Innlent

Ábendingum vegna nuddstofu rignir inn

Lína Jia
Lína Jia
Alþýðusambandinu bárust ábendingar í gær frá fyrrverandi viðskiptavinum Línu Jia, eiganda nuddstofa á höfuðborgarsvæðinu, um starfsemi hennar á stofunum. Nokkrir hringdu einnig inn til Fréttablaðsins eftir umfjöllun gærdagsins um rannsókn lögreglu á starfsemi konunnar vegna gruns um mansal.

Mál tengd Línu og eiginmanni hennar hafa komið reglulega upp hjá ríkisstofnunum á undanförnum árum og hafa nokkur þeirra endað fyrir dómstólum, flest tengd fjársvikum og vafasamri atvinnustarfsemi.

ASÍ var meðal þeirra sem komu að máli hennar árið 2006 þegar henni var gert að greiða kínverskum manni fimm milljónir króna í vangoldin laun.

Halldór Grönvöld, aðstoðarframkvæmdastjóri og deildarstjóri félagsmáladeildar ASÍ, segir ýmis klækjabrögð hafa verið í gangi í kringum málið. Nafni fyrirtækisins hafi meðal annars verið breytt og eiginmaður Línu verið gerður að forsvarsmanni þess.

„Þau gerðu ýmislegt til að hylja slóð sína," segir Halldór. „Og viðskiptavinir þessarar nuddstofu lýstu því fyrir mér [í gær] að þeim hafi fundist margt athugavert við starfsemina. En því miður kom það ekki fram fyrr en þetta var orðið blaðamál."

Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu, vann áður hjá Alþjóðahúsi og segir það algjörlega út úr kortinu að Lína hafi ekki verið ákærð fyrir mansal árið 2005, þegar hún var einungis ákærð fyrir skjalafals.

„Það er alveg út í hött. Þetta var klárt mansalsmál frá fyrstu tíð samkvæmt alþjóðlegum skilgreiningum," segir hún. „En það vantaði upp á meðvitundina á þessum tíma. Við bentum á að það væri fullt af fólki sem væri í raun fórnarlömb mansals þó það hafi komið af fúsum og frjálsum vilja til landsins, eins og var í þessu tilviki forsenda þess að hún var ekki ákærð."

Ekki náðist í Línu Jia í gær.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×