Viðskipti innlent
146 147 148 149 150 151 152 153 154 … 334 ›
Audi bannaði Heklu að nota hugtökin „afsláttur“ eða „tilboð“ Hekla braut gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu þegar bílaumboðið veitti villandi upplýsingar um verð á heimasíðu félagsins. Þetta er niðurstaða Neytendastofu en málið varðar notkun á hugtakinu „innifalin ávinningur“ við kynningu á Audi e-tron 50 og 55 bifreiðum. Viðskipti innlent 25.10.2021 23:24
Bilun olli því að Mastercard-kortum var hafnað Bilun sem kom upp hjá Salt pay nú síðdegis olli því að truflun kom upp á heimildagjöf Mastercard-debetkorta hjá einhverjum greiðslumiðlunarfyrirtækjum. Forstjóri RB segir að ekki hafi verið um netárás að ræða og að unnið sé að greiningu á því sem kom fyrir. Viðskipti innlent 25.10.2021 18:34
Iðnaðarmenn vilja festa Allir vinna í sessi Samiðn, samband iðnfélaga, hefur hvatt stjórnvöld til að tryggja að átakið Allir vinna verði fest varanlega í sessi. Stjórnvöld útvíkkuðu átakið í kórónuveirufaraldrinum og felst það í endurgreiðslu á virðisaukaskatti vinnuliðs þegar kemur að ýmsum framkvæmdum. Átakið mun að óbreyttu renna sitt skeið um áramót. Viðskipti innlent 25.10.2021 14:15
ÚR selur skuldabréf fyrir sjö milljarða króna Stjórn Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. samþykkti í síðustu viku að gefa út skuldabréf að andvirði rúmlega sjö milljarða króna. Viðskipti innlent 25.10.2021 13:20
Tíu milljarða króna sementsverkefni í Ölfusi Stefnt er að því að flytja milljón tonn af íblöndunarefni í sement úr landi frá Þorlákshöfn. Viðskipti innlent 25.10.2021 13:02
Rakel Eva flytur sig frá Marel til Play Rakel Eva Sævarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður sjálfbærni- og samfélagsábyrgðar hjá flugfélaginu Play. Í tilkynningu frá flugfélaginu segir að hún muni í starfinu móta og innleiða sjálfbærnistefnu félagsins ásamt því að skilgreina sjálfbærnitengd markmið þess sem snúa að umhverfismálum, félagslegum þáttum, stjórnarháttum og öðrum rekstrarlegum þáttum. Viðskipti innlent 25.10.2021 11:06
Reiknistofa fiskmarkaða fær lögbann á framkvæmdastjórann fyrrverandi Nýtt fyrirtæki sem hugðist veita Reiknistofu fiskmarkaða ehf. samkeppni hefur fengið á sig lögbann og getur ekki hafið starfsemi fyrr en málið hefur farið sína leið fyrir dómstólum. Viðskipti innlent 25.10.2021 07:03
Kvika stefnir að því að eignast meirihluta í Ortus Secured Finance ,,Kvika keypti minnihluta í Ortus árið 2018 og hefur síðan átt í góðu samstarfi við félagið og öfluga stjórnendur þess. Kaupin eru rökrétt skref í uppbyggingu Kviku í Bretlandi. Ortus hefur eflst mikið á undanförnum árum og ljóst er að áhugaverð vaxtartækifæri blasa við félaginu í nánustu framtíð.“ Viðskipti innlent 24.10.2021 21:51
„Hryllingssagnabeiðni“ ASÍ var hvatning um að skipta um stéttarfélag Í tölvupósti sem Alþýðusamband Íslands (ASÍ) sendi á flugliða sem starfa hjá flugfélaginu Play voru þeir hvattir til að ganga í Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) og þeim heitið trúnaði sem vildu hafa samband við sambandið. „Það er alltaf velkomið að hafa samband við okkur persónulega, í síma eða tölvupósti,“ stóð í lok póstsins. Birgir Jónsson, forstjóri Play, hélt því fram í Silfrinu í dag að ASÍ hafi af fyrra bragði sent starfsmönnum hans tölvupósta þar sem væri óskað eftir „hryllingssögum“. Viðskipti innlent 24.10.2021 14:39
