Skoðun

Fjárfestingaáætlun á fjárlög

Katrín Júlíusdóttir skrifar
Fjármögnun fjárfestingaáætlunar ríkisstjórnarinnar sem kynnt var sl. vor hefur nú verið tryggð, en áætlunin var sett fram með fyrirvara um tekjur af veiðigjöldum og arði úr bönkum. Hvort tveggja hefur nú gengið eftir. Á næsta ári fara því alls 10,3 milljarðar króna á fjárlögum næsta árs í verkefni fjárfestingaáætlunar sem auka munu fjárfestingu og styðja við vaxandi atvinnugreinar til að skapa hagvöxt og ný störf.

Veiðigjald í samgöngur og nýsköpunÍ fjárfestingaáætlun er arði þjóðarinnar af fiskveiðiauðlindinni veitt til samgöngubóta um land allt. Þannig var hægt að flýta Norðfjarðar- og Dýrafjarðargöngum og öðrum brýnum vegabótum og leggja aukið fé til hjólreiða á samgönguáætlun, svo fátt eitt sé talið. Háskóla- og atvinnulíf framtíðarinnar var jafnframt stóreflt með auknu fé til rannsóknasjóðs og tækniþróunarsjóðs, auk markáætlana sem beinast að sérstökum áherslusviðum í vísinda- og atvinnumálum. Alls verða framlög til þessara þátta 3,8 milljarðar á næsta ári.

Hinar skapandi greinarÖnnur verkefni á fjárfestingaáætlun eru fjármögnuð með arði úr bönkum. Framlög í Kvikmyndasjóð Íslands verða hækkuð úr 530 í 1.000 m.kr á ári. Þetta hefur margföldunaráhrif því fyrir hverja krónu sem þar er lögð fram sækja kvikmyndagerðarmenn um þrjár til viðbótar í verkefni sín erlendis frá. Jafnframt verður komið á fót verkefnasjóði skapandi greina sem styrkja mun hönnun og myndlist auk þess sem framlög til tónlistar og bókmennta verða aukin en alls munu 250 m.kr árlega renna í verkefnasjóði skapandi greina.

Græna hagkerfiðTil að fylgja eftir tillögum sem Alþingi sameinaðist um til eflingar grænu atvinnulífi á Íslandi verður varið 3,5 milljörðum næstu þrjú ár og þar af um milljarði á næsta ári. Mikil sóknarfæri eru á þessu sviði og til að örva fjárfestingar verður settur á laggirnar grænn fjárfestingasjóður sem fjárfesta mun í fyrirtækjum í umhverfisvænni starfsemi. Hann fær milljarð í stofnfé úr ríkissjóði en stefnt er að því að þrír fjórðu hlutar stofnfjár komi annars staðar frá. Græn skref ríkisstofnana, stuðningur og hvati til að grænka fyrirtæki og verkefni á sviði orkuskipta fá einnig framlög til að auka samkeppnishæfni Íslands með umhverfislausnum.

Efling innviða í ferðamannaþjónustuSérstök áhersla er á að styðja við uppbyggingu ferðaþjónustu um landið. Veittar verða 500 milljónir til viðbótar í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða næstu þrjú árin. Auk þess sem gert verður sérstakt átak í að byggja upp innviði þjóðgarða og viðkvæmra náttúrusvæða fyrir andvirði 250 m.kr á ári. Þá er ráðgert að reisa Kirkjubæjarstofu, sem verður anddyri að Vatnajökulsþjóðgarði. Hús íslenskra fræða verður hús yfir handritin okkar sem geta orðið svipað aðdráttarafl og önnur fegurstu listaverk heimsins og peningar verða settir í að koma á fót langþráðri náttúruminjasýningu. Þá er tryggt fé til endurnýjunar á nýjum Herjólfi og endurbóta í Landeyjahöfn en allt eru þetta einnig dæmi um ferðaþjónustutengdar fjárfestingar.

Úr vörn í sókn með framtíðarsýnFjárfestingaáætlun er hluti af efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Hún miðar að því að auka fjárfestingar og draga úr atvinnuleysi. Hún felur einnig í sér nýja og skýra atvinnupólitík. Hún byggir á þekkingu og hugvitsgreinum. Hún er skapandi og hún er græn. Því fer hins vegar fjarri að ríkisstjórnin eigi fjárfestingaáætlunina ein. Þvert á móti byggir hún á vandaðri og viðamikilli stefnumótun sem hundruð Íslendinga um land allt hafa komið að í gegnum Sóknaráætlun fyrir Ísland, þjóðfundi hennar og sérfræðivinnu. Fjárfestingaáætlun er því sameign okkar allra, til marks um nýja tíma og nýja framtíðarsýn og þann metnað og kraft sem við viljum að einkenni næstu ár á Íslandi.

Framlög til verkefna innan fjárfestingaáætlunar árið 2013 (m.kr.)

Verkefni fjármögnuð með veiðigjaldi og leigutekjum skv. fjárlagafrumvarpi 2013 4.200

Samgönguframkvæmdir, aukning 2.500

Rannsóknar- og tækniþróunarsjóður, aukning 1.300

Sóknaráætlun landshluta* 400

Ný verkefni fjármögnuð með arðgreiðslum við 2. umr. fjárlagafrumvarps 6.130

Fasteignir 3.430

Fangelsi 1.000

Hús íslenskra fræða 800

Herjólfur/Landeyjahöfn 640

Náttúruminjasafn/sýning 500

Kirkjubæjarstofa 290

Húsverndarsjóður, aukning 200

Græna hagkerfið 1.030

Grænn fjárfestingasjóður, nýtt 500

Græna hagkerfið og grænkun fyrirtækja, nýtt 280

Græn skref og vistvæn innkaup, nýtt 150

Grænar fjárfestingar, nýtt 50

Orkuskipti í skipum, nýtt 50

Skapandi greinar 920

Kvikmyndasjóður, aukning 470

Verkefnasjóðir skapandi greina, nýtt 250

Netríkið Ísland, aukning 200

Ferðaþjónusta 750

Uppbygging ferðamannastaða, aukning 500

Innviðir friðlýstra svæða, nýtt 250

Samtals 10.330




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×