Skoðun

Skáldlegur Össur

Heldur var þingflokksformaður Samfylkingarinnar brjóstumkennanlegur í Fréttablaðinu í gær, 12. desember. Pistill hans fjallar eingöngu um Framsóknarflokkinn og ekki í fyrsta sinn. Aðfinnsluefni þau er hann tekur fyrir eru afbökuð og rangtúlkuð af þeirri natni sem Össuri einum er lagið - kryddað með samsæriskenningum, sérfræðisviði þingflokksformannsins.

Það skondna í þessu öllu er að Össur er í reynd ekki að fjalla um Framsókn. Skammir hans snúa allar að Samfylkingunni! Stöðu sinnar vegna og tengsla við formann sinn kýs Össur að skamma Framsókn en meinar auðvitað Samfylkinguna og ekki síður ISG. Hann er barinn og smáður eftir að Ingibjörg Sólrún kvað upp þann dóm að þingflokkurinn undir forystu Össurar væri ekki á vetur setjandi því þjóðin treysti þessu liði ekki. Sárt fyrir Össur að fá slíka flengingu en í stað þess að svara Ingibjörgu Sólrúnu beint þá velur hann að sneiða til hennar í gegnum Framsókn.

Eða hver skilur ekki talið um vingulshátt? Í raun skiptir engu hvar borið er niður. Stefna SF ræðst af því hver talar hverju sinni. Nú síðast í RÚV málinu þar sem sjálfur varaformaður SF virðist sama sinnis og stjórnarsinnar meðan aðrir vilja annað. Frægur er hringlandinn um stóriðjustefnu SF. Skiptir þar máli hvort tala Kristján Möller og Einar Már eða Þórunn og Mörður.

Sama má segja í félagsmálum og heilbrigðisstefna varaformannsins frjálslynda er öll önnur en hinnar varkáru Jóhönnu. Í sjávarútvegsmálum þarf marga talsmenn til að fá fram allar stefnur SF. Þannig má taka fyrir hvern málaflokkinn af öðrum. Stefnan er jafn skýr og talsmenn eru margir. Líkist helst kvikuhlaupi sem enginn veit hvar brýst fram. Það er þetta stefnuleysi sem Ingjbörg Sólrún skammar þingflokkinn fyrir og Össur bregst við með því að skamma Framsókn. Þetta er alþekkt stílbragð þegar menn vilja koma föstum skotum fram en vera samt í skjóli.

Össuri er þetta skjól Framsókn að þessu sinni og verður fróðlegt að sjá hvar næsta haldreipi finnst. Nú er hins vegar orðið tímabært fyrir Össur að líta í eigin barm því þar undir slær þrátt fyrir allt milt hjarta og vænt.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×