Síminn selur Mílu Síminn og alþjóðlega sjóðastýringafyrirtækið Ardian hafa komist að samkomulagi um kaup þess síðarnefnda á öllu hlutafé í Mílu ehf., sem á og rekur víðtækasta fjarskiptanet landsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Símanum. Viðskipti innlent 23.10.2021 07:39
„Ég er ekki að selja Bitcoinin mín og mun ekki gera það“ Virði rafmyntarinnar Bitcoin náði sögulegu hámarki í vikunni. Fyrrverandi framkvæmdastjóri Rafmyntaráðs telur öruggt að virðið haldi áfram að hækka á næstu árum en fólk verði að fara varlega, ætli það sér að fjárfesta. Viðskipti innlent 22.10.2021 20:00
Sekta Ríkisútvarpið, Sýn og Hringbraut vegna auglýsinga Fjölmiðlanefnd birti undir kvöld nokkrar ákvarðanir þar sem fyrirtæki og fólk var sektað vegna ólögmætra auglýsinga. Ríkisútvarpið, Sýn og Hringbraut voru sektuð en nefndin ákvað að sekta ekki forsvarsmenn tveggja hlaðvarpa þar sem lög voru brotin. Viðskipti innlent 22.10.2021 19:58
SA og VÍ svara Samkeppniseftirlitinu: „Verða settar skorður á Seðlabankann að tjá sig um verðlag í landinu?“ Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands segja engin ákvæði samkeppnislaga banna samtökum fyrirtækja þátttöku í opinberri umræðu. Það sé ekki úr lausu lofti gripið að verðhækkanir séu líklegar og það sé í raun óumflýjanlegt að hagsmunasamtök fyrirtækja láti sig verðlag í landinu varða. Viðskipti innlent 22.10.2021 18:25
SE gefur grænt ljós á kaup Nordic Visitor á Iceland Travel Samkeppniseftirlitið (SE) hefur samþykkt kaup ferðaskrifstofunnar Nordic Visitor hf. á Iceland Travel ehf. Komst eftirlitið að þeirri niðurstöðu að ekki yrði til markaðsráðandi staða eða umtalsverð röskun á samkeppni með samrunanum og því væri ekki tilefni til íhlutunar. Viðskipti innlent 22.10.2021 14:38
Samkeppniseftirlitið slær á putta SA vegna ummæla Halldórs Samkeppniseftirlitið brýnir fyrir forsvarsmönnum hagsmunasamtaka að taka ekki þátt í umfjöllun um verðlagningu þar sem slíkt geti verið óheimilt samkvæmt samkeppnislögum. Viðskipti innlent 22.10.2021 13:44
Bein útsending: Dagur verkfræðinnar haldinn í sjötta sinn Dagur verkfræðinnar verður haldinn í sjötta sinn á Hilton Reykjavík Nordica í dag. Á þriðja tug fyrirlestra og kynninga verða í boði í þremur opnum fundasölum en dagskráin hefst klukkan 13. Hægt verður að fylgjast með útsendingum í spilurum að neðan. Viðskipti innlent 22.10.2021 12:32
Evergrande tekist að greiða gjaldfallna vaxtagreiðslu Kínverska fasteignafélagið Evergrande Group greiddi í dag 83,5 milljóna Bandaríkjadala vaxtagreiðslu á erlendu skuldabréfi, að sögn kínversks ríkismiðils. Viðskipti innlent 22.10.2021 11:44
Íbúðaverð heldur áfram að hækka Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði að meðaltali um 1,2% milli ágúst og september. Fjölbýli hækkaði um 1,2% og sérbýli um 1,3%. Vegin árshækkun mælist nú 16,4% og hækkar um 0,2 prósentustig frá fyrri mánuði. Íbúðasala var minni en á fyrri mánuðum árs. Viðskipti innlent 22.10.2021 10:07
Húsasmiðjunni lokað á Dalvík og Húsavík Verslunum Húsasmiðjunnar á Dalvík og Húsavík verður lokað um næstu áramót. Starfsmönnum fyrirtækisins í bæjunum verður boðið að vinna í nýrri verslun á Akureyri sem opna á á Freyjunesi á næsta ári. Viðskipti innlent 21.10.2021 19:22
Origo hagnaðist um 365 milljónir Origo hagnaðist um 365 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi. Hagnaður fyrirtækisins á árinu er 612 milljónir. Í fyrra var hagnaðurinn 90 milljónir á þriðja ársfjórðungi og 461 milljón á fyrstu níu mánuðum ársins. Viðskipti innlent 21.10.2021 18:31
