Skoðun

Stuðningsgrein: Lýðræði er alltaf svarið

Inga Sigrún Atladóttir skrifar
Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi hefur einstaka innsýn í valdaþræði íslensks samfélags. Herdís er samt sem áður ekki dómhörð og tekur sér ekki stöðu gegn fyrirtækjum og fjármagnseigendum heldur talar opinskátt um það sem þarf að breytast.

Ég held að næmni hennar á íslenskt samfélag sé ekki tilviljun. Hún ólst upp með hernum á Keflavíkurflugvelli og hún hefur tengsl inn í innsta kjarna sjálfstæðisflokksins. Þessa innsýn hefur Herdís nýtt sér til að taka eindregna afstöðu gegn sterkum hagsmunaaðilum og þeim sem vinna gegn grundvallarmannréttindum.

Áherslur Herdísar Þorgeirsdóttir í forsetabaráttunni eru: lýðræðisleg umræða, gagnsæi og takmörkun á valdi peninganna. Einkunnarorð framboðsins eru "Lýðræði er alltaf svarið".

Ég var fyrst kjörin í sveitarstjórn 2006 og sú reynsla hefur sannfært mig um að Ísland þurfi á lýðræðislegum umbótum að halda. Spilling, yfirdrifin hagsmunagæsla, hótanir og mútur eru því miður staðreynd á Íslandi. Áður en ég fór að taka þátt í pólitík hélt ég að umræðan um tengsl stjórnmálamanna og hagsmunahópa væru orðum auknar. En því miður er það ekki þannig.

Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að Ísland er lítið og með vitundarvakningu og öflugri umræðu getum við breytt þessu. Stjórnmál eiga að stjórnast af hugsjónum og almannahagsmunum en ekki af stundargróða og sérhagsmunum. Þjóðmálaumræða ætti að beinast að því að finna raunverulega hagsmuni í umræðunni og spyrja sig um raunverulega hvata að baki málflutningi manna.

Flestir íslendingar eru orðnir yfir sig þreyttir á deilum um hrunið og afleiðingar þess. En þrátt fyrir það megum við ekki gleyma, við verðum að ljúka við að vinna úr þeim staðreyndum sem hrunið leiddi í ljós. Við þurfum að horfast í augu við þá samfélagsgerð sem það opinberaði og viðurkenna þau vinnubrögð sem fengu að þróast í okkar lýðræðislega umhverfi. Við þurfum að koma sterk út úr umræðunni og halda bjartsýn áfram uppbyggingu landsins. Þá vegferð getur Herdís Þorgeirsdóttir leitt.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×