Skoðun

Sérfræðingur að sunnan

Brynjar Níelsson skrifar
Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu sagt mig hafa brotið siðareglur lögmanna og vegið að starfsheiðri hennar sem lögmanns í síðasta pistli mínum á Pressunni. Forsaga málsins er sú að Helga Vala hafði í viðtali á RÚV sagt héraðsdómara hafa brotið gegn ungum mönnum sem komu til landsins á fölsuðum skilríkjum með því að dæma þá til fangelsisrefsingar. Vísaði hún í því sambandi til 31. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu Þjóðanna sem ekki hefur verið lögfestur hér á landi.

Ég taldi í mínum pistli þessa túlkun undarlega og í engu samræmi við skýran texta ákvæðisins. Þar að auki hefur Hæstiréttur margdæmt þá til refsingar sem reynt hafa að koma til landsins með því að framvísa fölsuðum skilríkjum án þess að gefa sig fram við yfirvöld. Um þetta eru því skýr og fjölmörg dómafordæmi. Með hliðsjón af því og að Helga Vala hefur látið málefni hælisleitenda sig varða í pólitísku starfi sem flokksmaður og varaþingmaður Samfylkingarinnar velti ég því fyrir mér hvort lögfræðingurinn Helga eða stjórnmálamaðurinn Vala væri að tjá sig um dóminn.

Þegar Helga Vala gefur álit í fjölmiðlum á málum sem til umræðu eru verður hún að vera undir það búin að einhver andmæli henni. Skiptir þá engu máli hvort það eru félagar hennar í Lögmannafélaginu eða aðrir. Helga Vala var ekki að sinna lögmannsstörfum þegar hún gaf álit sitt á brotlega héraðsdómaranum og túlkun á gildandi lögum og reglum. Með gagnrýni minni er ég því ekkert að vega að starfsheiðri hennar sem lögmanns. Ég taldi bara túlkun hennar á gildandi rétti vera ranga. Ég hef hins vegar enga ástæðu til að ætla annað en að Helga Vala sinni lögmannsstörfum sínum af samviskusemi og gæti hagsmuna umbjóðanda síns í hvívetna eins og lögmönnum ber.

Helga Vala segir að ég hafi kallað hana „svokallaðan sérfræðing" og hafi leyft mér á opinberum vettvangi að efast um þekkingu hennar í flóttamannarétti, sakamálaréttarfari og refsilögum. Ég hvorki kallaði hana „svokallaðan sérfræðing" né efaðist ég um þekkingu hennar í flóttamannarétti eða öðrum greinum lögfræðinnar. Umfjöllun mín um „svokallaða sérfræðinga" var í tengslum við dæmalausa orðræðu Marðar Árnasonar sem tók að sér í þingsal að vega að starfsheiðri verjanda mannanna og taldi nær að tilefndir yrðu sérfræðingar að sunnan til að halda uppi vörnum fyrir hælisleitendur. Ég vissi ekki að Mörður ætti við samflokksmann sinn, Helgu Völu, þegar hann talaði um sérfræðinga að sunnan.

Ég hef hins vegar oft velt því fyrir mér, ótengt þessu máli, hvernig menn verða sérfræðingar, sérstaklega þegar þeir eru nýútskrifaðir úr skóla. En einhvern veginn verða sumir sérfræðingar í öllu öðru fremur um leið og þeir opna munninn í fjölmiðlum.


Tengdar fréttir

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa framvísað fölsuðum skilríkjum í Leifsstöð.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×