Dregið úr sértækum stuðningi og færri nýta sér úrræðin Dregið hefur úr sértækum stuðningi ríkissjóðs við rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru samhliða efnahagsbata að undanförnu. Viðskipti innlent 21.10.2021 17:53
Reiknistofa lífeyrissjóða tekur yfir reksturinn eftir samningsbrot rekstraraðila Reiknistofa lífeyrissjóða (RL) hyggst taka yfir rekstur á hugbúnaðarkerfinu Jóakim. Kerfið, sem hefur verið rekið af fyrirtækinu Init, heldur utan um réttindi og iðgjöld sjóðfélaga hjá fjölda lífeyrissjóða og verkalýðsfélaga. Viðskipti innlent 21.10.2021 17:17
Forsýna The Reykavík Edition þann 9. nóvember Lúxushótelið The Reykjavík Edition verður opnað í sérstakri forsýningu þann 9. nóvember en hótelið tók við sínum fyrstu gestum nú fyrr í mánuðinum. Viðskipti innlent 21.10.2021 16:41
Útlit fyrir 3,2 til 3,3 milljarða króna hagnað Kviku Hagnaður Kviku banka var á bilinu 3,2 til 3,3 milljarðar króna fyrir skatta á þriðja ársfjórðungi samkvæmt drögum að uppgjöri samstæðunnar. Samsvarar það 32,9 til 34 prósent árlegri arðsemi á efnislegt eigið fé. Uppgjörið er talsvert umfram áætlanir samstæðunnar fyrir tímabilið. Viðskipti innlent 21.10.2021 11:58
Bauð sátt tveimur dögum áður en 167 milljóna dómsmál átti að hefjast Stjórn Sorpu bauð Birni Halldórssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtæksins, sátt í máli sem hann höfðaði gegn fyrirtækinu tveimur dögum áður en aðalmeðferð þess, þar sem hann krafðist 167 milljóna í bætur fyrir ólöglega uppsögn, átti að hefjast. Viðskipti innlent 21.10.2021 11:22
Harka færist í baráttuna um framtíð Cocoa Puffs á Íslandi Aðdáendur Cocoa Puffs vöknuðu upp við vondan draum í lok mars þegar umboðsaðili morgunkornsins tilkynnti að það yrði brátt ófáanlegt á Íslandi. Meira en hálfu ári síðar er enn hægt að fá súkkulaðikúlurnar í völdum verslunum en óvissa ríkir um framtíðina. Heilbrigðiseftirlitið hefur krafist þess að varan verði endanlega tekin úr sölu. Viðskipti innlent 21.10.2021 08:00
Sorpa og Björn ná sáttum Sorpa mun greiða Birni Halldórssoni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækisins, laun í sex mánuði til viðbótar auk lögfræðikostnaðar sem hluti af sátt eftir að Björn höfðaði mál gegn Sorpu vegna uppsagnar sinnar á síðasta ári. Viðskipti innlent 21.10.2021 07:50
Segir verðhækkanir Póstsins á höfuðborgarsvæðinu koma á óvart Hrólfur Andri Tómasson, framkvæmdastjóri Dropp ehf., segir það koma á óvart að Pósturinn hafi hækkað verð á á höfuðborgarsvæðinu. Hækkunin komi þó fyrirtækjum í samkeppni við Póstinn vel. Viðskipti innlent 20.10.2021 21:46
Marel hagnaðist um 3,5 milljarða Marel hagnaðist um 23,2 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi. Það samsvarar tæplega þremur og hálfum milljarði króna. Á sama fjórðungi í fyrra var hagnaður félagsins 29,4 milljónir evra. Tekjur Marel voru 331,9 milljónir evra, samanborið við 287,2 á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 20.10.2021 20:00
Fyrsta sinn í tvö ár sem Icelandair skilar hagnaði Icelandair hagnaðist um 2,5 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi þess árs. Þetta er í fyrsta sinn í tvö ár sem regluleg starfsemi félagsins skilar hagnaði. Bogi Nils Bogason, forstjóri, segir í tilkynningu frá Icelandair að heimsfaraldur Covid-19 hafi enn áhrif á starfsemi félagsins en þrátt fyrir það sé það á réttri leið. Viðskipti innlent 20.10.2021 19:09