Skoðun

Efnahagur við hengiflug

Kristinn H. Gunnarsson skrifar
Þjóðarbúið er fjárhagslega í alvarlegri stöðu en nokkru sinni fyrr. Brýnasta verkefni stjórnvalda á næsta kjörtímabili verður að koma í veg fyrir stóráföll og leggja grunn að bættum lífskjörum síðar. Margt hefur verið vel gert eftir bankahrunið en því fer fjarri að mestur vandinn sé að baki. Öðru nær, stjórnvöld þurfa á næstu árum að taka mjög erfiðar ákvarðanir ef ekki á illa að fara.

Ef gjaldeyrishaftanna nyti ekki við er líklegt að gengið myndi falla um 40%. Seðlabankinn keypti nýlega evrur í gjaldeyrisútboði og greiddi 233 krónur fyrir hverja evru. Þá var opinbera gengið 167 kr. Fjörutíu prósenta gengisfelling lækkar kaupmátt um 20% innan árs og um 40% þegar öll áhrifin yrðu komin fram. Gjaldeyrishöftin halda uppi kaupmætti umfram það sem annars er raunhæft. Ef takast á að finna úrræði sem mun á næstu árum minnka þennan vanda án verulegrar kjaraskerðingar, þarf að verða aukin verðmætasköpun, stöðugleiki í efnahagsmálum, lág verðbólga og hallalaus rekstur hins opinbera. Gjaldeyrishöft til lengri tíma munu aldrei halda að fullu og leiða til stöðugrar verðbólgu, sem mun svo skerða lífskjörin.

Hið opinbera stendur illa og ber ekki aukin útgjöld. Heildarskuldir eru ríflega 1500 milljarðar króna. Til viðbótar eru svo um 500 milljarða króna skuldbindingar vegna lífeyrisréttinda og Íbúðalánasjóðs. Ríkissjóður er rekinn með halla. Vaxtakostnaður hans er um 90 milljarðar króna á ári. Fjármálaráðuneytið metur stöðuna alvarlega í skýrslu frá október 2011 og telur að greiða þurfi niður skuldir á næstu 3-6 árum um 600 milljarða króna, að öðrum kosti muni vaxtakostnaður aukast enn og skera þurfi ríkisútgjöld niður enn frekar. Víst er að gera þarf kerfisbreytingu í ríkisútgjöldum þar sem almennur niðurskurður gengur ekki lengur.

Í þessari stöðu eru stjórnmálaflokkarnir í aðdraganda kosninga að bjóða aukin ríkisútgjöld sem ekki er til fyrir. Sumir bjóða meira í barnabætur og fæðingarorlof en aðrir að ríkissjóður greiði niður fasteignaskuldir einstaklinga fyrir allt að 270 milljarða króna. Verði þessi firring að veruleika förum við fram af hengifluginu og allir munu tapa. Fjárhagslegt sjálfstæði þjóðarinnar er undir á þessum uppboðsmarkaði kosningaloforðanna.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×