Skoðun

Hvað er í húfi á Landspítala?

Læknar á Landspítala skrifar
Það er ekki tilviljun að alvarlegur vandi Landspítala er nú stöðugt til umræðu. Starfsfólk, nemar og sjúklingar koma nær daglega fram í fjölmiðlum og lýsa bráðavanda ýmissa lykildeilda sjúkrahússins. Þessir einstaklingar bera hag sjúklinganna fyrir brjósti og telja aðbúnað þeirra óásættanlegan. Það er mikið í húfi því að ástandið á sjúkrahúsi allra landsmanna varðar allan almenning og er ekki einkamál stjórnmálamanna. Staðreyndin er sú að ástandið á Landspítala hefur ekki verið jafn alvarlegt síðustu fjóra áratugi.

Áhyggjur sjúklinga og starfsfólks

Sjúklingar, starfsfólk og almenningur hafa áhyggjur af þeirri takmörkuðu þjónustu sem hægt er að veita. Starfsfólk er langþreytt á viðvarandi niðurskurði og hefur miklar áhyggjur af þeirri slæmu aðstöðu sem sjúklingum og starfsmönnum er boðin. Ekki bætir úr skák að ekkert samhengi reyndist á milli kosningaloforða og efnda sem birtust í fjárlagafrumvarpinu.

Þetta skilningsleysi á alvarlegri stöðu spítalans olli starfsmönnum gríðarlegum vonbrigðum og er algjörlega úr takti við umræðuna í þjóðfélaginu. Ráðherrum og alþingismönnum, sem við efumst ekki um að vilja láta gott af sér leiða, getur vart staðið á sama þegar ýmsar lykileiningar spítalans eru í dag reknar eftir neyðaráætlun. Hversu lengi getur það gengið? Með aðstoð nema hefur langþreytt starfsfólk með auknu vinnuframlagi, haldið starfseminni gangandi, án þess að yfirvinna sé alltaf greidd. Þessi staða hefur leitt af sér atgervisflótta og vítahring vaxandi manneklu sem ekki sér fyrir endann á.

Við teljum að enn sé hægt að sporna við landflótta lækna og annarra lykilstarfsmanna. Það stendur þó tæpt og grípa þarf strax til aðgerða sem verða að fela í sér fjárfestingu í mannauði, tækjum og aðstöðu á Landspítala. Slík fjárfesting mun skila sér í bættri heilsu og líðan allra landsmanna þegar þeir þurfa mest á hjálp að halda.

Brestir í starfsemi lykildeilda

Alvarlegir brestir eru komnir í starfsemi lyflækningasviðs, stærsta sviðs Landspítala svo og í starfsemi annarra deilda, t.d. myndgreiningardeildar og hjartaskurðdeildar. Þetta veldur skiljanlega áhyggjum úti í samfélaginu. Ljóst er að Alþingi Íslendinga verður að snúa þessari þróun við með því að rétta hlut spítalans í afgreiðslu fjárlaga. Því er mjög ánægjulegt að þingmenn úr öllum flokkum hafa á undanförnum vikum kynnt sér stöðu Landspítala og lýst yfir stuðningi við að veita til hans nauðsynlegu fjármagni. Einnig ber að fagna þingsályktunartillögu nokkurra þingmanna um að ráðast tafarlaust í byggingu nýs spítala.

Fé er vissulega takmarkað og forgangsraða verður til nauðsynlegra verkefna. Landspítalinn hefur lengi þurft að forgangsraða í sinni starfsemi. Starfsfólk og sjúklingar á Landspítala kynnast því daglega, t.d. þegar sjúkrarými duga ekki til. Þegar sjúkrarúmum hefur fækkað í sparnaðarskyni þarf að forgangsraða og ákveða hvaða sjúklingar þurfa mest á innlögn að halda. Þó svo að ýmis mikilvæg verkefni í okkar samfélagi bíði úrlausnar, þá hlýtur áframhaldandi heilbrigði og velferð sjúklinga að vera þar efst á blaði. Allir landsmenn vilja og eiga að geta reitt sig á Landspítalann fyrir sig og sína þegar alvarleg veikindi knýja dyra.

Úreltur tækjabúnaður

Svo illa er komið fyrir myndgreiningardeild spítalans að úrbætur þola enga bið. Tæki sem teljast mikilvæg í nútíma læknisfræði eru sum hver hreinlega ekki til hér á landi. Annar mikilvægur tækjabúnaður er úr sér genginn vegna mikils álags og er síbilandi, með tilheyrandi áhættu fyrir sjúklinga. Á sama tíma og ríkisstjórnin hefur skorið niður fé til tækjakaupa eru uppgerðir varahlutir keyptir í sparnaðarskyni á netinu í elstu tækin, sem eru orðin 17 ára!

Nýlega þurfti t.d. að flytja sjúkling sem grunur lék á að væri með heilablæðingu í tölvusneiðmyndatöku á einkarekna myndgreiningarstofu í Orkuhúsinu þar sem sneiðmyndatækin á Landspítala voru biluð samtímis í Fossvogi og á Hringbraut. Þetta ástand teflir öryggi sjúklinga í tvísýnu og er algerlega óásættanlegt.

