Innlent

Oddvitaáskorunin - Vilja auka við gæðastundir fjölskyldunnar

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2014 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt.

Birkir Jón leiðir lista Framsóknarflokksins í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum í vor.

Hann er 34 ára í sambúð með Svövu H. Friðgeirsdóttur. Saman eiga þau tvær dætur. Birkir er með MBA gráðu í viðskiptum og stjórnun frá Háskóla Íslands.

Birkir var aðstoðarmaður félagsmálaráðherra á árunum 2000-2003. Hann sat á Alþingi fyrir Framsóknarflokkinn á árunum 2003-2013 og var m.a formaður fjárlaga- og iðnaðarnefndar. Hann var varaformaður Framsóknarflokksins á árunum 2009-2013. Hann sat í sveitastjórn Fjallabyggðar 2006-2010.

Helstu áhugamál hans eru samverustundir með fjölskyldunni og spila bridge.

Birkir leggur höfuðáherslu á fjölskyldumálin í Kópavogi. Hann vill að börnin fái aukin tækifæri til að stunda íþróttir, tónlistarnám og aðrar frístundir. Hann vill gera góða skóla enn betri því eins og hann segir sjálfur: „Það á að vera best að ala börnin sín upp í Kópavogi.“

YFIRHEYRSLAN

Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?

Sveitin mín, Fljótin.



Hundar eða kettir?

Hundar.

Hver er stærsta stundin í lífinu?

Fæðing dætra minna.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Lambahryggurinn hennar ömmu.



Hvernig bíl ekur þú?

Jeep Cherokee.

Besta minningin?

Dagurinn þegar Auður Björk og Guðrún útskrifuðust af Barnaspítala Hringsins.

Hefur þú verið tekinn af lögreglunni?

Það eru all mörg ár síðan já, fór örlítið of hratt.

Hverju sérðu mest eftir?

Að hafa vanrækt mína bestu vini síðastliðin ár. Það stendur til bóta.

Draumaferðalagið?

Að ferðast með fjölskyldunni í sumar og sína dætrunum landið.

Hefur þú migið í saltan sjó?

Já.

Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur gert?

Að ganga upp á Drangey (í ljósi þess að ég er sjúklega lofthræddur).

Hefur þú viðurkennt mistök?

Já, oft.

Hverju ertu stoltastur af?

Dætrum mínum.

Fram að sveitarstjórnarkosningunum 31. maí munum við birta kynningu á oddvitum víðsvegar um landið. Allir oddvitar geta tekið þátt í Oddvitaáskorun Vísis. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á netfanginu [email protected].


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×