Lífið

Kaupir kvikmyndaréttinn að krimmanum Snjóblindu

samningur í höfn Þorvaldur Davíð Kristjánsson ásamt Ragnari Jónassyni og Bjarna Þorsteinssyni, útgáfustjóra Veraldar.
samningur í höfn Þorvaldur Davíð Kristjánsson ásamt Ragnari Jónassyni og Bjarna Þorsteinssyni, útgáfustjóra Veraldar.
Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn að glæpasögunni Snjóblindu eftir Ragnar Jónasson og voru samningar þess efnis undirritaðir á dögunum.

Samningurinn miðast við að Þorvaldur Davíð leiki sjálfur Ara Þór, aðalpersónu bókarinnar, ásamt því að vera einn af framleiðendunum.

„Ég er himinlifandi yfir að samningar hafa tekist og mér skuli vera treyst fyrir kvikmyndaréttinum að Snjóblindu Ragnars Jónassonar. Fléttan í sögunni er þéttofin og lausnin óvænt, sögusviðið er myndrænt og persónugalleríið frábært. Snjóblindu prýðir því allt sem prýða þarf góða sögu og hún hentar einstaklega vel til kvikmyndunar," segir Þorvaldur Davíð, sem er í viðræðum við hugsanlega meðframleiðendur bæði hér heima og erlendis.

Hann er hvað þekktastur fyrir leik sinn í Svartur á leik, sem er önnur tekjuhæsta íslenska kvikmynd sögunnar. Hann varð fyrsti Íslendingurinn til að komast inn í leiklistardeild hins virta Juilliard-háskóla í New York þaðan sem hann útskrifaðist í fyrra. Hann hlaut Menningarverðlaun American Scandinavian Society árið 2010 og fékk Robin Williams-styrk sem skólinn veitir.

Ragnar er ánægður með að Þorvaldur Davíð ætli að koma Snjóblindu í nýtt og spennandi form.

„Vonandi mun þetta verkefni einnig vekja áhuga áhorfenda á að heimsækja sögusviðið, Siglufjörð. Það er auk þess frábært að Þorvaldur ætli að takast á við það að gæða söguhetjuna lífi en hann smellpassar svo sannarlega í hlutverk lögreglumannsins unga, Ara Þórs," segir rithöfundurinn.

Snjóblinda kom út 2010 og var útnefnd ein af fjórum bestu skáldsögum haustsins í Þýskalandi í fyrra af tímaritinu Gala. Nýlega kom út þriðja bók Ragnars um lögreglumanninn Ara Þór. Hún nefnist Rof og gerist á Norðurlandi, líkt og Snjóblinda, nánar tiltekið í eyðifirðinum Héðinsfirði.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.