Skoðun

Tækifæri fyrir Geir

Sjónarmið - Hafliði Helgason



Settum dómsmálaráðherra við skipun hæstaréttadómara er vandi á höndum. Vandinn er togstreita er milli almennra sjónarmiða og flokkslegra.

Geir Haarde þarf á næstu dögum að skipa nýjan dómara við Hæstarétt, vegna þess að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra mat sjálfan sig vanhæfan og vék. Síðasta stöðuveiting við réttinn olli vanhæfi Björns nú og að mati margra pólitískri gengisfellingu hans.

Björn stendur eftir þau mál veikar sem forystumaður í Sjálfstæðisflokknum og orðstír hans sem málefnalegur stjórnmálamaður beið hnekki.

Geir Haarde hefur sama orðstír að verja. Hann hefur reynst farsæll fjármálaráðherra og málefnalegur stjórnmálamaður innan þeirra marka sem stjórnmálavafstur gefur rými fyrir málefnalega framgöngu. Nú stendur hann frammi fyrir pytti Björns.

Hæstiréttur hefur gefið umsögn um umsækjendur dómarastöðunnar. Þar eru tveir dæmdir hæfastir. Síðast þegar álits réttarins var leitað vegna skipunar dómara notaði rétturinn orðalagið "heppilegastir" um tvo umsækjendur. Nú eru umsækjendur flokkaðir frá þeim hæfustu til hins minnst hæfa. Enginn er dæmdur vanhæfur.

Freistandi er að draga þá ályktun af orðalagi Hæstaréttar að þar séu á ferðinni viðbrögð við því hvernig ráðherra nýtti sér svigrúm hugtaksins heppilegur við síðustu skipun. Fyrir það hefur nú verið girt.

Þótt menn geti deilt um það fyrirkomulag að Hæstiréttur meti umsækjendur, er vandséð að ráðherra geti gengið framhjá því áliti sem nú liggur fyrir. Valið stendur samkvæmt því á milli Eiríks Tómassonar og Stefáns Más Stefánssonar. Hjördís Hákonardóttir stendur þessum tveim næst að hæfi að mati réttarins. Jafnréttissjónarmið gætu því vegið á upp á móti þeim mun sem rétturinn metur á hæfi hennar og hinna tveggja við val í stöðuna. Þar kvæði við nýjan tón við skipanir í æðstu embætti.

Vandi Geirs liggur hins vegar í því að einn umsækjandanna, Jón Steinar Gunnlaugsson, er ötull talsmaður og vinur flokksforystu Sjálfstæðisflokksins. Slíkt gerir Jón Steinar ekki vanhæfan í stöðu dómara og er ekki tilefni til þess að hann gjaldi fyrir það. Það á hins vegar ekki að verða til þess að honum sé lyft með hentirökum upp fyrir umsækjendur sem hafa menntun og reynslu til starfans umfram Jón Steinar samkvæmt faglegu mati.

Þetta er sú pólitíska gildra sem Geir stendur frammi fyrir. Ráði hann Jón Steinar, tapar hann almennum trúverðugleika sem mun veikja hann sem framtíðarleiðtoga flokksins. Taki hann þá afstöðu að ráða einn hinna þriggja hæfustu mun það valda andstöðu gegn honum í innsta valdakjarna Sjálfstæðisflokksins. Hins vegar er sú andstaða þegar fyrir hendi í flokknum og kannski jafn gott að hún fái að koma upp á yfirborðið nú.

Vilji Geir taka við forystu Sjálfstæðisflokksins þegar Davíð Oddsson hættir, þarf hann að skilja sig frá stjórnunarstíl Davíðs og boða nýja tíma í forystu flokksins. Hann hefur tækifæri til þess nú.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×