Skoðun

Sjónarspil á þingi

Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar
Á fyrsta nefndarfundi Alþingis eftir sumarfrí var það val ríkisstjórnarflokkanna að kalla saman þrjár nefndir, utanríkismálanefnd, sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd og umhverfisnefnd. Málefnið var fundur í Alþjóðahvalveiðiráðinu sem haldinn var fyrr í sumar.

Á þeim fundi urðu engar breytingar á stefnu Íslands – embættismenn þjóðarinnar unnu sína vinnu faglega og vel. Stóðu á rétti okkar til veiða og unnu að því að gera vinnu Alþjóðahvalveiðiráðsins marktæka og skynsama.

Formönnum utanríkismálanefndar og umhverfisnefndar fannst greinilega ekki nægjusamlega vel að verki staðið og töldu forgangsmál að fara yfir málið með þessum þremur nefndum.

Nú er það svo að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fer með málefni hvalveiða. Á þeim ráðherrastóli situr einn þingmaður VG – samflokksmaður formanns utanríkismálanefndar.

Þeir mega vera ósammála um þetta eins og annað. Það er einnig þannig að ekkert athugavert er að kalla saman nefndir til að fjalla um mikilvæg mál – og nauðsynlegt að upplýsa þingmenn um stöðuna.

Stóra spurningin er þessi; er þetta það mál sem hefur hæstan forgangskvóta hjá formanni utanríkismálanefndar og ríkisstjórn VG og Samfylkingar. Í því sambandi vil ég minna á beiðni undirritaðs og einnig beiðni Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknar, frá því fyrr í sumar að kalla saman utanríkismálanefnd ásamt sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd til að fjalla um viðræður við ESB.

Ekki síst í ljósi þess ástands sem er á evrunni og fjármálamörkuðum í Evrópu og vestanhafs.

En einnig vegna sérkennilegra yfirlýsinga utanríkisráðherra um að Ísland þurfi engar undanþágur í sjávarútvegsmálum og að utanríkisráðherra einn geti mótað samningsskilyrði Íslands. Jafnframt ástæður þess að samningahópar um landbúnaðar- og sjávarútvegsmál funda ekki með reglulegum hætti og ástæður þess að utanríkisráðherra hefur ekki haft samráð við hagsmunasamtök, alþingismenn o.fl. eins og kveðið var á um þegar sótt var um aðild.

Væri ekki mikilvægara að fjalla á opnum fundi um ESB viðræðurnar. Þar eru þó breyttar aðstæður sbr. efnahagshrun landa Suður-Evrópu. En einnig vegna þess að þar virðist ráðherra utanríkismála fara frjálslega með samþykktir Alþingis og stefnu.

En – nei, að mati formanns utanríkismálanefndar og þeirra sem stýra för hjá ríkisstjórn VG og Samfylkingar var það efst í forgangsröð að fjalla um fund sem haldinn var fyrir mánuði um hvalveiðar.

Hér liggur eitthvað undir steini! Skyldi það vera fiskur? Eða eitthvað annað – ef til vill ESB?




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×