Skoðun

Heimsborg er frjálslynd borg

Hildur Sverrisdóttir skrifar
Allar borgir sem vilja kalla sig heimsborgir eiga sameiginlegt að þar býr alls konar fólk. Borg er ekki einsleitt samfélag eins og víða í sveitum heldur suðupottur ólíkra hópa og viðhorfa. Í blómlegum borgum ríkir eðli máls samkvæmt talsvert umburðarlyndi og frjálslyndi íbúa hverra gagnvart öðrum.

Reykjavík er ekki fjölmenn í samanburði við stórborgir heims. En Reykjavík er stórborg ef horft er til þess að hér er rými fyrir alls konar fólk með ólíkar skoðanir, menningarbakgrunn, lífsstíl, kynhneigð, trúarbrögð og hvaðeina. Og í Reykjavík búa bókstaflega næstum því allra þjóða kvikindi.

Þetta er í senn helsti styrkleiki höfuðborgarinnar og aðalkosturinn við að búa í Reykjavík. Á grunni frjálslyndra viðhorfa og réttar hvers einstaklings til að ráða sér sjálfur byggist besta vörnin gegn fordómum og fávisku öfgaafla sem ala á hatri gagnvart þeim sem ekki falla að íhaldssömum og úreltum skoðunum um einsleitt samfélag.

Borgarkerfið okkar verður að taka mið af því að í borg býr alls konar fólk með ólíkar þarfir og væntingar, mismunandi siði og venjur.

Sumir vilja búa þétt, aðrir dreift, sumir smátt og aðrir stórt. Sumir vilja eiga, aðrir leigja. Sumir vilja aka til vinnu eða skóla, aðrir ganga, hjóla eða taka strætó. Við eigum að leyfa fólki að eiga raunverulegt val um búsetuform og samgöngumáta.

Fögnum fjölbreytninni

Sumir ungir foreldrar vilja smábarnaleikskóla, aðrir dagmömmu, enn aðrir vera heima. Sumir vilja setja börnin sín í hverfisskólann, aðrir í sjálfstæðan skóla. Aldraðir kunna að vilja flytja á dvalarheimili, en við eigum líka að geta gert þeim kleift að búa lengur heima með einstaklingsmiðaðri þjónustu. Aðalatriðið er að borgin tryggi valfrelsi íbúanna og reyni ekki að ráða fyrir fólk. Ef aðrir en stofnanir borgarinnar eru best til þess fallnir að veita þjónustuna á að semja um það.

Við eigum að fagna fjölbreytninni og virða frelsi fólks til orðs og æðis og að iðka trú sína og siði, svo fremi að ekki sé gengið á rétt annarra. Við eigum að hjálpa innflytjendum að aðlagast og læra tungumálið, en líka að viðhalda færni í eigin móðurmáli. Við eigum að flykkjast í gleðigöngu og sýna stuðning við ást jafnt gagnkynhneigðra og samkynhneigðra. Við eigum að taka vel á móti flóttamönnum og hælisleitendum, sem vilja gera Reykjavík að sinni nýju heimaborg. Reykjavík er full af áberandi kirkjum sem bera okkar kristna arfi fallegt vitni. Við eigum að fagna því að eignast tilbeiðsluhús fleiri trúarbragða, sem sýna að hér er trúfrelsið í hávegum haft og allir jafnréttháir.

Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur frjálslyndis og einstaklingsfrelsis. Á þeim grunni er best að stýra borg sem ætlar að vera heimsborg; fjölbreytt, víðsýn, frjáls og opin.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×