Aðgerðir ráðherra duga ekki til

Nýlegar aðgerðir sem gripið var til á lyflækningasviði í samvinnu við heilbrigðisráðherra eru skref fram á við en nægja ekki til að snúa við þeim bráðavanda sem þar ríkir. Á Lyflækningadeild krabbameina er ástandið t.d. mjög alvarlegt. Þar eru nú aðeins fjórir sérfræðingar að sinna störfum sem átta sinntu áður. Krabbameinssjúklingum fjölgar hins vegar stöðugt, ekki síst vegna fjölgunar aldraðra. Svipað ástand er á Geislameðferðardeild krabbameina, þar sem einn þriggja lækna er að hætta störfum sakir aldurs. Öðrum læknum á þessum krabbameinsdeildum hafa borist atvinnutilboð erlendis frá sem þeir íhuga. Nýja lækna vantar strax til starfa því að óbreyttu er veruleg hætta á frekari flótta krabbameinslækna frá deildinni.

Þarftu á krabbameinslækni að halda?

Fátt setur tilveru sjúklinga og aðstandenda jafnrækilega úr jafnvægi og að greinast með krabbamein. Sjúklingum og aðstandendum þeirra er þannig kippt út úr sínu daglega lífi. Miklar framfarir hafa orðið á síðustu áratugum í krabbameinslækningum: ný lyf hafa komið fram og skurðaðgerðir og geislameðferð hafa þróast auk þess sem myndgreining hafur batnað. Það er ánægjuleg staðreynd að hér á landi hefur árangur krabbameinsmeðferðar verið með því besta sem þekkist og stór hluti krabbameinssjúklinga læknast. Þessi góði árangur er afrakstur stöðugrar uppbyggingar síðustu áratuga og er ekki sjálfgefinn. Honum þarf að viðhalda.

Þú gætir verið í þeim sporum, lesandi góður, að greinast með krabbamein. Finnst þér ásættanlegt að bið eftir fyrsta viðtali við krabbameinslækni lengist og geti numið allt að nokkrum vikum? Finnst þér í lagi að læknirinn þinn hitti þig sjaldnar en æskilegt væri og þá skemur í senn en áður vegna mikils vinnuálags? Þetta er sú staða sem krabbameinssjúklingar á Íslandi þurfa nú að búa við.

Krabbameinsdeildir eru á meðal sérhæfðustu og mikilvægustu deilda hvers sjúkrahúss. Núverandi ástand er ekki til þess fallið að slá á þann kvíða og það öryggisleysi sem fylgir því að greinast með illkynja sjúkdóm.

Mikið í húfi

Það er mikið í húfi fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra. Stöðva verður strax frekari atgervisflótta krabbameinslækna og annarra sérfræðinga. Einnig verður að fá fleiri deildarlækna til starfa á lyflækningasviði. Endurnýja þarf nauðsynlegan tækjakost svo að myndgreiningardeild og fleiri stoðdeildir sjúkrahússins geti sinnt nauðsynlegri þjónustu við sjúklinga spítalans, sem margir eiga í engin önnur hús að venda.

Sem starfsmenn Landspítala viljum við vinna að þessum brýnu umbótum, fáist til þess nauðsynlegt fjármagn. Hagsmunir allra landsmanna eru í húfi.

Tómas Guðbjartsson, yfirlæknir og prófessor í skurðlækningum, formaður prófessoraráðs Landspítala

Engilbert Sigurðsson, yfirlæknir og prófessor í geðlækningum, varaformaður prófessoraráðs

Arthur Löve, yfirlæknir og prófessor í veirufræði

Ásgeir Haraldsson, yfirlæknir og prófessor í barnalækningum

Bjarni A. Agnarsson, yfirlæknir og prófessor í meinafræði

Björn Guðbjörnsson, yfirlæknir og prófessor í gigtarrannsóknum

Björn R. Lúðvíksson, yfirlæknir og prófessor í ónæmisfræði

Einar Stefánsson, yfirlæknir og prófessor í augnlækningum

Einar Stefán Björnsson, yfirlæknir og prófessor í meltingarlækningum

Elías Ólafsson, yfirlæknir og prófessor í taugalækningum

Eyþór H. Björnsson, lungnalæknir og klínískur prófessor

Friðbert Jónasson, yfirlæknir og prófessor í augnlækningum

Gísli H. Sigurðsson, yfirlæknir og prófessor í svæfinga- og gjörgæslulækningum

Guðmundur Þorgeirsson, yfirlæknir og prófessor í lyflækningum

Gunnar Guðmundsson, lungnalæknir og prófessor í lyfjafræði

Helgi Jónsson, gigtarlæknir og prófessor í gigtarlækningum

Helgi Sigurðsson, yfirlæknir og prófessor í krabbameinslækningum

Karl G. Kristinsson, yfirlæknir og prófessor í sýklafræði

Jóhann Heiðar Jóhannsson, meinafræðingur, klínískur prófessor

Jón Gunnlaugur Jónasson, yfirlæknir og prófessor í meinafræði

Jón Jóhannes Jónsson, yfirlæknir og prófessor í lífefnafræði

Magnús Gottfreðsson, yfirlæknir og prófessor í smitsjúkdómum

Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfjafræði og forseti læknadeildar HÍ

Pálmi V. Jónsson, yfirlæknir og prófessor í öldrunarlækningum

Páll Torfi Önundarson, yfirlæknir og prófessor í blóðsjúkdómum

Rafn Benediktsson, yfirlæknir og prófessor í innkirtlalækningum

Ragnar G. Bjarnason, yfirlæknir og prófessor í barnalækningum

Reynir T. Geirsson, yfirlæknir og prófessor í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum

Sigurður Guðmundsson, yfirlæknir og prófessor í lyflækningum

Sigurður Yngvi Kristinsson, blóðmeinafræðingur og prófessor í blóðsjúkdómum

Þórarinn Gíslason, yfirlæknir og prófessor í lungnalækningum




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×