Skoðun

„Hver á núna að passa barnið mitt?“

Valdimar Víðisson skrifar

Samningar grunnskólakennara hafa verið lausir í tvö ár. Grunnskólakennarar hafa beðið þolinmóðir eftir launaleiðréttingu og viðurkenningu á því mikla álagi sem fylgir þessu starfi. Því miður þurftu grunnskólakennarar að grípa til vinnustöðvunar. Fyrsta vinnustöðvunin var 15. maí, önnur vinnustöðvunin hefur verið boðuð 21. maí og þriðja vinnustöðvunin 27. maí. Vonandi tekst að semja áður en til þess kemur.



Samkvæmt formanni félags grunnskólakennara þá þokast í rétta átt og það er vel. Umræðan um þessa vinnustöðvun hefur verið sáralítil, fjölmiðlar virðast ekki hafa áhuga á þessum aðgerðum, sjálfsagt af því að hér er um að ræða stétt sem vinnur með fólk en ekki peninga. Ég hef fengið símtöl frá fólki sem veit ekki af því að það eru boðaðir þrír dagar í vinnustöðvun. Einhverjir hafa látið það út úr sér að það sé skipulagsdagur í grunnskólum Hafnarfjarðar og því skiptir þetta ekki öllu og sumir tala um að það séu vandræði á heimilinu því nú veit fólk ekki hver á að „passa“ barnið þeirra. Hvar er umræðan um það álag sem fylgir starfinu? Hvar er umræðan um að meðallaun kennara séu um 320.000 kr. og það fyrir skatt? Hvar er umræðan um þau fjölmörgu verkefni sem hafa færst yfir á kennara síðustu ár án þess að launin hafi hækkað?



Þessi vinnustöðvun hefur áhrif á rúmlega 42.000 grunnskólanemendur og snertir allflest heimili með einum eða öðrum hætti. Afleiðingarnar eru þær að nemendur missa úr daga, kennarar missa úr daga til að skipuleggja námsmat, stjórnendur missa kennara úr vinnu varðandi skólanámskrá og skipulag næsta skólaárs og svona mætti lengi telja.



Kennari í fullu starfi skilar rúmlega 42 klst. í vinnu í hverri viku. Vinnuvikan hjá öðrum eru 40 klst. Með þessum „umfram“ tíma eru kennarar að vinna af sér jólaleyfi og páskaleyfi. Yfir sumartímann eiga kennarar að sinna yfir 100 klst. í endurmenntun. En umræðan er ekki um þessa miklu vinnu kennara, hún er um það að kennarar eiga svo gott frí.



Það er kominn tími til að snúa umræðunni við. Það er kominn tími til að sýna kennurum stuðning í sinni baráttu. Þeir þurfa hærri laun. Ég efast um að aðrar starfsstéttir gætu sætt sig við aukið álag og fleiri verkefni en með sömu laun.



Góður kennari skiptir gífurlega miklu máli fyrir skólagöngu barna. Fyrir nokkrum árum útskrifuðust tugir kennara á hverju vori, í vor útskrifast 20 kennarar frá Háskóla Íslands. Ef það verður ekki breyting á kjörum kennara þá kvíði ég framtíð grunnskólans. Forgangsröðunin er svo röng, við þurfum að fjárfesta í menntun, það skilar sér svo margfalt tilbaka.



Horfum fram á veginn, leiðréttum kjör kennara og viðurkennum það gífurlega mikla álag sem fylgir þessu starfi.



Áfram kennarar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×