Agaleysi og eltingaleikur 14. október 2004 00:01
Börn eru í reiðuleysi og sýna agaleysi í verkfalli kennara, segir Hjörleifur Helgason, vaktstjóri í Egilsshöll. Hann segir aðsóknina að íþróttamiðstöðinni hafi aukist mikið. Börn frá átta ára aldri séu mætt upp úr níu á morgnana. Þau síðustu fari heim um tíu á kvöldin. "Börnin eru villt og hafa ekkert við að vera í verkfalli kennara. Þau nota húsnæðið sem leiksvæði og eru þá ekki að koma á æfingar eða á skauta. Þau eru í eltingaleik og feluleik. Erfitt er að eiga við þau," segir Hjörleifur. "Agaleysið lýsir sér þannig að börnin brúka munn, hlutir hafa verið skemmdir hérna í húsinu, þau taka ekki tilsögn og eru gróf í orðum og gerðum," segir Hjörleifur. Hjörleifur telur að það stafi af lítilli festu í verkfallinu. Hann segir einn starfsmanna hafa þurft að hringja á lögregluna þegar þrír drengir létu öllum illum látum í höllinni. Krakkarnir séu velkomnir á skauta og að nýta sér Egilshöllina meðan það sé gert innan þeirra reglna sem þar gilda.
Fréttir Innlent Kennaraverkfall Mest lesið Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Engar ruslatunnur í Grindavík Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fleiri fréttir Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Frægasti köttur landsins týndur Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Engar ruslatunnur í Grindavík Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Sjá meira