Viðskipti erlent
296 297 298 299 300 301 302 303 304 … 334 ›
Nordea skilaði 616 milljóna evra hagnaði Skandínavíski bankinn Nordea skilaði 616 milljóna evra hagnaði á fyrri hluta þessa árs. Þetta er ein besta niðurstaða bankans í sögu hans. Viðskipti erlent 22.7.2009 08:31
Bernanke mætir fyrir þingið í dag Ben Bernanke seðlabankastjóri Bandaríkjanna mætir aftur fyrir bandaríkjaþing í dag til þess að svara spurningum um þær aðgerðir sem seðlabankinn hefur gripið til og mun fara í, til að takast á við efnahagsástandið í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 22.7.2009 08:09
Vísbendingar um að það versta sé yfirstaðið í Bandaríkjunum Ben S. Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, segir að margt bendi til þess að hagkerfi landsins sé að rétta úr kútnum. Þrátt fyrir það telur hann farsælast til lengri tíma litið, að viðhalda öflugri og varfærinni peningastefnu um óákveðinn tíma. Það er Bloomberg fréttaveitan sem greinir frá þessu í dag. Viðskipti erlent 21.7.2009 18:02
Utanríkisráðherra Litháen fagnar ESB aðildarviðræðum Íslands Maris Riekstins utanríkisráðherra Litháen fagnar ákvörðun alþingis um aðildarviðræður Íslands við ESB og segir að Litháen sé reiðubúið að miðla Íslandi af reynslu sinni í slíkum viðræðum. Viðskipti erlent 21.7.2009 15:21
Áltonnið er komið í 1.738 dollara í London Heimsmarkaðsverð á áli heldur áfram að hækka verulega og er nú komið í 1.738 dollara tonnið á markaðinum í London. Í gærmorgun stóð það í rétt tæpum 1.700 dollurum miðað við þriggja mánaða framvirka samninga. Viðskipti erlent 21.7.2009 12:22
Íhuga lögreglurannsókn á njósnahneyksli í Deutsche Bank Ríkissaksóknari Þýskalands hefur staðfest að embættið sé að íhuga hvort fram fari lögreglurannsókn á njósnahneyksli sem komið er upp hjá Deutsche Bank, stærsta banka Þýskalands. Viðskipti erlent 21.7.2009 11:19
Danskar ferðaskrifstofur með buxurnar á hælunum Mun fleiri Danir vilja ferðast til sólarstranda en pláss er fyrir hjá ferðaskrifstofum landsins. Ferðaskrifstofurnar hafa vanmetið verulega eftirspurnina eftir þessum ferðum í ár og standa því með buxurnar á hælunum að því er segir í frétt í Politiken um málið. Viðskipti erlent 21.7.2009 09:16
Næstráðandi Nasdaq OMX Group lætur af störfum Magnus Bocker framkvæmdastjóri og næstráðandi Nasdaq OMX Group, sem kauphöllin hérlendis tilheyrir, mun láta af störfum á næstunni og taka við stjórn kauphallarinnar í Singapore. Viðskipti erlent 21.7.2009 08:26
Evran Evran er opinber gjaldmiðill sextán af 27 löndum Evrópusambandsins. Evran er einnig notuð í fimm löndum annaðhvort með eða án sérstakrar heimildar Evrópusambandsins. Þau eru San Marínó, Andorra, Vatikanið, Svartfjallaland, Kósovó og Mónakó. Viðskipti erlent 21.7.2009 03:30
Íslendingar ber ekki að taka á sig allar Icesave skuldbindingarnar Íslendingar taka á sig mun meiri skuldbindingar vegna Icesave, en þeim ber, að mati lagaprófessors og hæstaréttarlögmanna. Umfram skuldbindingar nemi um þrjúhundruð milljörðum króna. Viðskipti erlent 20.7.2009 12:02
