Skoðun

Réttarhöld aldarinnar?

Í dag verður þingtekið mál ákæruvaldsins á hendur sex einstaklingum í Baugsmálinu, máli sem margir koma væntanlega til með að kalla réttarhöld aldarinnar, í það minnsta í viðskiptalífinu, þó stutt sé liðið af 21. öldinni. Eftir hátt í þriggja ára rannsókn fer þetta umfangsmikla mál loks fyrir dómstóla þar sem má búast við að fréttir af því verði í brennidepli í haust og jafnvel fram eftir vetri, eftir því hvenær málsmeðferðin sjálf hefst. Dómurinn verður fjölskipaður og vart vanþörf á, ákærur eru margar hverjar mjög alvarlegar og umfang málsskjala gríðarlegt. Margir hafa nefnt Hafskipsmálið í tengslum við Baugsmálið. Umfang þess máls var mikið, réttarhöldin tóku langan tíma og voru eitt helsta fréttaefni landsins meðan þau stóðu yfir. Niðurstaðan þá var sú að sakborningar voru sakfelldir fyrir nokkur atriði en sýknaðir af flestum eða þeim vísað frá. Nú, tæpum tveimur áratugum síðar, eru menn enn ekki á eitt sáttir um arfleið þeirra réttarhalda. Spurning hvort það sama verði upp á teningnum í Baugsmálinu. Eitt er víst. Baugsmálið verður stærsta mál vetrarins nema eitthvað mjög stórt og óvænt komi upp á. Fjölmiðlar verða undirlagðir af fréttum um gang málsins. Framan af ber líklega mest á rökstuðningi ákæruvaldsins fyrir ákærunum, sá rökstuðningur fylgir ekki ákærunum og heyrist væntanlega fyrst þegar málið verður tekið fyrir. Hann hefur því að miklu leiti vantað í umræðu um málið að undanförnu og gæti orðið til að varpa enn frekara ljósi á ýmis atriði. Vörnin kemur næst að og loks samantekt saksóknara og verjenda í lokin. Svo er spurning um hvert framhaldið verður þegar dómur er fallinn í héraðsdómi. Hvernig sem er hlýtur að teljast öruggt að málið fari fyrir Hæstarétt. Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður sagði í sjónvarpsþættinum Ísland í dag á Stöð 2 í fyrrakvöld að það kæmi honum ekki á óvart ef allir hæstaréttardómarar yrðu að segja sig frá málinu. Það sagði hann eðlilegt í ljósi tengsla þeirra við Jón Steinar Gunnlaugsson sem Baugsfeðgar hafa gagnrýnt harðlega og sakað um óeðlileg afskipti af máli þeirra. Í fréttum Bylgjunnar í gær var rætt við Magnús Thoroddsen, fyrrum forseta Hæstaréttar, sem lýsti sig ósammála þessu viðhorfi Brynjars og sagði Jón Steinar ekki svo tengdan málinu að aðrir dómarar þyrftu að víkja. Brynjólfur Þór Guðmundsson - [email protected]



Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×