífuna má nálgast á netinu. Tónlist 29.8.2008 06:15
Frægir gítarleikarar á djasshátíð Japanski gítarleikarinn Kazumi Watanabe og hinn belgíski Philip Catherine koma fram á gítarveislu Jazzhátíðar í Háskólabíói annað kvöld, 28. ágúst. Watanabe er afar hátt skrifaður bæði í heimalandi sínu og í hinum alþjóðlega gítarheimi. Hefur hann verið kostinn besti djassleikari ársins í 24 ár samfleytt í japanska tímaritinu Swing Journal. Catherine, sem hefur áður heimsótt Ísland, hefur verið í fremstu röð gítarleikara heims um árabil. Tónlist 27.8.2008 07:00
Djassinn vinsæll Jasspíanistinn Agnar Már Magnússon heldur tvenna tónleika í kvöld í tengslum við Jazzhátíð Reykjavíkur. Agnar fær til liðs við sig tvo heimsþekkta tónlistarmenn, þá Ben Street og Bill Stewart sem báðir eru vel þekktir innan jasssenunnar. Sjálfur hefur Agnar vakið mikla athygli fyrir tónlist sína og vann hann meðal annars verðlaun fyrir bestu tónsmíð á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár. Tónleikarnir verða haldnir í Vonarsal, þar sem einn glæsilegasta flygil landsins er að finna. Tónlist 26.8.2008 06:00
Órafmögnuð tónlistarhátíð Svavar Knútur Kristinsson skipuleggur órafmagnaða tónlistarhátíð um helgina. Listamenn frá fimm löndum koma fram. Tónlist 26.8.2008 04:15
Rokkarar heiðraðir Rokkararnir í Metallica og Rage Against the Machine voru hylltir sem hetjur á hinni árlegu verðlaunahátíð tímaritsins Kerrang! í London. Metallica fékk verðlaun fyrir að hafa veitt öðrum rokksveitum innblástur á meðan Rage voru vígðir inn í frægðarhöll tímaritsins. Tónlist 26.8.2008 04:00
Múm notar hljóðnema úr skriðdrekahlutum Tónlistarmaðurinn Gunnar Örn Tynes dvaldist í sumar í hinum afskekkta Galtarvita á Vestfjörðum, en vinnur nú að upptöku nýjustu plötu hljómsveitarinnar Múm - þar sem meðal annars er notast við hljóðnema úr skriðdrekahlutum. Tónlist 25.8.2008 06:00
Tónleikar fyrir Tíbet Í kvöld verða haldnir styrktartónleikar í Salnum í Kópavogi undir yfirskriftinni Raddir fyrir Tíbet. Tónlist 24.8.2008 14:51
Órafmögnuð Björk Björk Guðmundsdóttir heldur órafmagnaða tónleika í Langholtskirkju næstkomandi þriðjudagskvöld. Henni til halds og trausts verða Wonderbrass og Jónas Sen sem hafa staðið þétt við bakið á söngkonunni á nýafstaðinni tónleikaferð um heiminn. Á tónleikunum verða flutt lög sem hafa verið uppistaðan í tónleikadagskrá Bjarkar, þar á meðal lög af síðustu plötu hennar, Volta. Tónlist 23.8.2008 02:00
Heimstúr Madonnu hefst á morgun Söngkonan Madonna undirbýr sig þessa dagana undir tónleikaferð um heiminn sem hefst á morgun á Þúsaldarvellinum í Cardiff. Madonna sem varð fimmtug fyrir rúmri viku mun koma fram á 16 tónleikum í Evrópu, þar á meðal á Wembley í London, áður en hún færir sig yfir til Norður- og Suður-Ameríku. Tónlist 22.8.2008 20:45
Sign fékk gullplötu fyrir lag á safnplötu Kerrang! Árleg verðlaunahátíð Kerrang! tímaritsins fór fram í gærkvöldi. Á meðal viðurkenninga sem voru veittar var gullplata til þeirra hljómsveita sem tóku þátt í að heiðra Iron Maiden með ábreiðu en safndiskur var gefinn út með tímaritinu fyrr í sumar. Tímaritið seldist í yfir hundrað þúsund eintökum þá vikuna en venjuleg sala er í kringum fjörtíu þúsund eintök. Sign voru sérstakir gestir ritstjóra Kerrang! Paul Brannigan en hann hefur verið einlægur stuðningsmaður þeirra um langt skeið. Tónlist 22.8.2008 11:15
Raddaður ævintýraheimur Seattle-sveitin Fleet Foxes er á meðal heitustu nýliðanna í poppheiminum á árinu 2008, en fyrsta platan hennar samnefnd sveitinni hefur verið að fá hástemmda lofdóma beggja vegna Atlantshafsins að undanförnu. Tónlist 22.8.2008 06:00
Tónlistarhátíð fyrir unglinga Tónlistarhátíðin Iceland Music Festival 2008 verður haldin í fyrsta sinn á Tunglinu um miðjan september. Á meðal þeirra sem koma fram eru Ultra Mega Technobandið Stefán, Sometime, Sesar A, Kicks!, Dabbi T, The Nellies og Dagstraumur. Tónlist 22.8.2008 06:00
Samdi lagið Þú og ég fyrir gamla vinnuveitandann KK er með mörg járn í eldinum um þessar mundir. Hann á nýtt lag í auglýsingu fyrir SS og fyrsta plata hans í sex ár með eigin efni kemur út í október. Auk þess kennir hann á böskaranámskeiði á Skagaströnd um næstu helgi. Tónlist 11.8.2008 05:00
