Skoðun

Hverjir þurfa að hugsa sinn gang?

Karólína Einarsdóttir og Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar
Á árunum 1999 til 2009 gagnrýndi þingflokkur VG harðlega þann hroka og samráðsleysi sem einkenndi vinnubrögð ríkisstjórna þess tíma.

Vinnubrögðum sem birtust í því að stjórnarliðar á Alþingi voru notaðir sem strengjabrúður foringjanna og fengu lítið til málanna að leggja. Þetta gagnrýndi VG og krafðist þess að skýr mörk væru á milli framkvæmdarvalds og löggjafarvalds, að sjálfstæði löggjafarvaldsins væri aukið. Ennfremur hefur bæði flokksráð og landsfundur ályktað í þessa veru. Stefna flokksins er skýr hvað þetta varðar: Tryggja þarf lýðræðislegri stjórnarhætti í landinu.

Ein af niðurstöðum skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis var að lélegir stjórnarhættir sem einkenndust af foringjaræði, hjarðhegðun, gagnrýnisleysi og ofurvaldi þröngra sjónarmiða hafi verið meðal ástæðna hrunsins.

Í ljósi alls þessa eru það mikil vonbrigði hversu lítið hefur verið gert til að uppræta þær ólýðræðislegu hefðir sem hafa fest í sessi á Alþingi. Þvert á móti hafa ráðherrar VG og meirihluti þingflokksins, ásamt stjórnarliðum Samfylkingar, tekið upp þessi lágkúrulegu vinnubrögð og beitt þumalskrúfum á þá þingmenn sem voga sér að hafa efasemdir um stefnu flokkseigendanna og forystunnar. Það er algjörlega óásættanlegt að reynt sé að þvinga þingmenn til að fara gegn eigin sannfæringu. Og það er líka óásættanlegt að þingmenn láti nauðbeygja sig.

Með því að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar í síðustu viku stóðu þingmennirnir Lilja, Atli og Ásmundur Einar í fæturna þrátt fyrir mótbyr og eiga hrós og virðingu okkar skilda. Þremenningarnir stóðu með sannfæringu sinni og gerðu það sem fleiri mættu gera. Þau voru gagnrýnin og bentu á aðrar færar leiðir, leiðir sem samræmast betur hugmyndafræði VG.

Með þessu voru þremenningarnir ekki að lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, heldur voru þau að kalla eftir faglegri og lýðræðislegri vinnubrögðum í stjórnarráðinu og á Alþingi, og að gera það sem þeim ber að gera lögum samkvæmt, þ.e. að fara eftir eigin sannfæringu. Það er kjarni málsins.

Okkur þykja undarleg þau orð sem hafa verið látin falla af félögum okkar í þingflokki VG. Það er fráleitt að þremenningunum sé ekki lengur stætt í þingliði flokksins og að þau þurfi „að hugsa sinn gang“. Við, sem höfum starfað í grasrót VG, höfum lagt mikið upp úr lýðræðislegri umræðu og virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum og finnst því miður að í þingflokki VG njóti þær hugmyndir ekki meiri skilnings en viðbrögð flokksforystunnar ber vitni. Þremenningarnir þurfa ekki að „hugsa sinn gang“, það eru aðrir í þingflokknum og þó sérstaklega forysta VG sem þurfa að hugsa sinn gang.

 




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×