Skoðun

Reykjavík fyrir alla

Grímur Atlason skrifar

Það er gott fyrir marga að búa í Reykjavík en það er ekki nóg því Reykjavík á að vera fyrir alla. Lykillinn að öflugu borgarsamfélagi er mannlífið og lífskilyrðin sem eru í boði fyrir borgarbúa og þar skiptir máli að allir geti notið.



Húsnæðismál í Reykjavík eru því miður frumskógur sem erfitt er að fóta sig í. Erfitt er fyrir ungt fólk að leigja eða kaupa sér húsnæði, fjölskyldur eiga í vanda og eldri borgarar og fólk með fötlun eiga jafnvel enn erfiðara með að finna sér boðlegt húsnæði sem það hefur ráð á. Kerfið er því miður sniðið að þeim efnameiri í samfélaginu. Áratuga stefna sem miðar að því að fólk búi í eigin húsnæði hefur skilað okkur þessari stöðu sem við verðum að vinda ofan af án tafar!



Á sama tíma og lífeyrissjóðirnir reyna að ávaxta lífeyrinn okkar býður núverandi kerfi upp á að sjóðirnir vinni á móti hagsmunum sjóðsfélaganna. Fjárfestingar í fasteignafélögum sem kaupa upp eignir í miðborg Reykjavíkur og víðar skila sér í himinháu leiguverði og háu húsnæðisverði – sem aftur er verðbólguhvetjandi. Þeir sem tapa: sjóðsfélagar. Eiginlegur leigumarkaður er ekki til heldur ríkir frumskógarlögmálið þar sem flestir tapa með ótryggri og ósanngjarnri stöðu.



Alvöruleigumarkaður

Í Danmörku hefur lengi tíðkast að lífeyrissjóðirnir eigi og reki fasteignafélög sem leigja sjóðsfélögum íbúðir á sanngjörnu og eðlilegu verði. Með þessu er stuðlað að alvöruleigumarkaði sem ekki byggir á því einu að blása í verðblöðru samfélags þar sem peningar einir virðast mega ráða för. Lífeyrissjóðir á Íslandi verða samkvæmt lögum að leita að hámarksávöxtun hverju sinni með tilheyrandi áhættusækni. Þessum lögum þarf að breyta. Hins vegar er umdeilanlegt hvort það væri lakari kostur fyrir sjóðina að fjárfesta og reka leigufélög fyrir sjóðsfélaga eða fjárfesta í mörgum af þeim loftbóluverkefnum sem hingað til hafa talist bestu kostirnir.



Reykjavíkurborg getur orðið leiðandi afl í breyttum áherslum á húsnæðismarkaði. Frjálshyggjulausnir liðinna ára eru löngu búnar að sanna sig sem gjaldþrota. Leitum nýrra leiða og hverfum af braut peningahyggju. Þá verður blómlegt um að litast í höfuðborginni um langa framtíð!




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×