Skoðun

Á einu augabragði

Vigdís Hauksdóttir skrifar
Vigdís Hauksdóttur skrifar um Icesave

Steingrímur J. Sigfússon stjórnarandstæðingur fór mikinn í fjölmiðlum haustið 2008. Tökum dæmi. Á vef RÚV 23. október kemur fram: „Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir að það verði gerð uppreisn hér á landi verði gengið að kröfum Breta og Hollendinga um að Íslendingar greiði 600 milljarða króna vegna Icesave-reikninganna." Hvar er uppreisnin? Verður hún kannski 6. mars? Á vefsvæði mbl.is þann 22. október 2008 er viðtal við óbreyttan Steingrím J. Þá blasti sú staðreynd við að AGS hafði sett þau skilyrði að mál vegna Icesave-reikninganna yrðu að fullu gerð upp við Breta og Hollendinga. Þar segir hann: „… að ef það sé rétt að þetta tvennt hangi saman sé það hrein fjárkúgun. Ekki liggi fyrir að okkur sé lagalega skylt að gera það og þetta bendi til þess að verstu martraðir séu að rætast varðandi aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins." Síðan hefur Steingrímur legið í Þyrnirósarsvefni, sem þjóðin freistar nú að vekja hann af. Síðar í sömu frétt segir Steingrímur: „Slíkar skuldbindingar upp á hundruð milljarða geti ekki verið einkamál einnar ríkisstjórnar."

Alveg hárrétt, Steingrímur. Og þaðan af síður einkamál eins manns og gamalla flokksfélaga hans. Á vefsvæði amx.is í janúar 2009 er einnig að finna merkilega tilvitnun í Steingrím: „Framan af höfðu ýmsir ráðherrar ríkisstjórnarinnar uppi stór orð um að ekki kæmi til greina að Íslendingar létu kúga sig til uppgjafar í deilunni um hina lagalegu og þjóðréttarlegu ábyrgð landsins gagnvart Icesave-reikningunum. Eins og lögfræðingar hafa bent á var hlutverk innlánatryggingarkerfa samkvæmt reglum ESB/EES-svæðisins aldrei að takast á við allsherjar bankahrun, heldur aðeins fall einstakra banka." Í sömu frétt stendur: „Eins og undirritaður lýsti yfir við atkvæðagreiðslu um málið í þinginu 5. desember síðastliðinn lítur þingflokkur Vinstri grænna á samninginn sem riftanlegan og ógildanlegan nauðungarsamning. Enn er hægt að afstýra stórslysi fyrir íslenska þjóð.

Taki Tryggingasjóðurinn hins vegar við skuldunum verður ljóst að ekki verður ekki aftur snúið: Þá hefur þjóðin endanlega verið skuldsett á grundvelli pólitískra þvingunarskilmála sem ríkisstjórnin hafði ekki dug í sér til að standa gegn." Það er ég viss um að Ragnari Reykás vöknar um augun af geðshræringu, þegar hann les um umturnaða ráðherrann sem snerist í skoðunum sínum á einu augabragði, við það eitt að skipta um stól í þingsalnum.

Höfundur er alþingismaður.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×