Lífið

Stjakarnir mynda fullkomna óreglu

[email protected] skrifar
heilluð af fimm- hyrningum Vöru- og innanhússhönnuðurinn Sonja Björk Ragnarsdóttir hefur sent frá sér kertastjakana 5 frá SO by Sonja sem fást meðal annars í Kraumi. 
Fréttablaðið/Stefán
heilluð af fimm- hyrningum Vöru- og innanhússhönnuðurinn Sonja Björk Ragnarsdóttir hefur sent frá sér kertastjakana 5 frá SO by Sonja sem fást meðal annars í Kraumi. Fréttablaðið/Stefán
„Mér fannst vanta kertastjaka fyrir há kerti sem væru ekki hringur. Ég er sjálf meira fyrir einfaldleika og beinar línur," segir Sonja Björk Ragnarsdóttir, innanhúss- og vöruhönnuður, sem á heiðurinn að kertastjökunum 5 frá So by Sonja.

Kertastjakarnir komu í búðir fyrir stuttu en hafa vakið athygli fyrir skemmtilegt form sitt. Þeir eru fimmhyrningar og fást í mörgum litum og stærðum. „Mér fannst vera mikið um sexhyrninga í hönnun en lítið um fimmhyrninginn en sjálfri finnst mér hann heillandi því það er ekki hægt að raða honum í rétta röð. Hann myndar því hina fullkomna óreglu, svolítið eins og lífið sjálft," segir Sonja Björk og bætir við að það hafi svo verið óvæntur bónus að stjakarnir líkjast stuðlabergi þegar þeir eru settir saman.

„Ég var ekkert að hugsa um það fyrr en mér var bent á það, það er greinilegt að þetta íslenska náttúrueinkenni hefur verið í undirmeðvitundinni hjá mér við hönnunina."

Sonja Björk er nýflutt heim eftir fimm ára námsdvöl erlendis þar sem hún var eitt ár í Bandaríkjunum og fjögur í Mílanó þar sem hún nam innanhúss- og vöruhönnun. Einnig var Sonja Björk í vinnu hjá tískumerkinu Tod"s, sem sérhæfir sig í fylgihlutum og skóm, þar sem hún sá um útstillingar og glugga í búðum merkisins.

„Mér fannst vera kominn tími á að ég kæmi heim núna. Þetta var komið gott úti og öfugt við marga finnst mér Ísland hafa upp á svo margt að bjóða. Hér leynast tækifæri en þegar maður hefur búið úti sér maður oft hlutina í öðru ljósi. Hér er auðveldara að nálgast allt, byrja smátt og þróa að mínu mati."

Kertastjakar Sonju fást í búðinni Kraumi við Aðalstræti og hægt er að skoða þá að Facebook-síðunni So by Sonja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.