Skoðun

Norðurslóðir í brennidepli

Gunnar Bragi Sveinsson skrifar

Þessa vikuna eru haldnar þrjár spennandi alþjóðaráðstefnur á Íslandi þar sem norðurskautssvæðið er í brennidepli. Skoðanaskipti og umræða um norðurslóðamál eru rauður þráður í stefnu íslenska stjórnvalda og styrkir ábyrga stefnumótun um málefni svæðisins. Yfirskrift og inntak ráðstefnuhaldsins er víðtækt og tekur á málefnum sem eru efst á baugi í okkar heimshluta, m.a. orkumál, alþjóðalög og alþjóðasamstarf.



Það er ekki tilviljun að tvær af þessum þremur ráðstefnum fara fram á Akureyri. Háskólinn á Akureyri, ásamt Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og skrifstofum vinnuhópa Norðurskautsráðsins þar í bæ, hefur um langt árabil haft forystu um fræðilega umræðu um málefni heimskautasvæða.



Orkumálin eru umfjöllunarefni Orkuþings norðurslóða sem fer fram á Akureyri þessa dagana. Þingið er hluti af málefnavinnu starfshóps Norðurskautsráðsins um sjálfbæra þróun sem Ísland og Bandaríkin leiða. Leit, vinnsla og nýting orkuauðlinda norðursins felur í sér áskoranir og tækifæri sem mikilvægt er að ræða.



Alþjóðalög og lögfræðileg álitamál sem tengjast heimskautasvæðunum í suðri og norðri eru viðfangsefni ráðstefnu um heimskautarétt sem hefst á Akureyri 11. október á vegum Háskólans á Akureyri og Heimskautaréttarstofnunar. Viðbrögð við hraðfara breytingum á náttúrufari, samfélögum og auðlindanýtingu þurfa að eiga sér styrka stoð í alþjóðalögum. Jafnframt er brýnt að fjalla um það hvernig við bregðumst við breyttum veruleika, til dæmis í samningagerð og við stjórnun auðlinda.



Það fer vel á því að heimskautaréttarráðstefnan teygi sig til Reykjavíkur 13. október. Þar rennur hún saman við ráðstefnuna Hringborð norðurslóða, sem undir forystu hr. Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, er kröftugt innlegg í alþjóðlega umræðu um heimskautasvæðin.



Íslensk stjórnvöld leggja sín lóð á vogarskálarnar til að efla umfjöllun um norðurslóðamál. Það eykur skilning á þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir og styrkir stöðu Íslands á alþjóðavettvangi. Ráðstefnurnar eru allar þarft innlegg í þessa umræðu og það er fagnaðarefni að svo öflugt starf fari fram hér á landi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×