Skoðun

Góðir kennarar

Hjálmar Sveinsson skrifar
Átján ára dóttir mín kom heim í vikunni eftir að hafa tekið þátt í mótmælum á Austurvelli. Hún fékk frí í skólanum til að sýna kennurum samstöðu í baráttu þeirra fyrir betri launum. Verkfall framhaldsskólakennara er yfirvofandi. Það er smánarblettur á samfélaginu að þeir þurfi að leita til slíkra ráða til að fá almennileg laun. Kennaraverkföll hafa reynst langvinn og haft afdrifaríkar afleiðingar.

Kennarastarfið er auðvitað eitt mikilvægasta starf samfélagsins. Góður kennari vekur ekki bara áhuga á tiltekinni námsgrein. Hann/hún blæs í sjálfan lífsneistann í sálinni. Tilveran er mögnuð, full af furðum og fallegum hlutum og alls kyns mikilvægum álitamálum og sjálfur er maður hluti af þessu öllu saman. Það er dásamlegt. Maður býr að þeirri tilfinningu alla ævi.

Enskukennarinn minn í Flensborgarskóla var af vesturíslenskum ættum. Hann kom einu sinni í tíma með plötuspilara og plötu með Leonard Cohen. Hann spilaði lagið Suzanne og bað okkur að skrifa stutta tímaritgerð um lag og texta. Sumum fannst þetta ömurlegt verkefni en mér fannst það frábært. Ég fylltist einhverjum fögnuði innra með mér og lifði á honum lengi á eftir. Ég var nýorðinn 17 ára.

Fyrir næstum 10 árum fjallaði ég talsvert um skólamál í Speglinum í Ríkisútvarpinu. Tilefnið var frekar slakur árangur íslenskra grunnskólanema í PISA-prófum. Ég ætla ekki út í þá viðkvæmu sálma hér. En það er ein setning sem fer ekki úr höfðinu á mér frá því ég fjallaði um þessi mál í Speglinum. Ég las viðtal við Andreas Schleicher, þýskan skólafrömuð sem starfar í menntaráði OECD og hefur verið kallaður „Faðir Pisa“. Hann sagði í þessu viðtali að sín reynsla væri sú að það skipti engu hvað skólakerfið héti eða hvernig skipuritinu væri háttað. En það skipti öllu máli að í skólanum ríkti „andrúmsloft andlegs metnaðar“.

Auðvitað eru það fyrst og fremst góðir kennarar sem skapa slíkt andrúmsloft.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×