Skoðun

Vituð ér enn…

Sverrir Hermannsson skrifar

Menn þrætazt á um orsakir Hrunsins á Íslandi. Landsstjórnarmenn, sem aðalábyrgð bera, vísa gjarnan á heimskreppu í því sambandi og reyna með þeim hætti að villa um fyrir almenningi.

Fjármálaöngþveitið á Íslandi er heimatilbúið. Það á upphaflegar rætur sínar að rekja til kvótakerfisins og er frábæra lýsingu á þeim ófarnaði að finna í grein Guðmundar Andra Thorssonar í Fréttablaðinu 26. apríl sl. þar sem hann segir: „Ósköpin hófust með kvótakerfinu. Þá fylltist allt af peningum sem voru ekki til, frá mönnum sem höfðu aflað þeirra með því að selja það sem þeir áttu ekki: óveiddan fisk."

Og nú biðja framsóknarmenn grátandi afsökunar á andvaraleysi sínu svo ekkasogin heyrast víða vegu.

Hinn 2. nóvember 1999 birtist í Morgunblaðinu grein eftir höfund þessa greinarkorns, sem hófst á eftirfarandi þremur málsgreinum: „Íslendingar standa nú andspænis spánnýjum köldum staðreyndum. Nýrri umturnan í fjármálakerfi þjóðarinnar, sem engan hefði órað fyrir í upphafi þessa áratugs. Byltingu, sem ná mun fullri fótfestu innan örfárra ára ef þjóðin uggir ekki að sér og veitir núverandi ráðamönnum áframhaldandi brautargengi.

Eignatilfærslan í þjóðfélaginu er með ógnarlegri hætti en orð fá lýst. Og allt undir falsyrðum um einkavæðingu, hagræðingu, frelsi til athafna og frjálsa samkeppni.

Lunginn úr þjóðarauðnum er afhentur örfáum mönnum gefins. Dæmi eru um að einu fyrirtæki hafi verið afhentar fiskveiðiheimildir fyrir 26.000.000.000.- tuttuguogsexþúsundmilljónirkróna - gefins. Þessir og aðrir gjafþegar ríkisvaldsins eru nú mættir með gripdeildina að kaupa fyrir banka og önnur verðmæti í eigu alþjóðar, sem stjórnvöldum eru nú útbær í anda frjálshyggjunnar - ógeðfelldustu auðhyggju, sem yfir þjóðir hefur riðið."

Þess verður nú freistað um sinn að draga ábyrgðarmenn Hrunsins fram í dagsljósið og sýna fram á hvert hald afbrotamönnum er í andvaraleysiskjökri.






Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×