Skoðun

Endurfjármögnun fasteignalána getur margborgað sig

Valur Þráinsson skrifar
Vissir þú að ef vextir á 20 milljóna króna óverðtryggðu jafngreiðsluláni, til 20 ára, lækka úr 7,5% í 6,5% þá lækka afborganir þess um 145 þúsund krónur á ári? Í kjölfarið myndast umtalsverður sparnaður ef litið er til líftíma lánsins. Sé sparnaðurinn núvirtur, sem kallað er, má meta verðmæti lækkunarinnar á um 1,5 milljónir króna (miðað við 7,5% ávöxtunarkröfu). Það er því augljóst að það margborgar sig að skoða hvaða lánakjör standa þér til boða.

Með því að fylgja nokkrum einföldum þumalputtareglum þá getur þú tryggt betur að fá sem lægsta vexti á fasteignalánum þínum. Það getur sparað þér umtalsverða fjármuni.

Fylgdu þrem þumalputtareglum

Í fyrsta lagi skaltu búa til yfirlit yfir þau lán sem hvíla á fasteigninni þinni og eðli þeirra. Í því gæti t.d. komið fram hvort þau eru verðtryggð eða óverðtryggð, hversu langur tími er eftir af hverju láni, afborganir á mánuði, vextir, hvort vextirnir eru breytilegir eða fastir, hvort uppgreiðslugjöld séu til staðar og svo framvegis.

Í öðru lagi skaltu afla upplýsinga um fasteignamat og markaðsverðmæti fasteignar þinnar. Þær upplýsingar geturðu nýtt til þess að meta hversu hátt hlutfall eignarinnar er veðsett en möguleikar til lántöku ráðast að miklu leyti af veðsetningarhlutfallinu.

Í þriðja lagi skaltu bera saman vexti og kjör hjá þeim aðilum sem starfa á markaðnum. Ef ársvextirnir lækka um 1% eða meira þá ætti það að öllum líkindum að vera hagstætt fyrir þig að endurfjármagna fasteignlánin þín. Í upphafi gætirðu t.d. fengið upplýsingar um lánakjör hjá Arion banka, Landsbankanum, MP banka, Íbúðalánasjóði, Íslandsbanka og lífeyrissjóðnum þínum (lífeyrissjóðir bjóða í mörgum tilfellum upp á mjög hagstæð kjör á fasteignalánum).

Taktu ákvörðun

Í dag er lítill kostnaður sem fylgir því að endurfjármagna fasteignalán en ástæða þess er m.a. sú að nú um áramótin voru stimpilgjöld af veðskjölum felld niður. Því er lántökugjaldið oft nánast eini kostnaðurinn sem fylgir því að endurfjármagna fasteignalán en gjaldið er á bilinu 0,5-1% af upphæð nýja lánsins. Það getur því margborgað sig að skoða þessi mál, hvort heldur upp á eigin spýtur eða með aðstoð óháðs fjármálaráðgjafa.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×