Skoðun

Umhverfi, heilbrigði og vellíðan

Bryndís Haraldsdóttir skrifar
Mosfellsbær er fallegur bær, umlukinn fellum, ám og vötnum.  Staðreyndin er sú að fólk sækir í umhverfi þar sem því líður vel, umhverfi sem býður upp á slökun og jafnvægi.   Mosfellsbær er vinsæll bær og hér sest að fjölskyldufólk sem hefur áhuga á útivist og íþróttum því hér er aðgengi gott að gæða útivistarumhverfi og í því eru fólgin mikilvæg lífsgæði.

Skipulag Mosfellsbæjar til framtíðar

Byggðin í Mosfellsbæ hefur tekið miklum breytingum og íbúum hefur fjölgað jafnt og þétt.  Á þessu kjörtímabili var samþykkt nýtt aðalskipulag, vinnsla skipulagsins tók langan tíma enda stórt og mikilvægt verkefni.  Almenn sátt ríkir um skipulagið og að því hafa komið íbúar, sérfræðingar, embættismenn og kjörnir fulltrúar.

Leiðarljós okkar í skipulagsmálum og uppbyggingu í bænum er að áfram skal leggja áherslu á fjölbreytta, manneskjulegabyggð, þar sem fölskyldan er í fyrirrúmi, vandaða umhverfismótun og góð tengls við aðliggjandi útivistarsvæði og náttúru.  Leggja skal áherslu á sérstöðu og sjálfstæði bæjarins á sama tíma og horft er til hlutverks okkar í samfelldri byggð höfuðborgarsvæðisins.  Skipulag bæjarins og mótun byggðar og umhverfis á að stuðla að velferð íbúanna.  Áfram verður kallað eftir sjónarmiðum íbúa í skipulagsvinnu og þróa þarf enn frekar samvinnu á því sviði. 

Heilsubærinn Mosfellsbær

Mosfellsbær er heilsueflandi samfélag. Það kallar á að bærinn hafi í öllum ákvörðunum  sínum lýðheilsu íbúa að leiðarljósi.  Góðir stígar fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur eiga að hvetja okkur til að skilja bílinn eftir heima stöku sinnum og kenna börnunum okkar mikilvægi þess að hjóla og ganga milli staða og taka strætó sé þess kostur.  Íþróttasvæðin okkar eru mikilvæg lýðheilsu bæjarbúa, glæsilegir golfvellir, sundlaugar, reiðstígar og almenn íþróttasvæði skipta okkur miklu máli. Mikilvægt er að halda þátttökugjöldum barna og unglinga í íþrótta- og tómstundarfélögum hófstiltum. Það er best gert í samstarfi við íþrótta- og tómstundafélögin í bænum. Frístundarávísanir þurfa að hækka en tryggja þarf að slíkar hækkanir leiði ekki til hærri iðkunargjalda heldur skili sér til hagsbótar fyrir heimilin og stuðli þannig að aukinni lýðheilsu barna og ungmenna í Mosfellsbæ.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×