Skoðun

Að loknu sumarþingi

Þorsteinn Sæmundsson skrifar
Það hefur sannarlega verið viðburðaríkt og upplýsandi fyrir nýliða á Alþingi að taka þátt í nýliðnu sumarþingi. Það er vissulega mikil upphefð og mikil ábyrgð að setjast á Alþingi Íslendinga sem kjörinn fulltrúi. Nýliðar þurfa að meðtaka mikinn fróðleik á stuttum tíma, bæði hvað varðar starfsemi þingsins og ekki síður við að setja sig inn í þau mál sem til meðferðar eru hverju sinni. Margt hefur komið á óvart og reynst með öðrum hætti en maður vænti.



Eins og margir hef ég fylgst með störfum Alþingis fyrst og fremst í gegnum umfjöllun og fréttir fjölmiðla en einnig með því að lesa blaðagreinar og kynna mér mál á heimasíðu þingsins. Það hefur komið mér á óvart hversu mikill hluti starfs þingmanna fer fram utan við þingsalinn, einkum í nefndum. Starf í nefndum þingsins er afar yfirgripsmikið, flókið og krefjandi. Starfið er þaulskiplagt sem er nauðsynlegt vegna þeirra erinda, umsagna en ekki síst fjölda gesta sem nefndirnar taka á móti.



Nýliðar á Alþingi fá afskaplega góðar móttökur hjá starfsfólki þingsins sem er boðið og búið að veita okkur aðstoð við hvað sem vera skal. Þar er sannarlega valinn maður í hverju rúmi. Við sem höfum fengið þann heiður að setjast í forsætisnefnd þingsins höfum gaumgæft þingsköpin og verður ærið verkefni að reyna að verða fullnuma í öllu því sem starfandi forseti þarf að kunna skil á. Það er því ómetanlegt að þiggja leiðsögn og fróðleik frá því ágæta fólki sem heldur í höndina á okkur varaforsetunum meðan við erum að byrja að fóta okkur.



Það hefur verið ánægjulegt og fróðlegt að kynnast eldri og reyndari þingmönnum, bæði meðal fulltrúa meirihluta og minnihluta. Þar fara margir reyndir bardagamenn sem búa yfir mikilli þekkingu. Margt má af þeim læra, bæði góða siði og verri. Nokkuð góð samstaða virðist annars ríkja innan þings þó að hart sé tekist á um mikilvæg mál þar sem pólitískar átakalínur liggja. Ekki eigum við eftir að komast fram hjá slíkum átökum en von mín er þó sú að á haustþingi mæti allir undirbúnir og reiðubúnir að afgreiða þau brýnu hagsmunamál fólksins í landinu, kjósenda okkar sem bíða í ofvæni eftir lausnum. Ég vona að vel megi takast til og að breið samstaða myndist.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×