Hraðmeðferð fyrir Ísland inn í ESB veldur vandræðum Fari svo að Ísland fái hraðmeðferð inn í ESB gæti það valdið sambandinu vandræðum hvað varðar samskiptin við þjóðir í suðurausturhluta Evrópu og Tyrkland. Þessar þjóðir standa framar í biðröðinni en Íslendingar og raunar hefur umsóknin frá Tyrklandi legið fyrir síðan 2005. Viðskipti erlent 20.7.2009 10:49
Heimsmarkaðsverð á áli nær 1.700 dollurum á tonnið Heimsmarkaðsverð á áli náði 1.700 dollurum á tonnið á markaðinum í London í morgun, það er verðið í þriggja mánaða framvirkum samningum. Viðskipti erlent 20.7.2009 08:36
VW kaupir Porche Eigendur Porche SE fyrirtækið munu gefa út viljayfirlýsingu á fimmtudaginn þess efnis að Volkswagen kaupi sportbílaframleiðslu þeirra á 8 milljarða evra, eftir því sem Der Spiegel greindi frá í gær. Viðskipti erlent 19.7.2009 15:00
Kaupþing kyrrsetur einkaþotu stjórnarformanns Tottenham Stjórnendur Singer & Friedlander banka Kaupþings í Bretlandi hafa lagt hald á einkaþotu Daniel Levy stjórnarformanns enska fótboltaliðsins Tottenham. Um er að ræða þotu af gerðinni Embraer Legacy og hefur hún verið kyrrsett á Stansted flugvelli að kröfu bankans. Viðskipti erlent 19.7.2009 09:10
Bandaríkjamenn óttast atvinnuleysi Atvinnuleysi er komið yfir 10% í fimmtán ríkjum Bandaríkjanna. Associated Press fréttastofan segir að atvinnuleysi eigi eftir að aukast í fleiri ríkjum og um sé að ræða eina mestu ógn við efnahagslegan bata. Viðskipti erlent 18.7.2009 15:00
Tveir turnar standa eftir kreppuna Eftir eina verstu fjármálakreppu sem skekið hefur heiminn frá því í kreppunni miklu á fjórða áratug síðustu aldar er allt útlit fyrir að tveir turnar standi eftir í bandarísku bankakerfi. Umræddir bankar eru JPMorgan Chase og Goldman Sachs. Viðskipti erlent 18.7.2009 10:44
Kauphallarsvindl eykst mikið í Kaupmannahöfn Ýmiskonar svik og svindl með hlutabréfaviðskipti í kauphöllinni í Kaupmannahöfn hafa aukist mikið á fyrsta helmingi þessa árs. Viðskipti erlent 17.7.2009 14:38
Kalifornía gæti fengið milljarða tekjur af kannabis Tillaga um að lögleiða kannabis hefur legið frammi á ríkisþingi Kaliforníu í nokkra mánuði. Nú hafa útreikningar frá skattyfirvöldum ríkisins sýnt að tómir sjóðir Kaliforníu gætu fengið 1,4 milljarða dollara eða tæplega 180 milljarða kr. ef af lögleiðingunni verður. Viðskipti erlent 17.7.2009 14:08
Dr. Doom: Það versta er að baki í kreppunni Hagfræðingurinn Nouriel Roubini, auknefndur Dr. Doom og þekktur fyrir að hafa séð fyrir núverandi fjármálakreppu, segir að það versta sé að baki hjá þróuðu löndunum hvað kreppuna varðar. „Það skín ljós við endann á göngunum. Og til tilbreytingar er ljósið ekki járnbrautarlest á leiðinni,“ segir Roubini. „Botninum er náð í Bandaríkjunum og hinu alþjóðlega hagkerfi.“ Viðskipti erlent 17.7.2009 11:15
Starfsmenn JP Morgan fá háar bónusgreiðslur Laun starfsmanna JPMorgan bankans í Bandaríkjunum nálgast nú þær upphæðir sem tíðkuðust fyrir lánsfjárkrísuna. Starfsmönnunum er heitið háum bónusgreiðslum fyrir vel unnin störf. Viðskipti erlent 17.7.2009 11:13
Danmörk með hæsta verðlag af ESB ríkjunum Eurostat hefur birt skýrslu um verðlag í ríkjum ESB árið 2008. Í ljós kom að á meðal aðildarríkja Evrópusambandsins er verðlag hæst í Danmörku, eða 41% hærra en meðalverðlag ríkjanna 27. Viðskipti erlent 17.7.2009 08:11
