Skoðun

Orkumál: Vantar í umræðuna?

Ari Trausti Guðmundsson skrifar
Margar blikur eru á lofti þegar kemur að jákvæðum og neikvæðum þáttum í umræðu um sæstreng til meginlandsins. Í ágætri grein og yfirliti Fréttablaðsins um málefnið og einnig í leiðara 23. október vantar höfuðatriði:

Getu orkuauðlinda til að standa bæði undir útflutningi raforku og nýtingu innanlands (að því gefnu að fjögur stóriðjuver starfi eins og nú). Reyndar yfirsést flestum þetta atriði þegar sæstrenginn ber á góma í fjölmiðlum, með sín 500-1000 MW.

Staðreyndir eru einfaldar. Með núverandi tækni í jarðhitavinnslu og með nýtingu vatnsorkuvera, eru framleiddar um 17 terawattstundir með afli um það bil 2600 MW. Sennilega er unnt að bæta við, með sæmilegri skynsemi og eftir átök andstæðra sjónarmiða í orkumálum, 1500 til 2000 MW, eftir því sem skýrslur telja, enda hámarksorkuvinnsla þar sögð 30-35 TWst. Kannski minna?

Nú er þess að gæta að 500-600 MW þarf til þess að mæta fólksfjölgun og hefðbundnum iðnaði og tækniþróun fram til ársins 2050. Ef til vill er talan í lægsta lagi. Ef gera á Ísland næstum sjálfbært um eldsneyti á vélar (alkóhól, lífdísill, vetni o.s.frv) þarf einhver hundruð megawött á sama tíma. Komi inn gagnaver, nýjar áætlanir um stórfellda matvælavinnslu með jarðhita, og fleira framsækið og í anda nýsköpunar, má gera ráð fyrir að á vanti mörg hundruð megawött. Hvað er þá orðið til skiptanna handa meginlandsbúum?

Orkuþörf Íslendinga

Rætt er um núverandi umframafl (200-300 MW) sem engum gagnast og henti í sæstreng. Skýringin er annars vegar lítil nýuppbygging í orkukrefjandi iðnaði vegna kreppunnar (nema fiskimjölsverksmiðjur sem búið er að rafvæða að mestu) og sú staðreynd að orkuver á austanverðu landinu eru afar illa tengd orkuverum á sunnan- og suðvestanverðu landinu. Gildir einu hvort menn tali með eða á móti nýjum virkjunum, málmiðjuverum og stækkun þeirra gömlu.

Auðvitað verður að ræða á upplýstan hátt um sæstreng í þessu ljósi. Orkuþörf Íslendinga sjálfra næstu 30-60 árin á að vera með í myndinni.

Ekki dugar að vísa til djúpborunarverkefnisins (IDDP). Útkoman þar er með öllu óljós.

Um leið er kominn tími til að fara í saumana á öðrum orkuvinnsluleiðum svo sem vindorku og sjávarfallaorku.

Vindorkuver sæta gagnrýni, ekki aðeins fyrir stærð og sjónmengun, heldur mun fremur fyrir að vera ekki sérlega vistvæn. Ástæðan er sú að menn hafa tekið til við að greina lífsferil plast- og málmrisanna, þ.e. kostnað og umhverfisáhrif þeirra frá „vöggu til grafar“ og með tilliti til endingartíma. Þau spil verður að leggja á borðið samhliða sjálfsögðum og áhugaverðum prófunum á Íslandi sem nú fara fram.

Sennilega er tíföld sú orka fólgin í sjávarstraumum við Ísland sem fyrirfinnst með núverandi tækni á landi. Tilraunir með nýja, íslenska gerð hverfla til að knýja rafala á kafi í sjó eru áhugaverðar og þarfnast meiri stuðnings. Sama má segja um svokallaðar varmadælur sem henta stökum byggingum víða um land.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×