Skoðun

Sala fíkniefna í apótekum

Teitur Guðmundsson skrifar
Ekki er öll vitleysan eins!

Það er nánast algalið þykir mér að ætla að selja hið löglega fíkniefni tóbak í apótekum landsins. Það kemur fram í ýmsum greinum úr virtum erlendum fagtímaritum að lyfsalar, almenningur og ekki síst læknar hafa verið á móti slíkri uppstillingu og jafnvel barist árum saman fyrir því að slíkri sölu yrði hætt. Það hafa meira að segja hafa verið sett lög í Bandaríkjunum sem banna slíka sölu í apótekum og ekki að ástæðulausu.

Ég er mjög hlynntur flestum þeim tillögum sem koma fram í þingsályktunartillögu þingmanna um bann við tóbaksnotkun og er mikið framfaraskref nema hvað þetta atriði snertir. Apótek eru auðvitað selja ýmsan varning, mishollan og er hægt að hafa mismunandi skoðanir á því hvað eigi heima í sölu í slíkri verslun. En að beinlínis stilla upp sígarettum eða viðlíka óþverra nálægt sýklalyfjum og krabbameinslyfjum sem eru notuð oftar en ekki til að berjast gegn meinum af völdum tóbaks er einfaldlega fáranlegt svo ekki sé sterkar að orði kveðið.

Við læknar, sem eyðum miklum hluta af starfi okkar í að sinna forvörnum og fá fólk til að hætta að reykja, með miklum stuðningi og fortölum auk annarra aðferða hljótum að vera alfarið á móti slíkri uppstillingu. Ef við ímyndum okkur apótek og veltum fyrir okkur hvað fæst í slíkri verslun er yfirleitt það fyrsta sem kemur í huga vörur sem hafa lækningamátt samanber að ofan og við tengjum vörurnar almennt við heilsu og allt litróf hennar. Það á við um lyf, vítamín, bætiefni, sólavörn og smitvarnir eins og smokka svo eitthvað sé nefnt. Auðvitað er ýmis annar varningur til sölu en tæpast nokkuð sem jafnast á við hörmungarnar af tóbaksneyslu.

Í umræðunni undanfarið hefur verið mikið rætt um læknadóp,  sumir vilja frekar kalla það lyfjadóp,  enda mjög neikvætt orð, en þau lyf sem undir þetta orð falla eru þrátt fyrir allt í flestum tilvikum notuð í réttum tilgangi og meiningin er að lækna einstaklinga eða líkna.  Sú lína sem skilur þarna á milli í daglegu tali skaðar vissulega þá sem þurfa virkilega á lyfjunum að halda og upplifa tortryggni og stigmatiseringu.

Nú hvarflar ekki að mér að blanda sérstaklega þessum tveimur umræðuefnum saman en velti því þó fyrir mér hvað er hið raunverulega fíkniefni, þó ekki dyljist neinum að umrædd lyf og misnotkun þeirra er auðvitað fíkn líkt og að reykja. Ekki myndi hvarfla að mér sem lækni að skrifa út tóbak, en það var kannski meiningin að láta lækna stýra neyslunni, ekki held ég að það kunni góðri lukku að stýra.

Tóbak á ekki að selja í apótekum og hananú!

Ef ég væri lyfsali undir þessum kringumstæðum myndi ég hafna sölu á slíkum varningi af prinsipp ástæðum.

Það er best geymt bakvið kassann í ÁTVR þar sem er styttri opnunartími og færri útibú en lyfjaverslanir um land allt. Ef ætlunin er að gera aðgengið erfiðara væri þessi lausn að mínu viti mun skynsamlegri.

Höfundur er læknir.






Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×