Tíska og hönnun

Spáir mikið í falleg föt

Sigurður lumar á flottum flíkum í fataskápnum. Mynd/GVA
Sigurður lumar á flottum flíkum í fataskápnum. Mynd/GVA
Þetta er fallegur trefill og fallegt munstur, ég nota hann alltaf þegar kalt er í veðri," segir Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður, sem vakti athygli fyrir stuttu í sjónvarpsviðtali með gæðalegan trefil um hálsinn.

Trefillinn er eftir íslenska fatahönnuðinn Munda Vonda og bað Sigurður um hann sérstaklega í sextugsafmælisgjöf.

„Mér fannst trefillinn flottur þegar ég sá hann í búðinni og bað konuna mína um að gefa mér hann. Ég er frekar klassískur í klæðavali en spái þó mikið í föt. Kannski má kalla það merkjasnobb, en það er ekki þannig, ég hef bara áhuga á fallegum fötum og góðum efnum," segir Sigurður sem lumar á flíkum eftir japanska tískuhönnuðinn Yamamoto í fataskápnum og frá íslenska merkinu Andersen & Lauth. „Ugglaust má kalla mig smekkmann," bætir hann kankvís við og útilokar ekki að kíkja aftur til Munda og bæta í fataskápinn.

Treflarnir hafa rokið út hjá Munda eins og heitar lummur og eru nánast uppseldir. Hæstaréttarlögmenn eru allajafna ekki stærsti viðskiptavinahópur Munda en hann telur þá eiga fullt erindi í búðina til sín.

„Það eru náttúrlega bara menn eins og Sigurður sem hafa efni á þessum treflum," segir Mundi hlæjandi, en trefillinn kostar 18.500 krónur og er nú á útsölu á 14.900 krónur. „Ég á alveg von á að það komi einhverjir tappar og versli hjá mér eftir að hafa séð hann með trefilinn. Menn í hans klassa eiga endilega að koma við hjá mér og finna eitthvað sniðugt á sig."

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.