Innlent

Mengun á Austfjörðum: Fólk þarf að vera meðvitað

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vísir/Egill
Styrkur brennisteinstvíildis á Reyðarfirði er um tíu sinnum lægri í dag en hann var í hádeginu í gær. Fólk á Austfjörðum þarf þó áfram að vera meðvitað um mengun í lofti og vera tilbúið að koma sér úr aðstæðum finni það fyrir einkennum. Þetta segir Guðfinnur Sigurvinsson upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnunar.

Börnum var ráðlagt að halda sig innandyra á Austfjörðum í gær og sömuleiðis þeir sem ekki ganga fullkomlega heilir til skógar. Þá var fólki ráðlagt frá því að stunda líkamsrækt utandyra. Magn SO2 í lofti mældist 2600 µg/m3 á Reyðarfirði í gær en í morgun var magnið um 250 µg/m3. Styrkur í hreinu andrúmslofti er áætlaður u.þ.b. 1 µg/m3

Guðfinnur, sem sat fund með sérfræðingum Umhverfisstofnunar í morgun, segir mengun enn til staðar og fólk þurfi að vera meðvitað um hana. Magn SO2 á Egilsstöðum mældist 155 µg/m3 í morgun.

Guðfinnur leggur áherslu á að þótt mælt gildi í gær hafi verið á Reyðarfirði þá nái ráðleggingar Umhverfisstofnunar til nærliggjandi svæða líka. Það sé einfaldlega þannig að mælirinn sé á Reyðarfirði og þaðan komi því upplýsingarnar um mengun. Nú sé hins vegar einnig mælir á Egilsstöðum sem hjálpi til.

„Verið er að vinna í því að flytja mæli frá Mývatni til Akureyrar og svo er í skoðun að fá fleiri færanlega mæla til að geta tekið stöðuna á fleiri stöðum,“ segir Guðfinnur.

Hraunið rennur í Jökulsá á Fjöllum.Vísir/Egill Aðalsteinsson
Svara spurningum landsmanna

Til stendur að opna undirsíðu á vef Umhverfisstofnunar í dag þar sem almenningi gefst kostur á að fá svör við spurningum sem upp koma í tengslum við mengunina.

„Við verðum vör við að fólk hafi samband með alls kyns spurningar sem við getum ekki svarað í gegnum tilkynningar frá Almannavörnum,“ segir Guðfinnur. Á nýju síðunni verða allar helstu upplýsingar um hvernig eigi að bregðast við, hver einkenni séu og fleira í þeim dúrnum. Þá verði þar liðurinn spurt og svarað þar sem algengar spurningar landsmanna verða teknar saman.

Reiknað er með því að opna undirsíðuna síðar í dag en þangað til er landsmönnum bent á að spyrja spurninga á Fésbókarsíðu Umhverfisstofnunar. Þá er hægt að senda póst á [email protected].


Tengdar fréttir

Sagan geymir afar öflug þeytigos

Sig Bárðarbunguöskjunnar um rúmlega 20 metra á stuttum tíma, og fjöldi stórra jarðskjálfta, veldur jarðvísindamönnum miklum áhyggjum. Það er ekki að ástæðulausu segir Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur sem þekkir sögu eldstöðvakerfisins út í hörgul.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×