Skoðun

Nýsköpun til framtíðar

Katrín Jakobsdóttir og Katrín Júlíusdóttir skrifa um nýsköpun skrifar
Í þeim hremmingum sem Ísland gengur nú í gegnum þurfum við Íslendingar að horfa til framtíðar með hæfilegri blöndu af bjartsýni og raunsæi. Ljóst er að þær aðstæður sem hafa skapast í efnahagslífi þjóðarinnar eru með þeim hætti að þörf er á sterkri stefnu og framtíðarsýn.

Einn þeirra þátta sem ný ríkisstjórn lítur til er nýsköpun. Við Íslendingar höfum vakið athygli víða fyrir skapandi starf, bæði í listum og í tækniþróun, hönnun og nýsköpun eins og sést á fyrirtækjum á borð við Marel, Össur og CCP og Nikita. Á síðustu vikum og mánuðum hafa margar góðar hugmyndir komið fram sem tengjast skapandi atvinnugreinum.

Eins og við vitum er leiðin frá hugmynd til framkvæmdar stundum löng og ferðalagið háð fjármögnun. Það var því með mikilli gleði sem við sem ráðherrar iðnaðar og mennta- og menningarmála ákváðum að veitt yrði 15 milljónum aukalega til að styrkja Nýsköpunarsjóð námsmanna og auka þannig möguleika háskólanema á að stunda rannsóknir í sumar og undirstrika mikilvægi rannsókna og nýsköpunar í uppbyggingu Íslands.

Nýsköpunarsjóður námsmanna var stofnaður sumarið 1992 þegar Röskva, samtök félagshyggjufólks við HÍ, lagði fram tillögu í Stúdentaráði. Á þessum árum var atvinnuleysi mikið meðal námsmanna og erfitt að finna sumarstörf sem tengdust rannsóknum. Með stuðningi stjórnmálamanna og þá ekki síst Jóhönnu Sigurðardóttur var málinu unnið fylgi í ríkisstjórn og fékkst samþykkt fjárveiting upp á tíu milljónir króna. Sjóðurinn er nú samstarfsverkefni menntamálaráðuneytis, Reykjavíkurborgar, Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og sveitarfélaganna.

Sautján árum síðar er Nýsköpunarsjóður námsmanna enn mikilvægur þáttur í lífi stúdenta og hefur í gegnum árin veitt mörgum námsmönnum tækifæri til að stíga sín fyrstu skref í rannsóknarstörfum. Sjóðurinn hefur auk þess að skapa ungu fólki atvinnu verið mikilvægur í að tvinna saman háskóla og atvinnulíf. Tengslin sem skapast hafa milli stúdenta, vísindamanna og atvinnulífs hafa skilað góðum árangri og skapað mörg tækifæri.

Það er von okkar og vissa að stuðningur við Nýsköpunarsjóð námsmanna gagnist ekki aðeins styrkþegum heldur einnig íslensku samfélagi í lengd og bráð. Hlutverk Nýsköpunarsjóðs námsmanna í íslensku samfélagi hefur verið stórt en líklega aldrei mikilvægara en nú.

Höfundar eru ráðherrar mennta- og menningarmála og iðnaðar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×