Innlent

Oddvitaáskorunin - Skilvirk og gegnsæ stjórnsýsla

Samúel Karl Ólason skrifar
Anna Sigríður á einum af sínum uppáhaldsstöðum, á leik hjá meistaraflokki kvenna í Aftureldingu. Áfram Afturelding!
Anna Sigríður á einum af sínum uppáhaldsstöðum, á leik hjá meistaraflokki kvenna í Aftureldingu. Áfram Afturelding!

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2014 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt.

Anna Sigríður Guðnadóttir leiðir lista Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ í sveitarstjórnarkosningunum í vor.

Anna Sigríður Guðnadóttir er fædd og uppalin í 101 Reykjavík. Hún er gift Gylfa Dýrmundssyni, rannsóknarlögreglumanni og eiga þau 4 börn, Guðna Kára, Ásdísi Birnu, Kristrúnu Höllu og Gunnar Loga. Fjölskyldan flutti í Mosfellsbæinn árið 1999.

Anna Sigríður er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík og er bókasafns- og upplýsingafræðingur frá Háskóla Íslands. Hún og á bara eftir lokaritgerð í meistaranámi sínu í opinberri stjórnsýslu. Hún starfar á heilbrigðisvísindabókasafni Landspítalans.

Anna Sigríður er eldheit Aftureldingarmanneskja og hefur sinnt ýmsu sjálfboðastarfi innan félagsins um árabil. Hún sat í aðalstjórn ungmennafélagsins frá 2009-2013. Hún hefur starfað innan Samfylkingarinnar um árabil og meðal annars verið fulltrúi flokksins í fræðslunefnd Mosfellsbæjar í 8 ár.

Helstu áherslur hennar í pólitík eru skilvirk og gegnsæ stjórnsýsla, öflugt skólastarf og velferð barna, ábyrgur rekstur og jafnréttismál.

Í tómstundum vill Anna Sigríður lesa og lesa meira en eitt frekar nýtilkomið áhugamál hennar er kryddjurtaræktun sem tengist mjög áhuga hennar á matargerð. Svo er það náttúrulega fótboltinn, en fátt er skemmtilegra en að mæta á leiki Aftureldingar á fallegum sumardögum.

Í ellinni ætlar Anna Sigríður að fá sér lopatrefil í Álafossbúðinni og lepja mikið latte á kaffihúsum í miðbæ Mosfellsbæjar.

YFIRHEYRSLAN

Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?

Þar sem ég er stödd á björtum sumardegi , gróðurangan í loftinu og kyrrðin áþreifanleg.

Hundar eða kettir?

Kettir eða hundar.

Hver er stærsta stundin í lífinu?

Barnsfæðing.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Nautalund með dijon sinnepi og rósmarín.

Hvernig bíl ekur þú?

Ford Focus, veit ekki hvað hann er gamall.

Besta minningin?

Þegar ég kynntist manninum mínum.

Hefur þú verið tekin af lögreglunni?

Já fyrir að brjóta stöðvunarskyldu.

Hverju sérðu mest eftir?

Lífið er of stutt fyrir eftirsjá.

Draumaferðalagið?

Afríka.

Hefur þú migið í saltan sjó?

Óbeint, um borð í Herjólfi, telst það með?

Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur gert?

Lífið er uppfullt af smá skrýtnum atburðum.

Hefur þú viðurkennt mistök?

Já margoft og á eflaust eftir að gera það oft enn.

Hverju ertu stoltust af?

Ég er stoltust af börnunum mínum, frábærar manneskjur öll fjögur.

Fram að sveitarstjórnarkosningunum 31. maí munum við birta kynningu á oddvitum víðsvegar um landið. Allir oddvitar geta tekið þátt í Oddvitaáskorun Vísis. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á netfanginu [email protected].


Tengdar fréttir

Oddvitaáskorunin - Lífið er pólitík

Bjarki Bjarnason, sem leiðir lista Vinstri grænna í Mosfellsbæ í sveitarstjórnarkosningunum í vor tók þátt í Oddvitaáskorun Vísis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×