Skoðun

Borg launajafnréttis

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Árið er 2014 og hér á landi ríkir ekki raunverulegt jafnrétti. Kynbundið ofbeldi er enn útbreitt. Konur eru enn í minnihluta í stjórnum fyrirtækja og stofnana. Þá er óútskýrður launamunur kynjanna enn til staðar, sem gerir það að verkum að íslenskar konur eru á starfsævi sinni hlunnfarnar um margar milljónir króna. Reykjavíkurborg er stærsti vinnustaður landsins og á hún að beita sér af fullum þunga fyrir því að uppræta það mein sem kynbundinn launamunur er á íslensku samfélagi.

Hann fær hærri laun

Dóttir mín er þriggja ára og vel má hugsa sér að hún verði samferða skólabróður sínum af leikskólanum gegnum lífið og upplifi sams konar hluti – þar sem þau verða sjö ár í Fossvogsskóla, eigi sömu vinina, æfi hand- og fótbolta með Víkingi, verði þrjú ár í Réttarholtsskóla, fari í sama menntaskólann og ljúki sama háskólanámi.

Það er grátlegt að hugsa til þess að þrátt fyrir sama bakgrunn, reynslu og menntun eru raunverulegar líkur til þess að hann muni fá hærri laun en hún fyrir sambærilegt starf. Ef ekkert breytist mun uppsafnaður launamismunur að starfsævi þeirra lokinni nema skuggalega háum upphæðum. Þessu verður að breyta.

Borgin sýni gott fordæmi

Reykjavíkurlistinn beitti sér gegn kynbundnum launamun hjá borginni og dró þá verulega saman með kynjunum, en þrátt fyrir það er launamunurinn enn til staðar líkt og kannanir sýna. Meirihluti Samfylkingar og Besta flokks tók alvarlega niðurstöðum sem sýndu að konur sem starfa hjá borginni fá lægri laun en karlar. Í framhaldinu var fyrir hálfu ári sett upp metnaðarfull áætlun um aðgerðir gegn kynbundnum launamun sem fylgja verður eftir. Innleiða þarf svokallaðan jafnlaunastaðal sem aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við að koma á og viðhalda launajafnrétti. Höfuðborgin á að ganga fram með góðu fordæmi og mun Samfylkingin beita sér fyrir því á komandi kjörtímabili.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×