Skoðun

Tuttugu þúsund ársverk vinnast

Ögmundur Jónasson skrifar
Atvinnuleysi er böl. Ég tek það því alvarlega þegar mér er borið á brýn að hafa stuðlað að auknu atvinnuleysi. Einmitt það gerir Magnús Orri Schram, alþingismaður, í skrifum sínum í Fréttablaðinu nýlega. Við sem stuðluðum að því að Icesave samningarnir fóru inn í nýtt ferli, erum sögð hafa með frestun málalykta, valdið gríðarlegum kostnaði sem smám saman sé að koma í ljós: „Lægri laun, hærri vextir, miklu meiri niðurskurður, lægra gengi og a.m.k. 3.300 atvinnulausir er bara ein birtingarmynd þessa kostnaðar.“ Þetta fullyrðir Magnús Orri.

Hann vísar í staðhæfingar seðlabankastjóra og aðalhagfræðings SÍ um að málalyktir í Icesave hefðu þýtt framhald á „efnahagsáætlun stjórnvalda“ en vegna tafanna sætum við uppi með „lægra gengi, lægri raunlaun, hærri vexti og enn meira aðhald í ríkisfjármálum“. Þá frestuðust stórframkvæmdir og fyrir vikið myndi landsframleiðsla „lækka um fimm prósent og atvinnuleysi yrði tveimur prósentum meira“. Þar eru komnir einstaklingarnir 3.300 sem fyrr er getið. Eitthvað vantar í þennan málatilbúnað. Í fyrsta lagi skortir á að sýnt sé fram á að stóriðjuframkvæmdir séu háðar lausn Icesave-deilunnar. Í öðru lagi hafa langtíma áhrif stóriðju á atvinnulífið reynst neikvæðari en hér er látið í veðri vaka. Í þriðja lagi skal á það bent að peningamarkaðir virðast vera að opnast óháð lyktum Icesave. Í fjórða lagi hefur seinkunin valdið því að bæði Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og ríkisstjórn Íslands hafa endurmetið stærðargráðu gjaldeyrisforðans en það endurmat hefur sparað okkur ófáa milljarða í vaxtagreiðslur. Síðan er það sjálfur samningurinn.

Nú er ekki gengið út frá öðru en að Íslendingar borgi ekki meira en nemur tilkostnaði lánardrottnanna. Það eitt gæti sparað okkur um eitt hundrað milljarða! Þar með vinnast tuttugu þúsund ársverk. Það munar um minna.

Það hlýtur að vera undarleg tilfinning fyrir samninganefnd Íslands að horfa til baklands sem lítur á það sem meira mál að ná einhverjum samningum en góðum samningum.

Höfundur er alþingismaður.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×