Shawn Marion til blaðamanna: Hér eftir kallið þið mig heimsmeistara Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. desember 2011 15:30 Shawn Marion með þeim Vince Carter, Lamar Odom, Dirk Nowitzki og Jason Kidd. Mynd/AP
Shawn Marion var í stóru hlutverki hjá Dallas Mavericks þegar liðið tryggði sér NBA-meistaratitilinn í sumar. Framundan er nýtt tímabil en Marion er orðinn frekar pirraður á því að bandarískir fjölmiðlar séu þegar búnir að afskrifa Dallas-liðið í titilvörninni. Flestir eru uppteknir af því að lofa lið eins og Miami Heat, Los Angeles Lakers, Chicago Bulls og Oklahoma City Thunder. Það er enginn að tala um Dallas Mavericks og Marion fannst kominn tími á að taka fjölmiðlamenn á teppið. „Ég vil að þið allir kallið mig hér eftir heimsmeistara," sagði Shawn Marion. „Við erum komnir í þá stöðu að allir eru farnir að afskrifa okkur og eru uppteknir við að tala um alla aðra. Ég er orðinn mjög pirraður á þessu. Þið eruð allir að taka eitthvað frá okkur það sem við unnum hörðum höndum fyrir," sagði Marion. „Það hafa allir í þessu liði unnið sér þann rétt að vera kallaðir heimsmeistarar og ég óska þess að við verðum kallaðir okkar rétta nafni hér eftir," sagði Marion. Shawn Marion var með 11,9 stig og 6,3 fráköst að meðaltali á 32,9 mínútum í úrslitakeppninni í vor. Hann var þá að klára sitt annað tímabil með Dallas eftir að hafa spilað með Phoenix, Miami og Toronto frá 1999 til 2009.
NBA Mest lesið Liverpool með fullt hús stiga á meðan Real er rjúkand rúst Fótbolti „Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“ Handbolti Haukar dæmdir úr bikarnum og ÍBV fer áfram Handbolti Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri Handbolti Guardiola allur útklóraður eftir leik Fótbolti Dagný gleymd eða afskrifuð?: Hefur ekkert heyrt í landsliðsþjálfaranum Fótbolti Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni Enski boltinn „Gætu gert hrikalega góða hluti með íslenska landsliðið“ Fótbolti Segir það sárt að vera ekki velkominn hjá Liverpool Enski boltinn Laumaði hauskúpu afa síns inn á úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Haukar voru betri í dag Leik lokið: Haukar - Keflavík 100-83 | Þægilegur Haukasigur í stórleiknum „Mikilvægasti sigur í sögu íslensks körfubolta“ Aðalkeppinautar Íslands um sæti á EM skoruðu ótrúlega körfu Umboðsmaðurinn sérstaki sem kom með fyrstu Kananna til landsins Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 77-67 | Grænar unnið fimm í röð Albert sá sögulegan sigur strákana okkar og Martin stríddi Ítölum Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Stærstu sigrar íslenska körfuboltalandsliðsins í gegnum tíðina Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Kristinn: Við vorum geggjaðir Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Lögmál leiksins: „Leifur, ertu með glósur?“ Dwayne Lautier á leið í aðgerð og verður frá í 6-8 vikur Sneri aftur í landsliðið í fyrsta sinn eftir að hafa misst nýrað Kallaði dómarann tík og rúmlega það LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Björgvin aftur í Breiðholtið Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Hefur Ben Simmons náð botninum? Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Fer á mjög dimman stað þegar lið hans tapar „Fannst þeir sýna meiri hörku, sem ég átti erfitt með“ „Auðvitað söknum við okkar besta og reynslumesta manns“ Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Sjá meira