Uppsagnir hjá Lloyds TSB stefna í 8,200 það sem af er ári Breski bankinn, Lloyds TSB, hyggst segja upp 1,200 starfsmönnum á næstunni. Uppsagnirnar gera það að verkum að um 8,200 manns hafa misst atvinnu sína hjá bankanum á árinu. Viðskipti erlent 16.7.2009 14:08
Mikill hagnaður hjá JP Morgan Næst stærsti banki Bandaríkjanna, JP Morgan Chase & Co., skilaði 2,7 milljarða dala hagnaði á öðrum ársfjórðungi, Niðurstöðurnar koma hæfustu greinendum á fjármálamarkaði algjörlega í opna skjöldu þar sem hagnaðurinn er mun meiri en þeir höfðu áætlað. Viðskipti erlent 16.7.2009 13:09
Áfram samdráttur á inn- og útflutningi hjá G-7 ríkjunum Verðmæti inn- og útflutnings í þróunarlöndunum dróst saman á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, en þó minna en á síðustu þremur mánuðum ársins 2008. Þetta kemur fram hjá Efnahags- og framfarastofnuninni, OECD. Viðskipti erlent 16.7.2009 10:09
Bresk skýrsla: Vill birta laun allra hæst launuðu bankastarfsmanna Breskir bankar ættu að birta laun og árangurstengdar greiðslur allra hæst launuðu starfsmanna sinna, en ekki einungis stjórnarmanna. Þetta segir sir David Walker í skýrslu sem hann vann um stjórnunarhætti í fjármálakerfinu. Viðskipti erlent 16.7.2009 09:51
Hagtölur frá Kína valda mikilli hækkun á álverði Heimsmarkaðsverð á áli hefur tekið mikið stökk upp á við frá því í gær og þar til í morgun eða um 80 dollara á tonnið. Það eru nýjar hagtölur frá Kína sem valda þessari hækkun en samkvæmt þeim mædist hagvöxtur landsins á síðasta ársfjórðungi 7,9%. Viðskipti erlent 16.7.2009 08:54
Enn eru háar bónusgreiðslur við lýði Starfsmenn fjárfestingabankans Goldman Sachs eiga von á því að fá að meðaltali um 770 þúsund bandaríkjadala bónusgreiðslur, jafnvirði um 98 milljónum króna, á árinu í kjölfar góðrar afkomu bankans á fyrri helmingi ársins. Hagnaður bankans nam 3,4 milljörðum dala á öðrum ársfjórðungi og kom sú niðurstaða mjög á óvart beggja vegna Atlantshafsins. Times online greinir frá þessu. Viðskipti erlent 15.7.2009 15:30
Atvinnuleysi eykst á Bretlandi Atvinnuleysi fer vaxandi á Bretlandi. Á undanförnum þremur mánuðum hafa 281 þúsund manns orðið atvinnulausir sem er mesta aukning atvinnuleysis á einum ársfjórðungi í sögu Bretlands. Atvinnuleysi mælist nú 7,6% sem er meira en spár höfðu gert ráð fyrir og það versta síðan í janúar 1997, síðan Verkamannaflokkurinn tók við völdum. Sky fréttaveitan greinir frá þessu í dag. Viðskipti erlent 15.7.2009 10:08
Boeing boða 1.000 uppsagnir Boeing-flugvélaverksmiðjurnar þurfa að segja upp 1.000 starfsmönnum í vopnaframleiðsuhluta fyrirtækisins eftir að bandaríska varnarmálaráðuneytið skar niður styrki til verksmiðjanna. Viðskipti erlent 15.7.2009 08:09
Er von að glæðast á bandarískum fjármálamarkaði? Bandaríski fjárfestingabankinn Goldman Sachs, skilaði hagnaði uppá 3,4 milljarða bandaríkjadala á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Tekjur bankans á ársfjórðungnum námu 13,8 milljörðum dala sem eru mestu ársfjórðungstekjur bankans frá upphafi. Viðskipti erlent 14.7.2009 15:51