Dönnuð stemming Bogomil Font og Milljónamæringarnir spila á miðnæturtónleikum í Þrastalundi um verslunarmannahelgina, 1. og 2. ágúst. Boðið verður upp á karnivalstemningu í lundinum, sprell yfir daginn fyrir fjölskyldur, hlaðborð að hætti hússins og dansskemmtun fyrir fullorðna. Tónlist 31.7.2008 06:00
Þetta er bara músik Ómar Guðjónsson, yngri bróðir saxófónleikarans Óskars, hefur gefið út aðra plötuna sína, Fram af. „Á fyrstu plötunni var saxófónninn hjá Óskari í forgrunni en nú hef ég losnað við hækjuna og gítarinn er orðinn aðalröddin," segir Ómar. Tónlist 31.7.2008 06:00
Klúbbakvöld Trevor Loveys, einn þekktra plötusnúða hjá Ministry of Sound, klúbbnum og plötufyrirtækinu, spilar í Sjallanum, Akureyri á föstudagskvöld og á Tunglinu á laugardagskvöld. Hann er þekktastur fyrir að hafa verið hluti af tvíeykinu Switch sem hefur endurhljóðblandað fjölda laga, m.a. eftir Chemical Brothers og Róisin Murphy. Tónlist 31.7.2008 06:00
Fagna plötu Útgáfu plötunnar Jawbreaker með Tommygun Preachers verður fagnað á Organ í kvöld. „Það verður örugglega þrusustemming. Fólk er að hita upp fyrir verslunarmannahelgina og auðvitað afmælishátíð Organ. Við erum loksins að koma aftur og ryðjast inn í bæinn, en við erum búnir að vera að spila mikið í Keflavík," segir Smári, gítarleikari Tommygun Preachers. Tónlist 31.7.2008 06:00
Vel heppnað hliðarspor Á morgun hefur að geyma nýjar útgáfur Megasar og hljómsveitarinnar Senuþjófanna á sextán gömlum lögum, tólf þeirra eru íslensk, en fjögur erlend við íslenska texta. Lagavalið er fjölbreytt, en lögin eiga það sameiginlegt að Megas ólst upp með þeim og hefur á þeim dálæti. Þarna eru m.a. lög við texta eftir Hannes Hafstein og Halldór Laxness og sígild dægurlög, flest frá sjötta áratugnum. Eins og við er að búast eiga þessi lög það líka flest sameiginlegt að textarnir eru góðir. Tónlist 31.7.2008 05:15
Ungar hæfileikakonur í Hömrum Tónleikar undir yfirskriftinni Seiðandi sumarhljómar fara fram í tónleikasalnum Hömrum á Ísafirði annað kvöld kl. 20. Þar koma fram þær Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir fiðluleikari og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari og leika verk eftir Mozart, Ravel og Sarasate. Tónlist 30.7.2008 06:00
Hætt við tónleika Nightwish Snorri H. Guðmundsson þurfti að hætta við tónleika með þungarokkssveitinni Nightwish vegna ástands í efnahagslífinu. Finnska þungarokksveitin Nightwish mun ekki spila í Laugardalshöll þann 25. október eins og ætlað var. Á heimasíðu hljómsveitarinnar kemur fram að tónleikunum hafi „verið aflýst af tónleikahaldara, sem dró bókunina til baka í flýti áður en forsala hófst“. Tónlist 29.7.2008 03:45
Miklu kraftmeiri en Nylon Stúlknasveitin Kári? gæti orðið næsta stórmál í íslenska poppinu. Sveitina skipa fjórar stúlkur fæddar 1993, þær Silvía, Auður, Lilja og Margrét. Tvær koma úr Árbænum, ein úr Grafarvogi og ein frá Norðlingaholti. Þetta er því ekta úthverfaband. Tónlist 25.7.2008 08:00
Djasshátíð haldin í ágúst Nítjánda Jazzhátíð Reykjavíkur verður haldin í borginni dagana 26.-30. ágúst. Að þessu sinni verða á þriðja tug tónleika á þeim fimm dögum sem djassinn dunar í borginni og koma nálægt eitt hundrað listamenn að hátíðinni að þessu sinni. Tónlist 24.7.2008 10:00
Rokkblanda á Organ í kvöld DLX ATX (Deluxe Attacks), Æla og Swords of Chaos spila á Organ í kvöld. Tónlist 24.7.2008 08:00
Tónlist fyrir orgel og horn á hádegistónleikum Á hádegistónleikunum í Dómkirkjunni í Reykjavík á morgun koma fram hornleikarinn Svafa Þórhallsdóttir og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir orgelleikari. Tónleikarnir, sem hefjast kl. 12.15, eru hluti af röð tónleika sem haldnir eru í samvinnu Félags íslenskra organleikara og Alþjóðlegs orgelsumars. Tónlist 23.7.2008 06:00
Abba selst og selst Diskur með sönglögum Benny Anderson og Björn Ulveaus úr kvikmyndinni Mamma mia! þaut upp Billboard-listann í vikunni sem leið og kom inn á listann í sjöunda sæti en myndin var frumsýnd vestanhafs hinn 11. júlí. Hefur þessum herrum ekki tekist eins vel í sölu áður. Abba Gold er líka stokkin upp listann en hún var á sínum tíma í tvö ár á listanum. Tónlist 22.7.2008 09:00