Sport

Lesendur Vísis velja íþróttamann ársins 2014

vísir
Lesendum Vísis gefst færi á að útnefna íþróttamann ársins 2014 nú um áramótin. Opnað hefur verið fyrir tilnefningar og er öllum frjálst að senda inn.

Tekið er við tilnefningum á netfanginu [email protected] en frestur til að tilnefna rennur út næstkomandi sunnudag, þann 21. desember.

Ritstjórn Vísis og fer yfir innsendar tilnefningar og í kjölfarið hefst atkvæðagreiðsla. Einstaklingurinn verður heiðraður í byrjun nýs árs.

Í tilnefningunni þarf nafn viðkomandi að koma fram auk upplýsinga um hvers vegna viðkomandi á skilið að vera útnefndur sem Maður ársins 2014.

Farið verður yfir tilnefningar með tilliti til rökstuðnings og fjölda tilnefninga sem hver og einn fær. Atkvæðagreiðsla fer svo fram á Vísi yfir jólin.

Tilnefndu þína konu eða þinn mann á netfanginu [email protected] með fullu nafni viðkomandi og stuttum rökstuðningi.

Ekki missa af neinu - fylgdu íþróttavef Vísis á Facebook.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×