Innlent

Oddvitaáskorunin - Viljum gera vel og betur

Samúel Karl Ólason skrifar

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2014 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt.

Guðmudnur Ármann Pétursson leiðir K - lista óháðra í Grímsnes- og Grafningshrepp í sveitarstjórnarkosningunum í vor.

Guðmundur Ármann er fæddur í Reykjavík, en fluttist 12 ára að  aldri á Eyrarbakka.  Fluttist  í Grímsnes- og Grafningshrepp fyrir um 25 árum síðan og starfar þar sem framkvæmdastjóri Sólheima í dag.  Hann er í sambúð með Birnu Guðrúnu Ásbjörnsdóttur ráðgjafa og mastersnema og á hann þrjú börn, Auðbjörgu Helgu, Emblu Líf og Nóa Sæ.

Guðmundur Ármann er menntaður rekstrar- og umhverfisfræðingur auk þess að hafa lært lífelfdan landbúnað.

Guðmundur Ármann hefur setið í sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps síðustu fjögur ár.

YFIRHEYRSLAN

Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?

Fjaran á Eyrarbakka er síbreytileg og einstaklega falleg.

Hundar eða kettir?

Hundar, alveg klárt.

Hver er stærsta stundin í lífinu?

Þegar sonur minn kom heill út úr hjartaaðgerð.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Konan mín og móðir eru frábærir kokkar þær töfra stöðugt fram nýja uppáhaldsrétti.

Hvernig bíl ekur þú?

Nissan Leaf, rafmagnsbíl.

Besta minningin?

Þegar börnin mín komu í heiminn.

Hefur þú verið tekinn af lögreglunni?

Já, ók aðeins og hratt, en það er orðið langt síðan!

Hverju sérðu mest eftir?

Engu.

Draumaferðalagið?

Frá því að ég var ungur hefur mig langað að ferðast um Eþíópíu og Kína.

Hefur þú migið í saltan sjó?

Já og geri það væntanlega ekki aftur!

Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur gert?

Að klöngrast upp þverhnípt bjarg á Sri Lanka í 40 stiga hita til að skoða myndir málaðar á vegg.

Hefur þú viðurkennt mistök?

Já, enda er það forsenda þess að þroskast.

Hverju ertu stoltastur af?

Konu minni og börnum.

Fram að sveitarstjórnarkosningunum 31. maí munum við birta kynningu á oddvitum víðsvegar um landið. Allir oddvitar geta tekið þátt í Oddvitaáskorun Vísis. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á netfanginu [email protected].




Fleiri fréttir

Sjá meira


×